Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2019 | 01:00

LEK: Lokamótið fer fram 22. sept n.k.

Um næstu helgi eða sunnudaginn 22. september 2019 fer fram lokamótið á tímabilinu á LEK Öldungamótaröðinni. Örninn-mótið fer fram á Korpúlfsstöðum. Leiknar verða lykkjurnar Landið og Áin. Það er hörð keppni um landsliðssæti á ESGA mótum ársins 2020. Úrslitin úr þessu móti munu ráða miklu um hvaða kylfingar hreppa þau sæti. Skráning í mótið á golf.is – SMELLTU HÉR til að skrá þig. Keppnisskilmálar: Völlur: Korpa – Lykkjur mótsins Landið/ Áin. Mótið er hluti af Öldungamótaröðinni og er til viðmiðunar til vals á landsliðum LEK árið 2020. Mótið er opið öllum kylfingum 50 ára og eldri. Þeir sem náð hafa aldri þegar landslið keppir 2020 geta tekið þátt og fengið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2019 | 00:01

Úrtökumót f. Evróputúrinn: Aron úr leik í Svíþjóð

Aron Bjarki Bergsson, GKG, tók þátt í úrtökumóti fyrir Evróputúrinn, sem fór fram í Arlandastad, Rosberg í Svíþjóð, dagana 10.-13. september sl. Aron Bjarki lék á samtals 8 yfir pari, 218 höggum (70 75 73). Hann var 1 höggi frá því að ná niðurskurði, sem miðaður var við samtals 7 yfir pari eða betra. Aron Bjarki komst því miður ekki áfram á 2. stig úrtökumótsins og er úr leik. Aron Bjarki er 23 ára og hefir verið búsettur í Gautaborg, Svíþjóð allt sitt líf; en er samt Íslendingur, spilar undir íslenskum fána og hér á landi hefir hann m.a. keppt á Íslandsmótinu fyrir GKG (2016). Sjá má lokastöðuna á úrtökumótinu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 18:00

PGA: Hovland jafnaði met!

Norski kylfingurinn Viktor Hovland jafnaði met á PGA Tour í gær, sunnudaginn 15. september 2019, þegar hann lék 17. hringinn á mótaröðinni í röð á undir 70 höggum. Sautjánda hringinn, lokahringinn á „A Military Tribute at the Greenbrier“ lék Hovland á frábærum 64 höggum. Allir 17 hringirnir eru eftirfarandi: 1. hringur: Rocket Mortgage Classic: 64 högg 2.-5. hringur: 3M Open (69 66 69 65) 6.-9. hringur: John Deere Classic: (69 69 68 64) 10.-13. hringur: Wyndham Championship: (66 66 64 65) 14.-17. hringur: The Greenbrier:  (68 68 68 64). Með lokahringnum á „The Greenbrier“ í gær jafnaði Hovland eldra met, sem Bob Estes átti. Um árangur sinn sagði Hovlandi, sem er 21 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bryson DeChambeau – 16. september 2019

Það er Bryson DeChambeau, sem er afmæliskylfingur dagsins. Bryson er fæddur 16. september 1993 og er því 26 ára. Segja má að árið 2018 hafi verið ár DeChambeau, því hann sigraði í 3 PGA mótum á árinu og 4 allt í allt. Síðasti sigur hans kom 4. nóvember 2018 á Shriners Hospitals for Children Open Sjá má eldri kynningu Golf 1 á afmæliskylfingnum með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: George Duncan, 16. september 1883-15. janúar 1964; Jerry Haas, 16. september 1963 (56 ára); Iceland Hiking (55 ára)…. og ….. Reykjavik Fasteignasala (26 ára). Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Scott Harrington (10/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals. Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 12:30

Solheim Cup 2019: Pettersen hættir á toppnum!

Suzann Pettersen tilkynnti eftir sigurinn á Solheim Cup að hún væri hætt í atvinnumennskunni í golfi. Það var hún sem skrifaði sig í golfsögubækurnar eftir að hafa sett niður 2,5 metra sigurpútt liðs Evrópu í 2019 Solheim Cup. Sjá má hápunkta í tvímenningsleik Suzann Pettersen og Marinu Alex, þar sem sigurpúttið féll með því að SMELLA HÉR:  „Ég hef engin plön fyrir morgundaginn. Ég er hætt,“ sagði Pettersen að sigrinum loknum. „Þetta er hinn fullkomni endir,“ bætti hún við. „Endir á atvinnumannsferli mínum. Það gerist bara ekki betra.“ Og þetta er hárrétt hjá Suzann Pettersen; það er best að hætta á toppnum. Svo ófyndið sem það er átti Suzann ekki Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 12:15

Hvað var í sigurpoka Niemann?

Joaquin Niemann frá Chile sigraði á opnunarmóti PGA Tour keppnistímabilið 2019-2020, The Greenbrier. Eftirfarandi kylfur og annar golfútbúnaður voru í poka hans: Dræver: Ping G400 LST (10°). Skaft: Graphite Design Tour AD-DI 7X. Lengd: 45.25 þummlungar (tipped 1 þummlung). Sveifluvigt: D4+. 3-tré: Ping G410. Skaft: Graphite Design Tour AD-DI 8X. Lengd: 43 þummlungar (tipped 1 þummlung). Sveifluvigt: D3+. Blendingur: Ping G400 (19°). Skaft: Ping Tour 85X. Lengd: 39.75 þummlungar. Sveifluvigt: D2. Járn: Ping iBlade (4-9 járn). Sköft: Project X 6.0. Lengd: -0.25 þummlungar. Sveifluvigt: D1. Fleygjárn: Ping Glide 2.0 (46°), Ping Glide Forged (52°, 56° og 60°). Sköft: Project X 6.5. Pútter: Ping Vault 2.0 Dale Anser. Lengd, loft and Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga endaði í 6. sæti á Dartmouth Inv.!!!

Helga Kristín Einarsdóttir og félagar í University of Albany tóku þátt í Dartmouth Invitational. Mótið fór fram dagana 14.-15. september 2019 í Hanover CC í Hanover, New Hampshire. Þátttakendur voru 79 frá 13 háskólum. Helga Kristín náði þeim glæsilega árangri að vera í 3. sæti eftir fyrri daginn með skor upp á 71 en lauk keppni í 6. sæti, sem er frábært!!! Samtals lék Helga Kristín á 1 undir pari, 143 höggum (71 72). Sjá má lokastöðuna á Dartmouth Invitational með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Helgu Kristínar og Albany er 23. september n.k. í Canton, Massachusetts.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 11:00

Bandaríska háskólagolfið: Eva Karen & félagar T-11 í Alabama

Eva Karen Björnsdóttir, GR, og félagar í ULM taka þátt í USA Intercollegiate mótinu. Þátttakendur eru 94 frá 16 háskólum. Keppt er á Magnolia Grove Crossings golfvellinum í Mobile Alabama og stendur mótið 14.-16. september og lýkur því í dag. Eva Karen er T-67 eftir 2. dag; er búin að spila á 10 yfir pari, 154 höggum (77 77). Hún er á 3. besta skorinu í liði sínu, sem er T-11 í liðakeppninni. Sjá má stöðuna á USA Intercollegiate mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2019 | 10:00

Solheim Cup 2019: Lexi m/bakverki í tvímenningnum

Lexi Thompson, nr. 3 á Rolex-heimslista kvenna gekk ekki heil til skógar í tvímenningsleik sínum á sunnudaginn á Solheim Cup. Hún tapaði óvænt viðureign sinni gegn Georgiu Hall, nr. 38 á Rolex-heimslista kvenna (í liði Evrópu) 2&1. Nú hefir komið í ljós að allan tvímenningsleikinn var Lexi að kljást við eymsli í baki og píndi sig allt þar til á 17. braut þegar Georgia hafði betur 2&1, á leið sinni að glæsilegum 4-0-0 árangri á Solheim Cup 2019! Lexi gat ekki einu sinni tíað bolta sinn upp; það gerði kaddý hennar fyrir hana. Umboðsmaður Lexi, Bobby Kreusler sagði þetta í fyrsta sinn á ævi Lexi að hún hefði fengið í Lesa meira