Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2018 | 21:00

Bandaríska háskólagolfið: Arna Rún lauk keppni í Indiana

Arna Rún Kristjánsdóttir, GM lék í fyrsta móti sínu í bandaríska háskólagolfinu, með liði sínu Grand Valley State University (GVSU) í Allendale, í Michigan, dagana 9.-10. september og lauk mótinu í gær. Fyrsta mót Örnu Rún var Ulndy Fall Invitational, sem fram fór í Prairie View golfklúbbnum, í Carmel, Indiana. Arna Rún hafnaði í 71. sæti í einstaklingskeppninni af 85 keppendum, en hún keppti sem einstaklingur og tók ekki þátt í liðakeppninni. Arna Rún lék betur og betur eftir því sem leið á mótið, en hún lék á samtals 32 yfir pari, 248 höggum (88 82 78). Lið Örnu Rún, GVSU lauk keppni í 6. sæti af 15 liðum, sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2018 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur og EKU í 2. sæti á Redbird Inv.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu Eastern Kentucky University (EKU) tóku þátt í Redbird Invitational mótinu, sem fram fór 9.-10. september 2018 og lauk í gær. Ragnhildur lék á samtals 13 yfir pari, 229 höggum ( 80-74-75). Hún varð í 18. sæti af 84 keppendum í einstaklingskeppninni. Lið EKU landaði 2. sætinu af 14 skólaliðum. Sjá má lokastöðuna á Redbird Invitational með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Ragnhildar og EKU er 17. september n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2018 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Tumi Kúld frábær í 1. móti sínu

Tumi Hrafn Kúld spilar með golfliði Western Carolina University (WCU) í bandaríska háskólagolfinu. Hann tók þátt í fyrsta móti sínu fyrir háskólalið sitt, sem var Invitational at the Ocean Course. Mótið fór fram 9.-10. september á Ocean Course á Kiawah Island í Suður-Karólínu og lauk því í gær. Tumi Hrafn lék á 1 yfir pari, 73 höggum – báða dagana.  Tumi Hrafn varð T-10 af 81 keppanda í mótinu. Farið var fögrum orðum um frumraun Tuma Hrafns í bandaríska háskólagolfinu á vefsíðu WCU, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:  Lið WCU varð í 14. og síðasta sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Invitational at the Ocean Course með Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jeff Sluman ——– 11. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Jeffrey George (Jeff) Sluman. Sluman fæddist 11. september 1957 í Rochester, New York og á því 61 árs afmæli í dag. Hann átti heldur óvenjulegan feril. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1980. Meðan að flestir sigra á þegar þeir eru 20-30 ára þá vann Sluman ekki fyrsta mótið sitt fyrr en hann var 30 ára, en þá líka risamót þ.e. PGA Championship risamótið 1988. Síðan gekk ekkert sérstaklega í 10 ár en í kringum 40 ára aldurinn fór Sluman að ganga vel og hann sigraði í hverju mótinu á fætur öðru. Sluman hefir alls sigrað í 15 mótum sem atvinnumaður, þar af 6 mótum á PGA Tour Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2018 | 14:00

GO 25 ára – Eftirminnilegt afmælisár

Það var fjölmenni í golfskálanum á Urriðavelli á frídegi verslunarmanna þegar haldið var formlegt afmælisboð í tilefni af 25 ára afmæli Golfklúbbsins Odds. Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri GO ávarpaði gesti og til máls tóku Elín Hrönn Ólafsdóttir formaður GO, Óskar G. Sigurðsson fyrsti formaður GO, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ og Júlíus Rafnsson fyrrum forseti GSÍ. Elín Hrönn veitti fyrir hönd golfklúbbsins þeim Svavari Geir Svavarsyni og Inga Þór Hermannssyni gullmerki GO fyrir þeirra störf á liðnum árum. Í máli sínu fór hún yfir það að Svavar Geir hefði verið í klúbbnum nánast frá stofnun hans og verið einn af þeim fyrstu sem skráðir voru í GO án aðildar að Oddfellowreglunni. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Dagný Þórólfsdóttir – 10. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Dagný Þórólfsdóttir. Dagný er fædd 10. september 1958 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Dagný er í Golfklúbbi Mosfellsbæjara. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn!!! Dagný Þórólfsdóttir  (Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Arnold Palmer, 10. september 1929 (Hefði orðið 89 ára); Alfreð Viktorsson f. 10. september 1932 (86 ára); Bíóhöllin Akranesi, 10. september 1942 (76 ára); Lundinn Veitingahús í Vestmannaeyjum, 10. september 1945 (73 ára); Larry Gene Nelson, 10. september 1947 (71 árs); Michael Zinni 10. september 1948 (70 ára STÓRAFMÆLI!!!); Bill Rogers 10. september 1951 (67 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2018 | 18:00

Sveinn Snorrason látinn

Sveinn Snorrason, hrl.  fæddist 21. maí 1925 og fagnaði 93 ára afmæli sl. vor.  Hann lést á heimili sínu í Reykjavík, 3. september s.l. Sveinn hóf rekstur lögmannsstofu árið 1959, sem í dag er ein stærsta lögmannsstofa Íslands, LEX, þar sem starfandi eru um 40 lögmenn auk fjölda annarra starfsmanna.  Hann varð m.a. heiðursfélagi LMFÍ 1996. Sveinn var lögmaður af bestu sort, þeirri sem vildi semja og sætta fremur en að standa í málaferlum. Sveinn var ástríðukylfingur. Minnisstætt er þegar hann spilaði á aldri sínum í Kiðjaberginu, fyrir 6 árum, laugardaginn 2. júní 2012, þegar hann tók þátt í Opna Húsasmiðjumótinu á Kiðjabergsvelli, en þár lék hann á 87 höggum. Hann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2018 | 17:00

LET: Ólafía Þórunn lauk keppni T-11 í Frakklandi

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir lauk keppni á Lacoste Ladies Open de France. Ólafía varð T-11, þ.e. deildi 11. sætinu í mótinu ásamt þeim Oliviu Cowan frá Þýskalandi, hinni skosku Carly Booth (sjá eldri kynningu Golf 1 á Booth með því að SMELLA HÉR:) og heimakonunni Celine Herbin (sjá eldri kynningu á Herbin með því að SMELLA HÉR:) Samtals lék Ólafía  á 7 undir pari, 277 höggum (71 68 68 70). Sigurvegari mótsins var Solheim Cup kylfingurinn sænski og Íslandsvinurinn Caroline Hedwall, en hún lék á 12 undir pari, 272 höggum (69 71 70 62) og átti hún sigurinn að þakka einstaklega glæsilegum lokahring. Rifja má upp að Caroline Hedwall var valin nýliði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Sigrún Helga Diðriksdóttir, Grímur Þórisson og Signý Arnórsdóttir – 9. september 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru Sigrún Helga Diðriksdóttir Íslandsmeistari kvenna í höggleik 2015 Signý Arnórsdóttir og stórkylfingurinn Grímur Þórisson, GR og GÓ. Sigrún Helga er fædd 9. september 1958 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Signýjar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Sigrún Helga Diðriksdóttir – Innilega til hamingju með 60 ára merkisafmælið!!! Signý er fædd 9. september 1990 og því 28 ára safmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og stigameistari GSÍ 2011, 2012,2013 þ.e. þrjú ár í röð. Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Signýju Arnórsdóttur með því að SMELLA HÉR: Komast má á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2018 | 14:00

Evróputúrinn: Fitz sigraði í Crans

Það var enski kylfingurinn Matthew Fitzpatrick eða „Fitz“ eins og hann er kallaður sem stóð uppi sem sigurvegari í Omega European Masters og tókst því að verja titil sinn frá því í fyrra. Fitz varð að hafa fyrir sigrinum því hann kom ekki fyrr en eftir bráðabana við danska kylfinginn Lucas Bjerregaard – reyndar á 1. holu bráðabanans, en báðir voru á samtals 17 undir pari eftir hefðbundið 72 holu spil. Fitz fékk fugl en Bjerregaard tapaði á parinu. Þetta var 6. sigur  Fitz á Evrópumótaröðinni, en hann er nýorðinn 24 ára – er fæddur 1. september 1994. Til þess að sjá lokastöðuna á Omega European Masters SMELLIÐ HÉR:  Til þess að Lesa meira