Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2016 | 12:00

GR: Jóhann Halldór púttmeistari Ecco-púttmótaraðarinnar

Á heimasíðu GR birtist eftirfarandi frétt frá Halldóri B. Kristjánssyni : „Jóhann Halldór Sveinsson púttaði best allra í vetur og varð 5 höggum betri en næstu menn á eftir. Jón Þór, Jónas Gunnars og Magnús Guðmundsson voru jafnir í öðru sæti og þurfti bráðabana til að raða þeim í sæti og varð það Jón Þór sem náði öðru sætinu, Jónas var í þriðja og Magnús í því fjórða. Liðakeppnina unnu annað árið í röð lið nr. 13, sem er skipað þeim feðgum Jón Þóri og Sindra annars vegar og Kristmundi Eggertssyni og Eggerti Kristmunds hins vegar. Endanleg úrslit Ecco-mótaraðarinnar fylgir þessum pistli eins og vera ber. Það var mikið fjör Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2016 | 09:00

LPGA: Sei Young Kim setti met og sigraði á JTBC Founders Cup

Sei Young Kim frá Suður-Kóreu sigraði á JTBC Founders Cup. Hún setti jafnframt nýtt met varðandi heildarskor en hún var á samtals 27 undir pari!!! Nr. 2 í mótinu varð nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko á samtals 22 undir pari, eða heilum 5 höggum á eftir Kim. Í 3. sæti varð síðan bandaríski kylfingurinn Jacqui Concolino og ungi, kanadíski kylfingurinn Brooke Henderson var ein af 5 sem deildu 4. sætinu.  Hinar voru: Paula Creamer, Megan Khang, Stacy Lewis og Eun-Hee Ji. Sjá má hápunkta lokahrings JTBC Founders Cup með því að SMELLA HÉR:  Til þess að sjá lokastöðuna á JTBC Founders Cup SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2016 | 07:00

Clarke um deilu sína við McGinley: „Það var mér að kenna“

Darren Clarke hefir upplýst að hann hafi bundið enda á 5 ára deilu við írska kylfinginn Paul McGinley og þar með lokið einni langdregnustu og bitrustu deilu í íþróttaheiminum á sl. árum. Clarke sagðist hins vegar alveg búast við því að það að hann leiddi lið Evrópu í Rydernum gæti vel kostað hann fleiri vini. Vinátta Clarke og McGinley rann út í sandinn þegar Clarke skipti um skoðun varðandi það að styðja vin sinn, sem sóttist eftir að verða fyrirliði liðs Evrópu 2014 (og varð það síðan) en Clarke ákvað að gefa sjálfur kost á á sér sem fyrirliða. Clarke gerði síðan allt verra þegar ljóst varð að hann yrði ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Peter Campell —— 21. mars 2016

Það er bandaríski kylfingurinn Peter Campbell, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann fæddist 21. mars 1985 og á því 31 árs stórafmæli í dag. Campbell var í La Costa Canyon High School, þar sem hann spilaði bæði golf og fótbolta. Hann var í MVP deildinni nokkrum sinnum og CIF champion lokaárið sitt og var valinn í San Diego Hall of Champions Athlete of the Year. Campbell spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði UCLA og gerðist atvinnumaður í golfi 2008. Campbell spilaði í fyrsta PGA Tour móti sínu árið 2008 þ.e. á Buick Invitational. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Myra Abigail „Daria“ Pratt (Pankhurst-, Wright-, -Karageorgevich) f. 21. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 12:00

PGA: Sjáið flott 20 m lokapútt Rory á lokaholu Bay Hill

Rory McIlroy lau keppni á Arnold Palmer Invitational í gær með því að setja niður 20 metra fuglapútt, sem jafnvel hann virtist undrandi á. Nr. 2 á heimslistanum lauk keppni T-26 á samtals 6 undir pari. Sjá má flott fuglapútt Rory á 18. á lokahring Arnold Palmer Invitational 2016 með því að SMELLA HÉR:     


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 11:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín og Ragnar Már hefja keppni í Texas í dag

Þeir Haraldur Franklín Magnús, GR og Ragnar Már Garðarsson, GKG hefja í dag leik á Lone Star Invitational í bandaríska háskólagolfinu. Mótið fer fram í Briggs Ranch golfclub í San Antonio, Texas. Þetta er fremur stórt mót (líkt og allt í Texas) en þátttakendur eru lið 17 háskóla auk einstaklinga, sem keppa í mótinu. Til þess að fylgjast með gengi þeirra Haraldar Franklíns og Ragnars Más SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Gísli Sveinbergs hefur leik í Flórída í dag

Gísli Sveinbergsson, GK og Kent State hefur leik í bandaríska háskólagolfinu í dag. Gísli tekur þátt í The Floridian, þar sem Floridian College er gestgjafi. Spilað er í Palm City í Flórída. Fylgjast má með gengi Gísla og Kent State með því að SMELLA HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 07:40

Bandaríska háskólagolfið: Sunna T-28 e. 1. dag á MSU Citrus Challenge

Sunna Víðisdóttir, GR, og golflið Elon taka um þessar mundir þátt í MSU Citrus Challenge mótinu í Sorrento Flórída. Eftir 1. dag er golflið Elon í 2. sæti, en Sunna er T-28 í einstaklingskeppninni af u.þ.b. 80 þátttakendum. Sunna er aðeins 2 höggum frá því að vera í topp-10 í einstaklingskeppninni en 1. hringinn lék hún á 75 höggum. Golf 1 mun verða með frekari fréttir af mótinu um leið og úrslit berast!


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 07:36

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst hefur leik í dag í Oregon

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU hefur í dag leik á Airstream Adventures Northwest Classic háskólamótinu, í Canby, Oregon. Það eru 87 kylfingar frá 15 háskólum, sem þátt taka í mótinu. Mótið fer fram í Willamette Valley C.C. Fylgjast má með gengi Guðmundar Ágústar og ETSU með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2016 | 06:00

PGA: Day sigraði á Bay Hill

Jason Day stóð uppi sem sigurvegari á Arnold Palmer Invitational, sem fram fór venju skv. á Bay Hill. Day lék á samtals 17 undir pari 271 höggi (66 65 70 70) Aðeins 1 höggi á eftir varð Kevin Chappell og þriðja sætinu deildu Henrik Stenson og Troy Merritt á samtals 14 undir pari, hvor. Til þess að sjá hápunkta 4. dags Arnold Palmer Invitational SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá lokastöðuna á Arnold Palmer Invitational SMELLIÐ HÉR: