GV: Eyjakonur Íslandsmeistarar í 2. deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba
Glæsileg frammistaða Eyjakvenna á 80 ára afmælisári GV!!! Íslandsmót golfklúbba 2018 fór fram dagana 10-12. ágúst á Vestmannaeyjavelli. Sigurvegarar í 2. deild kvenna urðu heimakonurnar í GV!! Þær lönduðu 1. sætinu eftir að hafa þurft að fara í 8 holu bráðabana til að skera úr um úrslitin. Úrslitin í 2. deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba 2018 er því eftirfarandi: 1. sæti GV 2 sæti GL 3. sæti GFB 4. sæti NK 5. sæti GOS 6. sæti GHG Það verða því konurnar í GV, sem spila í 1. deild að ári liðnu, en bæði GV og GL báðir klúbbar voru með 11 vinninga í riðlakeppninni, en GV sigraði með betri innbyrðisstöðu gegn GL Lesa meira
Kristin Gillman sigraði á US Women´s Amateur
Kristin Gillman sigraði í 2. sinn á US Women´s Amateur nú um helgina. Hún sigraði Jiwon Jeon frá S-Kóreu sannfærandi 7&6 en í mótinu er spiluð holukeppni. Gillman bættist því nú um helgina í hóp Juli Inkster, JoAnne Carner og Danielle Kang sem unnið hafa þetta mót oftar en 1 sinni. Fyrsti sigurinn var í raun sjokk fyrir hina 16 ára Gillman, sem næstum því hefði ekki tekið þátt, en hún hafði betur gegn kanadísku ungstirni þá að nafni Brooke Henderson. „Ég hugsa að þessi (sigur) hafi verið miklu erfiðari,“ sagði Gillman „… í hvert sinn sem ég kem aftur þá hef ég alltaf talað um – eins og í þessari Lesa meira
GÁ: Sigrún og Victor Rafn klúbbmeistarar 2018
Golfklúbbur Álftaness (GÁ) hélt meistaramót sitt dagana 9.-11. ágúst sl. Þátttakendur í ár, sem luku keppni voru 34 voru og leiknir voru 3 x 18 hringir. Klúbbmeistarar GÁ 2018 eru Sigrún Sigurðardóttir og Victor Rafn Victorsson. Sjá má úrslit í öllum flokkum hér fyrir neðan: 1 .flokkur karla: 1 Victor Rafn Viktorsson GM 0 F 32 36 68 2 72 76 68 216 18 2 Vignir Brynjólfsson GÁ 3 F 43 36 79 13 73 76 79 228 30 3 Einar Georgsson GÁ 7 F 38 40 78 12 78 72 78 228 30 4 Árni Knútur Þórólfsson GÁ 12 F 39 50 89 23 76 82 89 247 49 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Betsy King ——— 13. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Betsy King. Betsy fæddist í Reading, Pennsylvaníu 13. ágúst 1955 og á því 63 ára afmæli í dag. Hún komst á LPGA árið 1977 og vann á ferli sínum 6 risatitla og 34 mót á LPGA. Hún er til dagsins í dag sá bandaríski kvenkylfingur sem hefir verið efst á peningalistanum (1993). Árið 1995 var King tekin í frægðarhöll kylfinga. King spilaði 5 sinnum í bandaríska Solheim Cup liðinu (1990, 1992, 1994, 1996, 1998) og var fyrirliði bandaríska Solheim Cup liðsins 2007 og er þá fátt eitt talið af afrekum og viðurkenningum King. Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Ben Hogan 13. ágúst 1912 Lesa meira
Hvað var í sigurpoka Koepka?
Eftirfarandi kylfur voru í sigurpoka Brooks Koepka á PGA Championship risamótinu: Dræver: TaylorMade M3 (Mitsubishi Diamana D+ 70TX skaft), 9.5°. 3-tré: TaylorMade M2 Tour HL (Mitsubishi Diamana D+ 80TX skaft), 16.5°. Járn: Nike Vapor Fly Pro (3-járn; Fujikura Pro 95 Tour Spec X skaft), Mizuno JPX-900 Tour (4-PW; True Temper Dynamic Gold Tour Issue X100 sköft) Fleygjárn: Titleist Vokey SM7 (52-12F, 56-10S, 60-08M°; True Temper Dynamic Gold Tour Issue S400 sköft). Pútter: Scotty Cameron T10 Select Newport 2. Bolti: Titleist Pro V1x.
GBR: Ásta og Bjarni klúbbmeistarar 2018
Dagana 9.-11. ágúst sl. fór fram Meistaramót Golfklúbbs Brautarholts. Brautarholtið hefir nú verið stækkað í glæsilegan 12 holu golfvöll og er óhætt að segja að hann sé meðal einhverra alflottustu valla landsins. Meistaramótið í ár var 2. meistaramótið sem haldið hefir verið í sögu klúbbsins og í bæði skiptin fagnaði Bjarni Pálsson klúbbmeistaratitli. Í ár var fyrsti kvenklúbbmeistarinn krýndur en það var Ásta Pálsdóttir. Í ár luku 10 keppni í Meistaramóti GBR; 8 karl- og 2 kvenkylfingar. Keppnisfyrirkomulag var 3 daga punktakeppni. Klúbbmeistarar GBR 2018 eru eins og áður segir Ásta Pálsdóttir og Bjarni Pálsson. Heilarúrslit urðu eftirfarandi: Konur: 1 Ásta Pálsdóttir GBR 25 F 12 13 25 24 28 Lesa meira
GBO: Valdís og Unnsteinn klúbbmeistarar 2018
Meistaramót Golfklúbbs Bolungarvíkur (GBO) fór fram á Syðridalsvelli, dagana 10.-11. ágúst sl. Þátttakendur í ár, sem luku keppni voru 8 en 15 voru skráðir í meistaramótið. Spilað var í einum opnum flokki. Keppnisform var höggleikur án fogjafar. Klúbbmeistarar GBO 2018 eru þau Valdís Hrólfsdóttir og Unnsteinn Sigurjónsson. Heildarúrslit í Meistaramóti GBO eru eftirfarandi: 1 Unnsteinn Sigurjónsson GBO 6 F 41 42 83 12 77 83 160 18 2 Páll Guðmundsson GBO 10 F 41 43 84 13 83 84 167 25 3 Wirot Khiansanthia GBO 8 F 43 43 86 15 84 86 170 28 4 Runólfur Kristinn Pétursson GBO 6 F 42 40 82 11 92 82 174 32 Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Brooks Koepka (2018)?
Brooks Koepka sigraði í gær á 3. risamóti sínu, PGA Championship. Áður hefir hann sigrað tvívegis á Opna bandaríska 2017 og 2018. Alls hefir hann sigrað í 11 mótum á atvinnumannsferli sínum. En hver er kylfingurinn? Koepka fæddist í Wellington, Flórída 3. maí 1990 og er því 28 ára. Hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Florida State University þar sem hann vann 3 sinnum einstaklingskeppnir og varð þrisvar All-American. Koepka spilaði á Opna bandaríska risamótinu 2012 meðan hann var enn áhugamaður, en reyndar er besti árangur hans í risamótum glæsilegur T-4 árangur á Opna bandaríska 2014. Eftir að hafa ekki náð niðurskurði á Opna bandaríska 2012 gerðist Koepka atvinnumaður Lesa meira
GR: GR Íslandsmeistari golfklúbba í kvennaflokki
Það var lið GR sem varð Íslandsmeistari golfklúbba í kvennaflokki 2018. Lið Íslandsmeistara GR var skipað eftirfarandi konum: Ásdís Valtýsdóttir Eva Karen Björnsdóttir Gerður Hrönn Ragnarsdóttir Halla Björk Ragnarsdóttir Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir Ragnhildur Kristinsdóttir Ragnhildur Sigurðardóttir Saga Traustadóttir Árni Páll Hansson – Liðsstjóri GR konur höfðu betur gegn sveit GK í úrslitaleiknum.
GK: Keilir Íslandsmeistari golfklúbba í karlaflokki
Karlalið Keilis hélt uppteknum hætti og stóðusig frábærlega á Íslandsmóti golfklúbba með glæsilegum sigri þar. Keilir og GM léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla á Garðavelli á Akranesi, Keilir hafði betur 3/2. Þetta er í 15. sinn sem Keilir fagnar sigri í þessari keppni. Árangur keppnisfólks Keilis á árinu hefur verið ævintýralegur, Keilir hefur sigrað í öllum mótum á þessu ári í karlaflokki, alla Íslandsmeistartitla og öll mót á Eimskipsmótaröðinni. Eina mótið sem Keilir hefur ekki sigrað í karlaflokki var háð á síðasta ári og tilheyrir mótaröðinni 2017-2018. Enn á árinu 2018 hefur Keilir einsog áður sagði sópað öllu til sín í karlaflokki.










