Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2014 | 23:59

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín í 5. sæti eftir fyrri dag Memphis Intercollegiate

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“ golflið Louisiana Lafayetta taka þátt í Memphis Intercollegiate háskólamótinu.

Mótið fer fram  í Colonial Country Club í  Memphis, Tennessee.  Þátttakendur eru 84 frá 15 háskólum.

Haraldur Franklín lék fyrstu tvo hringina á samtals 1 yfir pari (75 70) og deilir 5. sætinu í einstaklingskeppninni ásamt 2 öðrum.

Haraldur Franklín er á besta skori Louisiana Lafayette sem er í 5. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá stöðuna í Memphis Intercollegiate eftir fyrri keppnisdag  SMELLIÐ HÉR: