Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 13:13
Hvernig Rory ver peningum sínum

Business Insider hefir tekið saman skemmtilega samantekt í máli og myndum um hvernig nr. 6 á heimslistanum (Rory McIlroy) vinnur sér inn og ver peningum sínum. Fremst í flokki af tekjulindum kappans er auðvitað Nike golfvörufyrirtækið sem Rory er með ábatasaman $ 200 milljóna samning við. Það helsta sem Rory hefir síðan verið að eyða peningum sínum í er hús og bíll (ótrúlega flottur Lamborghini Aventador) og kærastan, Caroline Wozniacki, sem reyndar er heldur ekki á flæðiskeri stödd fjárhagslega en talið er að hún vinni sér inn árlega um $ 13,5 milljónir. Skemmtilegra er þó að sjá samantekt Business Insider í myndum, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 13:00
WGC Cadillac: Poulter kallar Matsuyama hálfvita

Ian Poulter fór hamförum á Twitter í gær og hellti sér yfir annan leikmann sem keppir á WGC-Cadillac Championship — reyndar kylfing sem hann kemur til með að vera með í ráshóp í dag, en þeir fara báðir út kl. 11:15 að staðartíma (þ.e. kl. 16:15 að okkar tíma hér heima á Íslandi). Sá sem Poulter gagnrýndi var japanska golfstjarnan Hideki Matsuyama, en hann kallaði Matsuyama „hálfvita“ fyrir að skemma flötina með því að þrýsta pútter sinn á púttersyfirborðið á 13. holu. „Spilaði með Matsuyama tomo. Hann gróf pútter sinn á 13. flötinni, 2 metrum frá holu. Dómari varð að laga þennan eldfjallagíg. Vegna þess að hann gerði það ekki,“ skrifaði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 12:00
WGC Cadillac: Áhorfandi stingur bolta Donald á sig – Myndskeið

Fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Englendingurinn Luke Donald tekur eins og allir bestu kylfingar heims þátt í WGC Cadillac Championship, í Doral, Miami. Hann átti ekkert sérstakan dag í gær en lék breytta Bláa Skrímslið á 82 höggum! Og svo er það ýmist í ökkla eða eyra. Ekki nóg með að honum hafi gengið illa, heldur tók áhorfandi á Bláa skrímslinu upp bolta hans þar sem hann lá utan brautar og gerði sig líklega til að hverfa af velli með hann! Þetta er náttúrlega nokkuð sem algerlega er bannað í golfkeppnum, hvort heldur er af keppendum eða áhorfendum, ef einhverjir eru, að taka upp bolta. Enda var konan stoppuð af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 11:15
LET: Park og Pettersen einvígi í vændum á morgun á Mission Hill

Það stefnir í einvígi nr. 1 og 2 (Suzann Pettersen og Inbee Park) á Rolex-kvenheimslistanum á morgun, en Inbee Park kom sér í 1. sætið fyrir lokahringinn eftir ótrúlegan hring upp á 11 undir pari, 62 höggum, þar sem hún setti nýtt vallarmet á Blackstone golfvellinum í Mission Hills í Haikou, Kína. Það sem er gaman í kvennagolfinu er að efstu kvenkylfingar á heimslistanum eru að berjast upp á líf og dauða um ekki bara sigurinn í mótinu á morgun heldur einnig um 1. sætið á heimslistanum…. öfugt við Tiger og Adam Scott í Miami! Park fékk fugla á fyrstu 3 holurnar en byrjaði ballið fyrir alvöru um miðbik hrings Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 10:30
Hæfileikar versus tækni í golfi

Hér á eftir fer í lauslegri íslenskri þýðingu frábær grein Adam Young (sjá má grein hans á ensku fyrir þá sem heldur vilja lesa greinina á frummálinu með því að SMELLA HÉR:): Nökkvi Gunnarsson, PGA golfkennari, sagði á facebook í fyrradag að þessi grein ætti að vera skyldulesning! Hér fer síðan greinin lauslega þýdd: „Fyrir mig snúast hæfileikar um hæfni ykkar til þess að gera það sem þið ætlið ykkur að gera. T.d. ef ætlunin er að henda pílu í miðja skotskífu, þá er stig hæfileika minna hærra þegar hæfni mín er meiri til þess að vera oft nærri (eða hitta) í skotmark mitt. Tæknin fyrir mér snýst meira um „hvernig“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 08:00
„þeir verði teknir handjárnaðir af golfvellinum“

Nú er sá tími sem flestir kylfingar sem aðrir landsmenn eru að huga að skattframtölum sínum og því kannski ekkert svo slæmt að það sé snjór úti svo ekki sé freistast til að fara í golf. En það er víðar en á Íslandi sem menn sitja sveittir yfir skattframtölunum; í mörgum ríkjum Þýskalands eru menn að reikna út skatt sinn. Fjármálaráðherra Schleswig-Holstein ríkis, Moniku Heinold,(úr flokki Græningja) tókst að móðga þýska kylfinga vegna ummæla sem eftir henni voru höfð i þýska tímaritinu Spiegel (8/2014). Þar segir Heinold í grein, sem ber titilinn „Það verður að refsa“ (þýs: Strafe muå sein): „Skattsvikarar kæra sjálfa sig aðeins ef þeir eru hræddir um Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 07:45
Evróputúrinn: Dubuisson kylfingur febrúarmánaðar

Victor Dubuisson, sem sló rækilega í gegn á WGC Accenture Match Play Championship í Arizona, í s.l. mánuði var kosinn kylfingur febrúarmánaðar á Evrópumótaröðinni. Dubuisson hlýtur að launum á grafinn disk og stóra flösku af Moët & Chandon kampavíni. Honum tókst m.a. að halda sér á lífi og knýja fram bráðabana við Jason Day, sem hafði sigur að lokum, m.a. með ótrúlegum björgunarhöggum úr kaktusaþyrkni TPC Scottsdale á 17. og 18. holu. Um þá frammistöðu hans sagði Sir Nick Faldo m.a.: „Ég sá Seve (Ballesteros) slá nokkur björgunarhögg en ekkert þeirra var eins gott og þau frá Victor. Þau voru svo sannarlega ótrúleg og forréttindi að fá að fylgjast með.“ Um útnefningu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 07:00
WGC Cadillac: Reed, Kuchar, Mahan og DJ leiða e. 2. dag

Það eru þeir Patrick Reed, Matt Kuchar, Hunter Mahan og Dustin Johnson, sem deila 1. sætinu á Cadillac heimsmótinu í Doral, Miami þegar mótið er hálfnað. Allir hafa þeir leikið á samtals 1 undir pari, 143 höggum; Reed (68 75) og hinir allir á (69 74). Allt Bandaríkjamenn í 4 efstu sætunum; 5. sætinu deila hins vegar 4 Evrópubúar: Graeme McDowell og Rory McIlory frá N-Írlandi, Ítalinn Francesco Molinari og Wales-verjinn Jamie Donaldson. Bubba Watson og Zach Johnson eru síðan í 9. sæti á 1 yfir pari. Í raun aðeins 2 högg sem skilur að efstu menn og allt opið og spennandi golfhelgi framundan! Tiger lék aðeins betur en fyrri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 05:00
GKG: Gönguskíði í stað golfs?

Hér á höfuðborgarsvæðinu hefir snjó kyngt niður og er ansi vetrarlegt eftir smá „vorvon“ sem var fyrr í vikunni. Á heimasíðu GKG hvetur klúbburinn félaga, sem aðra, til þess að nýta sér gönguskíðabraut nú um helgina, sem vallarstarfsmenn eru búnir að leggja í Leirdalnum. Í frétt á GKG segir þannig orðrétt: „Nú eru starfsmenn GKG búnir að leggja þessa fínu gönguskíðabraut um vallarsvæði GKG. Gott er að leggja bílnum við áhaldahúsið því þar byrjar brautin. Gönguskíðafólk er beðið að notast bara við brautina en ekki fara ótroðnar slóðir. Með snjó og sólar kveðju Vallarstjóri (GKG)“
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 21:30
WGC Cadillac: 30 m pútt Tiger!

Það var ekki margt sem gekk upp hjá Tiger á 2. hring Cadillac heimsmótsins í Doral, Miami. Hann byrjaði á 10. teig og setti ekki niður fugl fyrr en á par-3 4. holunni, þ.e. á seinni 9 hans þann daginn. En fuglinn var einkar glæsilegur á þessari 209 yarda (191 metra) par-3 holu. Tiger púttaði af 92 yarda (u.þ.b 30 metra) færi og boltinn datt! Hér má sjá myndskeið af púttinu góða SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

