LET Access: Guðrún Brá komst ekki g. niðurskurð á WPGA Int. Challenge
Íslandsmeistarinn í höggleik 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, tók þátt í móti vikunnar á LET Access mótaröðinni. Þetta var WPGA International Challenge 2018 mótið, sem fram fór í Stoke by Nayland Hotel Golf & Spa í Englandi, dagana 13.-15. september 2018. Guðrún Brá komst ekki í gegnum niðurskurð, lék á samtals 8 yfir pari, 152 höggum (74 78). Niðurskurður var miðaður við samtals 4 yfir pari, eða betra. Sigurvegari mótsins varð belgíska stúlkan Manon de Roey, en hún lék á 11 undir pari, líkt og Lydia Hall og varð því að koma til bráðabana milli þeirra, sem de Roey hafði betur í. Sjá má eldri kynningu Golf 1 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Bryson DeChambeau – 16. september 2018
Það er Bryson DeChambeau, sem er afmæliskylfingur dagsins. Bryson er fæddur 16. september 1993 og er því 25 ára. Segja má að árið 2018 hafi verið ár DeChambeau, því hann hefir sigrað í 3 PGA mótum á árinu og 4 allt í allt. Síðasti sigur hans kom einmitt í þessum mánuði 3. september 2018 á Dell Technologies Championship. Sjá má eldri kynningu Golf 1 á afmæliskylfingnum með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: George Duncan, 16. september 1883-15. janúar 1964; Jerry Haas, 16. september 1963 (55 ára); Iceland Hiking (54 ára)…. og ….. Reykjavik Fasteignasala (25 ára). Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli Lesa meira
Golfgrín á laugardegi 2018 (19)
Hér koma nokkrar grundvallarreglur (á ensku) sem hefði átt að hafa í huga ÁÐUR en ákveðið var að byrja í golfi: 1 Don’t buy a putter until you’ve had a chance to throw it. 2 Never try to keep more than 300 separate thoughts in your mind during your swing. 3 When your shot has to carry over a water hazard, you can either hit one more club or two more balls. 4 If you’re afraid a full shot might reach the green while the foursome ahead of you is still putting out, you have two options: you can immediately shank a lay-up or you can wait until the green Lesa meira
Ryder Cup 2018: Fleetwood segir Tiger og Phil enga ógn við lið Evrópu
„Tiger Woods og Phil Mickelson eru engin ógn við lið Evrópu í 2018 Ryder bikarnum,“ sagði nýliðinn í liði Evrópu, sem komst sjálfkrafa í liðið, Tommy Fleetwood. Fleetwood er nr. 1 í Evrópu og hefir átt feykigott ár, í ár, m.a. var hann nærri því að sigra fyrsta risatitil sinn á Opna bandaríska, en aðeins munaði 1 höggi á honum og Brooks Koepka. Hinn 27 ára Fleetwood deildi lægsta skorinu, 63 höggum í Shinnecock Hills golfklúbbnum og er fullur sjálfstrausts fyrir Ryderinn. Fleetwood er einn af 5 nýliðum í lið Evrópu og Björn hélt aftur af sér að velja fleiri nýliða í vali sem hann hafði, en hann sem fyrirliði fékk Lesa meira
Nordic Golf League: Andri Þór lauk keppni best ísl. keppendanna á Tinderbox
Þrír íslenskir kylfingar kepptu á Tinderbox Charity Challenge, en mótið var hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Þetta voru þeir Guðmundur Ágúst Kristjásson, Ólafur Björn Loftsson og Andri Þór Björnsson, sem allir komust í gegnum niðurskurð. Mótið fór fram dagana 12.-14. september s.l. í Odense Eventyr Golfklúbbnum í Óðisvéum í Danmörku og lauk því í gær. Sá sem stóð sig best íslensku keppendanna var Andri Þór, en hann lék á samtals 3 undir pari, 213 höggum (72 71 70) og varð T-16, þ.e. deildi 16. sæti með 4 öðrum af þeim 51 keppanda, sem komst í gegnum niðurskurð. Guðmundur Ágúst lék á samtals sléttu pari, 216 höggum (75 68 73). Hann varð T-29 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Shi Hyun Ahn —– 15. september 2018
Það er Shi Hyun Ahn (á kóreönsku: 안시현) sem er afmæliskylfingur dagsins er Ahn er fædd 15. september 1984 og á því 34 ára afmæli í dag! Ahn gerðist atvinnumaður í golfi 2002 og hefir á ferli sínum sigrað 1 sinni á LPGA og 1 sinni á KLPGA. Mótið sem Ahn sigraði á á LPGA mótaröðinni var CJ Nine Bridges Classic, sem fram fór í Suður-Kóreu 2003. Ahn var 19 ára, 1 mánaðar og 18 daga þegar hún vann og þar með yngsti sigurvegari á LPGA móti, sem ekki var bandarísk, í sögu mótaraðarinnar. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Karsten Solheim 15. september 1911 (hefði orðið Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir T-8 og Missouri Valley í 1. sæti á Graceland Fall Inv.
Fimmtudaginn sl. 13. september tók Missouri Valley, lið Arnars Geirs Hjartarsonar, klúbbmeistara GSS, þátt í Graceland Fall Invite, í bandaríska háskólagolfinu. Einungis var spilaður einn 18 holu hringur og tóku þátt 56 kylfingar frá 10 háskólaliðum. Mótið fór fram í Lamoni Country Club í Lamoni, Iowa. Arnar Geir varð T-8 með skor upp á 4 yfir pari, 74 högg og reyndar voru 5 félagar hans í Missouri Valley meðal efstu 10 og varð liðið því í 1. sæti. Sjá má úrslitin í Graceland Fall Invite með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Arnars Geirs og félaga fer fram 17. september n.k. Aðalmyndagluggi: Arnar Geir fyrir miðju og félagar hans í Missouri Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Arnar H. Ævarsson – 14. september 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Arnar H. Ævarsson. Arnar er fæddur 14. september 1964 og á því 54 ára afmæli í dag!!! Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Arnar er kvæntur Ólöfu Baldursdóttur og eiga þau Arnar Gauta, Baldur og Kolbrúnu Lilju. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Arnar H Ævarsson, GK (54 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Anna Vilhjálms, 14. september 1945 (73 árs); Jón Björgvin Stefánsson, GR, 14. september 1951 (67 ára), Guðrún Ásgerður Jónsdóttir 14. september 1959 (59 ára); Hafdis Gudmunds, 14. september 1967 (51 árs); Lesa meira
Sala á miðum á Tour Championship upp um 170% vegna Tiger
Tiger Woods er ekki bara aftur farinn að keppa – hann bætir sig með hverju mótinu – er í góðu formi og tímaspursmál hvenær hann fer að taka eitthvert mótið. Hann er með í lokamóti FedExCup mótaraðarinnar, Tour Championship, sem fram fer 20.-23. september n.k. og það eitt hefir valdið því að sala á miðum á mótið hefir rokið upp um 170% frá árinu áður. Eftirspurnin er í hámarki, og Vivid Seats, sem sjá um miðasölu á Tour Championship segja dagspassa á mótið kosta $65 og þeir rjúki út eins og heitar lummur! Jafnframt hefir umferð um síðuna þeirra aukist um 65% frá síðasta ári. Tiger hefir sigrað tvívegis á Lesa meira
Nordic Golf League: 3 íslensku keppendurnir fóru g. niðurskurð á Tinderbox mótinu
Þrír íslenskir kylfingar keppa á Tinderbox Charity Challenge, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Þetta eru þeir Guðmundur Ágúst Kristjásson, Ólafur Björn Loftsson og Andri Þór Björnsosn. Guðmundur Ágúst og Andri Þór hafa spilað á 1 undir pari, hvor 143 höggum; Guðmundur Ágúst (75 68) og Andri Þór (72 71) og eru þeir T-21 í mótinu. Ólafúr Björn rétt slapp í gegnum niðurskurð á 2 yfir pari, 146 höggum (73 73) og fóru því allir íslensku keppendurnir í gegnum niðurskurð! Til þess að sjá stöðuna á Tinderbox Charity Challenge SMELLIÐ HÉR:










