Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 08:30

Heimslistinn: Bowditch upp um 205 sæti!

Steven Bowditch tók risastökk upp heimslistann, þ.e. fór upp um 205 sæti á heimslistanum eftir sigur sinn á Valero Texas Open. Fyrir ári síðan var hann í 569. sæti heimslistans, en fyrir mótið var hann í 339. sætinu og fór eins og segir upp um 134 sæti!  Þetta er í fyrsta sin sem Bowditch nær svo hátt á heimslistanum. Staða efstu 10 á heimslistanum skiptist með eftirfarandi hætti (4 eru frá Bandaríkjunum, 4 frá Evrópu og 2 frá Ástralíu): 1. sæti Tiger Woods, 9. 27 stig 2. sæti Adam Scott, 8,37 stig 3. sæti Henrik Stenson, 8.20 stig 4. sæti Jason Day, 6,87 stig 5. sæti Phil Mickelson, 6,29 stig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 08:15

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon í 6. sæti e. 2. dag í Georgíu

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Sunna Víðisdóttir, GR, er við keppni ásamt liði sínu Elon, í John Kirk Panther Intercollegiate mótinu. Mótið fer fram í Eagle´s Landing Country Club í Stockbridge, Georgíu-ríki og þátttakendur eru 90 frá 17 háskólum. Mótið stendur dagana 30. mars – 1. apríl 2014 og lýkur  í gær. Sunna hefir samtals leikið á 8 yfir pari, 152 höggum (77 76) og er sem stemdur í 23. sæti í einstaklingskeppninni..  Hún er á 2. besta skori Elon, sem er í 6. sæti í liðakeppninni og telur skor Sunnu því. Til þess að fylgjast með gengi Sunnu á John Kirk Panther Intercollegiate  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 08:00

$20 milljóna glæsihýsi Elínar Nordegren næstum til

Elín Nordegren, fyrrum eiginkona Tiger Woods hlaut $100 milljónir þegar hún og Tiger skildu fyrir 4 árum, en lögskilnaðurinn gekk í gegn 23. ágúst 2010. Hún hefir nú varið 1/5 hluta af þeirri upphæð í að gera upp hús sitt á North-Palm Beach í Flórída og hefir verið að vinna í því s.l. 3 ár. M.a. réðist Elín í endurbætur og gerð á húsinu þar sem það uppfyllti ekki staðla í Flórída, sem öll hús verða að uppfylla um að vera örugg í hvirfilbyljum.  En nú er allt að koma saman og verða til. Þar hefir hún skapað sér og börnum sínum og Tiger, Sam og Charlie öruggari, draumatilveru. Glæsihýsið er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 07:30

Hvað var í sigurpoka Bowditch?

Ástralinn Steven Bowditch vann s.l. sunnudag fyrsta mót sitt á PGA Tour : Valero Texas Open og mun þ.a.l. m.a. fá þátttökurétt á The Masters risamótinu, sem hefst eftir viku. Þetta verður líka fyrsta sinnið sem Bowditch tekur þátt í The Masters. Spurningar er hvaða kylfur voru í sigurpoka Bowditch?  Svarið: Þær voru eftirfarandi: Dræver: Cleveland Classic XL (Miyazaki Kusula Tour Issue 56X skaft), 7.5° 3-tré: Callaway X Hot 3Deep (Fujikura Motore Speeder VC 8.2X Tour Spec skaft), 14.5° Blendingur: Callaway X2 Hot Pro (Fujikura Motore Speeder HB 9.8X Tour Spec skaft), 18° Járn: Cleveland 588 MB (3-9; True Temper Dynamic Gold X100 skaft). Fleygjárn: Cleveland 588 Forged (True Temper Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 07:00

Westy tekur þátt í Opna skoska

Lee Westwood (Westy) verður 41 árs seinna í mánuðnum en hann er fæddur 24. apríl 1973. Hann er einn þeirra kylfinga sem átt hafa langan farsælan golfferil, m.a. verið nr. 1 á heimslistanum en …. honum hefir aldrei tekist að sigra í risamóti. Og nú er ekki seinna að vænna. Þó aðeins sé 1 vika í að The Masters risamótið hefjist og þar með bjóðist kærkomið tækifæri Westy að krækja sér í sigurí, virðist hann þó líta aðeins lengra fram á veginn og telja sig eiga meiri möguleika að sigra Opna breska. Þannig sagði hann: „Ég hlakka virkilega til að snúa aftur á Opna skoska á þessu ári. Ég hugsa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 00:15

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór og Nicholls í 6. sæti og Ari, Theodór og Arkansas Monticello í 11. sæti e. fyrri dag ULM Wallace Jones Inv.

Það eru hvorki fleiri né færri en 3 íslenskir kylfingar sem taka þátt í ULM Wallace Jones Inv., en mótið fer fram í Southern Pines golfklúbbnum í Calhoun, Louisiana. Annars vegar er það Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State og hins vegar Ari Magnússon, GKG og Theodór Emil Karlsson, GKJ og golflið Arkansas Monticello. Þátttakendur í heild eru 72 frá 14 háskólum.  Mótið stendur 31. mars – 1. apríl 2014 og lýkur því síðar í dag. Eftir fyrri dag og 2 leikna hringi er Andri Þór í 28. sæti í einstaklingskeppninni á samtals 155 höggum (76 79).  Hann er á 2. besta skori Nicholls State, sem er sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2014 | 23:59

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín í 5. sæti eftir fyrri dag Memphis Intercollegiate

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“ golflið Louisiana Lafayetta taka þátt í Memphis Intercollegiate háskólamótinu. Mótið fer fram  í Colonial Country Club í  Memphis, Tennessee.  Þátttakendur eru 84 frá 15 háskólum. Haraldur Franklín lék fyrstu tvo hringina á samtals 1 yfir pari (75 70) og deilir 5. sætinu í einstaklingskeppninni ásamt 2 öðrum. Haraldur Franklín er á besta skori Louisiana Lafayette sem er í 5. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá stöðuna í Memphis Intercollegiate eftir fyrri keppnisdag  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2014 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhanna Margrét Sveinsdóttir – 31. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Jóhanna Margrét Sveinsdóttir.  Jóhanna er fædd 31. mars 1951 og er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Jóhanna hefir tekið þátt í fjölda opinna móta og staðið sig mjög vel. Til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju með daginn getið þið komist á Fb. síðu Jóhönnu hér: Jóhanna Margrét Sveinsdóttir F. 31. mars 1951 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Tommy Bolt, 31. mars 1916 – d. 30. ágúst 2008; Miller Barber, einnig nefndur Mr. X, 31. mars 1931 (83 ára); Nanci Bowen, 31. mars 1967 (47 ára);  Wade Ormsby, 31. mars 1980 (34 ára); Chrisje de Vries, 31. mars 1988 (26 ára)   …. og …. Benedikt Sigurbjörn Pétursson   F. 31. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2014 | 10:00

Atli Már sigraði í 3. púttmóti sunnudagspúttmótaraðar FJ og Hraunkots – Inga best af konunum

Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis má finna úrslit úr 3. móti sunnudagspúttmótaraðar FJ og Hraunkots: „Þá er þriðja mótinu í púttmóti Hraunkots og FootJoy lokið og því aðeins eitt mót eftir sem verður 06. apríl. Það voru ekki nema 30 manns sem tóku þátt í þessu móti sem voru viss vonbrigði. Reyndar var mjög gott veður úti og margir nýttu sér það til að slá og æfa sveifluna. Einnig voru fjölmargir krakkar og foreldrar í æfingaferð á Spáni sem nú stendur yfir, en þau hafa verið dugleg að mæta í mótin. Úrslitin urðu eftirfarandi: 1. sæti Atli Már Grétarsson 27 pútt (13-14) 2. sæti Inga Magnúsdóttir 29 pútt (14-15) 3. sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2014 | 09:45

Phil Mickelson á ruðningsboltaleik

Nr. 5 á heimslistanum, Phil Mickelson dró sig úr Valero Texas Open á laugardaginn, vegna tognaðs innri kviðvöðva eftir að hafa með ótrúlegum hætti komist í gegnum niðurskurð deginum áður. Þegar Phil dró sig úr mótinu sagðist hann ætla til San Diego til þess að fara til læknis. Hann fór þó ekki beint af mótinu í Texas til læknisins. Það sást nefnilega til hans á ruðningsboltaleik San Antonio Spurs, sama kvöld og hann dró sig úr mótinu. Hann sagðist hafa lofað 14 ára dóttur sinni að fara með henni á leikinn og þrátt fyrir að hann væri þjáður af tognaða kviðvöðvanum úti á velli virtist hann skemmta sér ágætlega á Lesa meira