Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2018 | 20:00

Evróputúrinn: Wu efstur á KLM e. 1. dag

Kínverski kylfingurinn Ashun Wu er efstur eftir 1. dag á móti vikunnar á Evróputúrnum, KLM Open. Hann lék á 7 undir pari, 64 höggum. Enski kylfingurinn Chris Wood er síðan í 2. sæti, 1 höggi á eftir á 6 undir pari, 65 höggum og hvorki fleiri né færri en 13 kylfingar deila síðan 3. sætinu, en þeir léku allir á 5 undir pari, 66 höggum; meðal þeirra ítölsku kylfingarnir Renato Parratore og Andrea Pavan og hinn enski Eddie Pepperell. Til þess að sjá stöðuna á KLM Open SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 1. dags á KLM Open SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2018 | 19:00

LET Access: Guðrún Brá T-36 e. 1. dag WPGA Int. Challenge

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á LET Access mótaröðinn. Þetta er WPGA International Challenge 2018 mótið, sem fram fer Guðrún lék 1. hring mótsins á 2 yfir pari, 74 höggum og er T-36 eftir 1. dag. Efst í mótinu eftir 1. dag er enski kylfingurinn Felicity Johnson, en hún lék á 5 undir pari, 67 höggum. Til þess að sjá stöðuna á WPGA International Challenge 2018 mótinu SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2018 | 18:00

Evían 2018: Ciganda og Torres efstar e. 1. dag

Það eru Solheim Cup kylfingurinn Carlota Ciganda og Maria Torres frá Puerto Rico, sem deila forystunni eftir 1. dag á 5. og síðasta risamóti ársins 2018 í kvenngolfinu, Evian Championship. Báðar léku þár Ciganda og Torres á 6 undi pari, 65 höggum. Torres er e.t.v. ekki þekktasti kylfingur LPGA og má sjá eldri kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR:  Ein í 3. sæti eftir 1. dag er bandaríski kylfingurinn Austin Ernst en hún kom í hús á 5 undir pari, 66 höggum. Risamótið fer venju skv. fram í Evian-Les-Bains í Frakklandi. Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er ekki meðal keppenda. Til þess að sjá stöðuna á Evian Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þorsteinn Hallgrímsson – 13. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Þorsteinn Hallgrímsson. Þorsteinn er fæddur 13. september 1969 og er því 49 ára í dag. Þorsteinn er kvæntur Ingibjörgu Valsdóttur og þau eiga þau tvö börn: Kristínu Maríu og Val Þorsteinn.  Sjá má viðtal Golf 1 við Þorstein með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Steina til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Þorsteinn Hallgrímsson (49 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Yurio Akitomi, 13. september 1950 (68 ára); Ívar Örn Arnarson, GK f. 13. september 1963 (55 ára) ….. og ….. Bæjarblaðið Mosfellingur Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaug María Óskarsdóttir – 12. september 2018

Það er Guðlaug María Óskarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Guðlaug María er fædd 12. september 1968 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!!! Guðlaug María er í Golfklúbbi Akureyrar. Hún sigraði m.a. á Arctic Open 2012 og var líka sigurvegari í 1. flokki kvenna. Hún hefir oftar en 1 sinni verið fyrirliði kvensveita GA. Komast má á facebook síðu Guðlaugar Maríu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Guðlaug María Óskarsdóttir (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dúfa Ólafsdóttir, 12. september 1945 (73 ára); Charles Henry „Chip” Beck, 12. september 1956 (62 ára); Salthúsið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2018 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir og félagar í 3. sæti á UC Ferguson Classic

Klúbbmeistari GSS, Arnar Geir Hjartarson, varð T-17 á US Ferguson Classic mótinu sem fram fór 5. september sl. Þátttakendur í mótinu voru 81 frá 14 háskólum og fór mótið fram í á Vesturvelli Lincoln Park golfstaðarins, í Oklahoma. Arnar Geir lék samtals á 2 yfir pari, 215 höggum (69 72 74). Lið Arnars Geirs Missouri Valley varð í 3. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á US Ferguson Classic með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Arnars Geirs og Missouri Valley er á morgun 13. september 2018.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2018 | 13:30

Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar og Hlynur kepptu á Lone Star

Björn Óskar Guðjónsson, GM og Hlynur Bergsson, GKG, kepptu báðir á Lone Star Invitational sem fram fór á TPC Oaks vellinum í San Antonio, Texas, dagana 10.-11. september 2018. Þátttakendur voru 84 frá 15 háskólum. Björn Óskar varð í 48. sæti – lék á samtals 9 yfir pari, 153 höggum (80 73). Lið Björns Óskars, The Ragin Cajuns varð í 10. sæti í liðakeppninni. Hlynur lék á 12 yfir pari, 156 höggum (79 77) og lið hans North Texas varð T-63. Lið Hlyns, North Texas varð í 9. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Lone Star Invitational með því að SMELLA HÉR:  Björn Óskar keppir næst 14.-16. september n.k. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2018 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín og Albany sigruðu í Crosstown Challenge

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Albany sigruðu Siena háskóla í árlegri viðureign skólanna. Heildarskor lið Albany var 300 meðan heildarskor Siena var 332 og því þó nokkur munur á liðum. Helga Kristín lék á 80 höggum og var á 4. besta skorinu í liði sínu. Þetta er í 5. sinn í röð sem Albany vinnur viðureign milli skólanna. Sjá má umfjöllun á vefsíðu Albany um mótið með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Helgu Kristínar og Albany verður haldið 15.-16. september n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2018 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún T-14 á Redbird Inv.

Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK, tók þátt í Redbird Invitational ásamt liði sínu Drake í bandaríska háskólagolfinu. Mótið fór fram 10.-11. september oglauk í gær. Sigurlaug stóð sig best í liði sínu, varð jöfn 2 öðrum í 14. sæti. Skor Sigurlaugar var  11 yfir pari, 227 högg (80 73 74). Lið Drake hafnaði í 8. sæti í liðakeppninni. Sigurlaug Rún var ekki eini Íslendingurinn í mótinu því Ragnhildur Kristinsdóttir, GR keppti einnig í mótinu og má sjá sérstaka grein um hana á öðrum stað hér að Golf1.is. Sjá má lokastöðuna í Redbird Invitational með því sð SMELLA HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2018 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn varð í 2. sæti og Gunnar í 25. sæti á Central Kansas Classic!!!

Birgir Björn Magnússon og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, Bethany, tóku þátt í Central Kansas Classic mótinu, sem fram fór dagana 10.-11. september í McPherson, Kansas. Birgir Björn lauk keppni á glæsilegu skori 5 undir pari, 205 höggum (69 68 68) og varð í 2. sæti í einstaklingskeppninni af 53 keppendum. Lið Birgis Björns, Bethany,  varð í 4. sæti af 8 liðum sem þátt tóku í liðakeppninni. Það voru tveir Íslendingar, sem kepptu í mótinu og landaði Gunnar Guðmundsson, sem nýlega er genginn til liðs við Bethany 25. sætinu. Skor hans var 22 yfir pari, 232 högg (80 77 75) og lék hann sífellt betur eftir því sem leið á Lesa meira