Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 14:00

6 valdir í karlalandslið Íslands í EM í liðakeppni eldri kylfinga

Evrópumót eldri kylfinga karla í liðakeppni fer fram dagana 4.-8. september 2018 á Diamond Country vellinum í Austurríki. Alls er 21 þjóð skráð til leiks. Afreksnefnd GSÍ og afreksstjóri GSÍ hafa sex karla til að taka þátt fyrir Íslands hönd. Eftirtaldir kylfingar skipa landslið Íslands: Gauti Grétarsson, NK Guðmundur Arason, GR Gunnar Þór Halldórsson, GK Jón Gunnar Traustason, GÖ Guðni Vignir Sveinsson, GS Tryggvi Valtýr Traustason, GÖ Eftirtaldar þjóðir taka þátt: Austurríki Belgía Tékkland Danmörk England Finnland Frakkland Þýskaland Ísland Írland Ítalía Lúxemborg Holland Noregur Pólland Skotland Slóvakía Spánn Svíþjóð Sviss

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2018 | 11:00

6 valdar í kvennalandslið Íslands á EM eldri kylfinga í liðakeppni

Evrópumót eldri kylfinga kvenna í liðakeppni fer fram dagana 4.-8. september 2018 á Mont Garni vellinum í Belgíu. Alls eru 19 þjóðir skráðar til leiks. Afreksnefnd GSÍ og afreksstjóri GSÍ hafa valið sex kylfinga til að taka þátt fyrir Íslands hönd. Eftirtaldir kylfingar skipa landslið Íslands: Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK Ásgerður Sverrisdóttir, GR María Málfríður Guðnadóttir, GKG Steinunn Sæmundsdóttir, GR Svala Óskarsdóttir, GL Þórdís Geirsdóttir, GK Eftirtaldar þjóðir taka þátt: Austurríki Belgía Tékkland Danmörk England Finnland Frakkland Þýskaland Ísland Írland Ítalía Holland Noregur Pólland Skotland Slóvenía Spánn Svíþjóð Sviss

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Ellý Steinsdóttir. Ellý er fædd 10. ágúst 1963 og á því 55 ára afmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Ellý Steinsdóttir (Innilega til hamingju með árin 55!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gabrielle Keiller, f. 10. ágúst 1908 – d. 23. desember 1995; Galtarviti Keflavik (98 ára); Maria Elana Astrologes Combs, 10. ágúst 1951 (67 ára); [James] Kenneth Perry, 10. ágúst 1960 (58 ára); Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, 10. ágúst 1966 (52 ára) Lori Tatum, 10. ágúst 1967 (51 árs); Rifsnes Línubátur (50 ára STÓRAFMÆLI- Innilega til hamingju!!!); Martin Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2018 | 10:00

LET Access: Guðrún Brá T-40 e. 1. dag Anna Nordqvist Västerås Open

Berglind Björnsdóttir, GR, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, léku í gær 1. hring á móti vikunnar á LET Access mótaröðinni, Anna Nordqvist Västerås Open. Guðrún Brá lék á 3 yfir pari, 75 höggum og er T-40. Efstu 45 og þær sem jafnar eru í 45. sæti komast í gegnum niðurskurð.  Berglind er því miður fyrir neðan niðurskurðarlínu eftir 1. dag er T-114 en hún lék á 12 yfir pari, 81 höggi. Mótinu lýkur á laugardaginn. Eftir 2. hring í dag verður skorið niður. Báðar hafa þær Berglind og Guðrún leikið á LET Access mótaröðinni á tímabilinu, en betur hefur gengið hjá Guðrúnu Brá, sem er í 69. sæti stigalistans. Berglind Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 23:00

PGA: Gary Woodland efstur á PGA Championship – Hápunktar 1. dags

Það er Gary Woodland, sem er í forystu eftir 1. dag PGA Championship, 4. og síðasta risamóti ársins. Woodland lék 1. hring á 6 undir pari, 64 höggum. Í 2. sæti er Rickie Fowler, 1 höggi á eftir, en hann lék á 5 undir pari, 65 höggum. Þriðja sætinu deila síðan Brandon Stone og Zach Johnson, á 4 undir pari, 66 höggum. Tiger Woods er meðal keppenda og lék hann 1. hring á sléttu pari, 70 höggum og er T-48 ásamt 13 öðrum frábærum kylfingum, þ.á.m. Rory McIlroy, Sergio Garcia, Adam Scott, Bubba Watson og Thorbjörn Olesen. Til þess að sjá hápunkta 1. dags PGA Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þess að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 18:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst T-4 e. 2. dag í Svíþjóð

Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur úr GR tekur þátt í OnePartnerGroup Open, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Mótið fer fram í Knistad Golf & Country Club, í Skövde, Svíþjóð. Guðmundur Ágúst er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum (71 65) og er T-4 eftir .2 dag. Guðmundur Ágúst lék 2. hringinn á 7 undir pari, 65 glæsihöggum, skilaði hreinu skorkorti með 7 fuglum og 11 pörum. Stórglæsilegt!!! Sjá má stöðuna í OnePartnerGroup Open með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir – 9. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagins er Hrafnhildur Ósk Skúladóttir. Hrafnhildur Ósk er fædd 9. ágúst 1977 og á því 41 árs afmæli í dag. Hún er gift Viktor Hólm Jónmundssyni og eiga þau 3 börn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið hér að neðan Hrafnhildur Ósk Skúladóttir – 41 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Erna Elíasdóttir, 9. ágúst 1949 (69 ára) Jón Svavar Úlfljótsson, 9. ágúst 1954 (64 ára); Sven Strüver, 9. ágúst 1967 (51 árs); Patrick Sheehan, 9. ágúst 1969 (49 ára); Virginie Rocques, (frönsk- spilar á LET Access) 9. ágúst 1971 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 12:00

Íslensku kylfingarnir standa sig vel á EM atvinnukylfinga

Fjórir íslenskir atvinnukylfingar eru á meðal keppenda á Evrópumóti í liðakeppni atvinnukylfinga sem fram fer á Gleneagles vellinum í Skotlandi dagana 8.-12. ágúst. Alls eru 16 þjóðir sem taka þátt og er hvert lið skipað tveimur leikmönnum. Axel Bóasson (GK) og Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) eru saman í liði. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) eru saman í liði. Og í lokaumferðinni verða liðin skipuð einum karli og einni konu. Birgir Leifur og Axel hafa unnið báðar viðureignir sínar til þessa. Þeir leika til úrslita um laust sæti í undanúrslitum mótsins gegn Noregi í lokaumferðinni. Birgir og Axel lögðu Belgíu og Ítalíu í fyrstu tveimur umferðunum. Valdís Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 09:00

Hulda Clara og Ingvar Andri fara á Ólympíuleika ungmenna í Argentínu

Ingvar Andri Magnússon (GKG) og Hulda Clara Gestsdóttir (GKG) spila golf, fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikum ungmenna, YOG, sem fram fara í Buenos Aires í Argentínu 2018. Ingvar Andri og Hulda Clara verða fyrstu íslensku kylfingarnir sem keppa í golfi á móti sem tengist Ólympíuleikunum. Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 14 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðinna. Fyrstu sumarleikarnir fóru fram í ágúst 2010 í Singapore og fyrstu vetrarleikarnir fóru fram í janúar 2012 í Austurríki. Ísland hefur átt þátttakendur á leikunum frá upphafi. Næstu sumarleikar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 8. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er sigurvegari Opna bandaríska 2012, Webb Simpson. Webb sem í raun heitir James Frederick Simpson fæddist 8. ágúst 1985 og á því 33 ára afmæli í dag. Sem áhugamaður var hann í sigursælum liðum Bandaríkjanna í Walker Cup og Palmer Cup 2007. Á háskólaárum sínum spilaði hann með golfliði Wake Forest og var þar á Arnold Palmer golfskólastyrk. Eftir að Simpson gerðist atvinnumaður spilaði hann fyrst á Nationwide Tour (sem nú heitir Web.com Tour ekki þó eftir Webb Simpson 🙂 ) og varð 2 sinnum í 2. sæti þar. Á Q-school PGA Tour varð hann jafn öðrum í 7. sæti árið 2008 og spilaði því að PGA Tour Lesa meira