Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2011 | 21:00

Lexi yngst á LPGA 2012!

Táningsgolfstjarnan Lexi Thompson mun fá fullan keppnisrétt á LPGA mótaröðinni á næsta ári, 2012.

Thomspon, 16 ára, sótti um það hjá LPGA að undantekning yrði gerð á því skilyrði að kylfingar sem kepptu á mótaröðinni yrðu að vera orðnir 18 ára. Framkvæmdastjóri LPGA, Michael Whan féllst á undanþágubeiðni Lexi í dag, (30. september 2011,) einum degi eftir að Lexi lagði hana fram.

Lexi sigraði s.s. allir muna Navistar LPGA Classic í Alabama í þessum mánuði og varð þar með yngsti sigurvegari í (61. ára) sögu LPGA.

Whan lýsti Lexi sem stúlku með óvenjumikla hæfileika, sem hefði nú þegar sýnt þroska í að höndla slæmt gengi sem velgengni.

Lexi fær að keppa á lokamóti LPGA Titleholders í nóvember. Hún verður fullgildur félagi á LPGA frá og með 2012.

Heimild: Stuff.co.nz