Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2018 | 23:05

PGA: Koepka sigraði á PGA Championship – Tiger í 2. sæti!!!

Það var Brooks Koepka, sem hélt haus og  stóð uppi sem sigurvegari á 4. og síðasta risamóti ársins 2018, PGA Championship. Koepka lék á samtals 16 undir pari, 264 höggum (69 63 66 66). Tiger varð í 2. sæti 2 höggum á eftir á 14 undir pari, 266 höggum (70 66 66 64). Adam Scott varð þriðji á 13 undir pari, 267 höggum (70 65 65 67). Stewart Cink og John Rahm deildu síðan með sér 4. sætinu á samtals 11 undir pari, hvor. Til þess að sjá lokastöðuna á PGA Championship SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2018 | 18:00

Axel og Birgir Leifur tóku silfrið á EM í liðakeppni atvinnukylfinga

Birgir Leifur Hafþórsson og Íslandsmeistarinn í höggleik 2018 Axel Bóasson enduðu í öðru sæti á EM í liðakeppni atvinnukylfinga. Þeir töpuðu naumlega 2/0 í úrslitaleiknum gegn Spánverjunum Pedro Oriol og Scott Fernandez. Úrslitaleikurinn var spennandi og náðu íslensku leikmennirnir að búa til hörkuspennu á lokakaflanum þrátt fyrir að vera 3 holur niður þegar þrjár holur voru eftir. Birgir Leifur og Axel fengu um 6,4 milljónir kr. hvor í sinn hlut í verðlaunafé en Evrópumeistararnir fengu um 12,8 milljónir kr. hvor í sinn hlut. Birgir og Axel lögðu spænskt lið 2/1 í morgun í undanúrslitum. Birgir og Axel lönduðu þar með öðrum verðlaunum sínum á þessu móti. Í gær fögnuðu þeir Evrópumeistaratitlinum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Steinþórsdóttir – 12. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Ingunn Steinþórsdóttir. Ingunn er fædd 12. ágúst 1958 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Ingunnar til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Ingunn Steinþórsdóttir – 60 ára merkisafmæli – innilega til hamingju!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Larry Ziegler, 12. ágúst 1939 (79 ára); Birgit Henriksen, 12. ágúst 1942 (76 ára); Gunnar Magnús Sandholt, 12. ágúst 1949 (69 ára); Ingunn Steinþórsdóttir (60 ára MERKIS- AFMÆLI!!!); Þórhalli Einarsson, 12. ágúst 1961 (57 ára); Oddný Sturludóttir (42 ára); Jóhannes Georg Birkisson, 12. ágúst 1999 (19 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2018 | 10:30

Íslensku gullhafarnir í fréttum erlendis

Íslensku gullmedalíuhafarnir á Evrópuleikunum í blandaðri liðakeppni í golfi, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson er í fréttum víða erlendis. Sjá má fréttir um gullverðlaunahafana: Á vefsíðu Evrópumótaraðarinnar: „Ice-cool Iceland win gold in mixed event“ Í Scottish Herald í grein sem ber fyrirsögnina: „Silver lining for GB as Iceland take gold in European Mixed Team Championships“ Á Reuters: „Iceland become unlikely first European gold winners.“ Á ESPN: „European Championships: Iceland win inaugural mixed team golf“ Á Glasgow 2018: Golden day of golf for Iceland  

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2018 | 08:00

LET Access: Guðrún Brá lauk keppni T-38 í Svíþjóð

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, varð T-38 í Anna Nordqvist Västerås Open, sem var mót vikunnar á LET Access. Mótið fór fram í Västerås Golf Club, Bjärby, Svíþjóð dagana 8.-11. ágúst og lauk í gær. Guðrún Brá lék á samtals 10 yfir pari, 226 höggum (75 73 78) og varð T-38. Berglind Björnsdóttir, GR tók einnig þátt í mótinu en hún komst ekki í gegnum niðurskurð. Sigurvegari mótsins varð Emie Peronnin frá Frakklandi en hún lék á samtals 5 undir pari, 211 höggum (72 69 70). Til þess að sjá lokastöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 23:59

PGA: Koepka efsturm/2 högga forystu á næsta f. lokahring PGA Championship

Það er Brooks Koepka sem tekið hefir forystuna á PGA Championship, 4. og síðasta risamót ársins, fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun 12. ágúst 2018. Koepka hefir samtals spilað á 12 undir pari, 198 höggum (69 63 66). Koepka á 2 högg á þann sem er í 2. sæti þ.e. Adam Scott, sem spilað hefir á samtals 10 undir pari, 200 höggum (70 65 65). Í 3. sæti eru síðan Rickie Fowler, Jon Rahm og Gary Woodland, allir á samtals 9 undir pari, hver. Tiger er í 1. sinn í lengri tíma í sigurbaráttu á risamóti, en hann deilir 6. sæti ásamt 5 öðrum á skori upp á samtals Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 21:00

Evrópumeistarar í blandaðri liðakeppni!!!

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Axel Bóasson, Valdís Þóra Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson fögnuðu sigri í dag á meistaramóti Evrópu í blandaðri liðakeppni. Mótið fór fram á Gleneagles í Skotlandi og er hluti af meistaramóti Evrópu sem fram fer á tveimur stöðum í Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi keppni fer fram. Ólafía Þórunn og Axel voru saman í liði og Birgir Leifur og Valdís Þóra léku saman. Þau skiptust á að slá upphafshöggin á hverri holu og léku síðan einum bolta út holuna. Samanlagt skor beggja liða taldi í liðakeppninni. Ísland lék á -3 samtals og en Bretland 2 var í öðru sæti, höggi á eftir. Keppnisdagurinn var Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 20:00

Golfgrín á laugardegi 2018 (16)

Tveir óþýddir á ensku: Best Ballgolf jokes Two couples were enjoying a competitive, best ball match…wives against husbands with the losers buying lunch and a libation. On the final hole, the match was all even and one of the wives had a long, breaking, fifteen foot putt to win the match. She lined the ball up carefully and confidently stroked the winning putt. Unfortunately, it stopped three inches short of the hole…dead on line. Her husband thought that this was a riot and laughing said, „Right train, wrong ticket.“ The wife failed to see the humor and not cracking a smile replied, „No sleeper cars on that train either“   Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 19:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst varð T-4 í Svíþjóð!!!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur úr GR tók þátt í OnePartnerGroup Open, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Mótið fór fram í Knistad Golf & Country Club, í Skövde, Svíþjóð, dagana 8.-10. ágúst og lauk í gær. Guðmundur Ágúst lék á samtals 8 undir pari, 136 höggum (71 65 72) og varð T-4. Guðmundur Ágúst lék 2. hringinn á 7 undir pari, 65 glæsihöggum, skilaði hreinu skorkorti með 7 fuglum og 11 pörum. Stórglæsilegt!!!  Lokahringinn lék Guðmundur Ágúst hins vegar á pari. Flott spilamennska þetta!!! Til þess að sjá lokastöðuna á OnePartnerGroup Open  SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Ágúst Elí Björgvinsson. Ágúst Elí er fæddur 11. apríl 1995 og því 23 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og mikill FH-ingur s.s. hann á ættir til og er jafnvel talað um hann sem lang- langbesta markvörð okkar í handbolta. Auk krefjandi æfinga í handboltanum hefir Ágúst Elí staðið sig vel í ýmsum opnum mótum í golfinu á undanförnum árum; var m.a. í vinningssæti á Gamlársdagspúttmóti Hraunkots 31. desember 2008 (3. sæti); 1. sæti á Unglingamótaröð GSÍ , 21. júní 2009; í vinningssæti á Opna Teigsmótinu í Þorlákshafnarvelli 8. maí 2010 (3. sæti + nándarverðlaun á 3. braut); 2. sæti í drengjaflokk (15-16 Lesa meira