
Hver er kylfingurinn Michael Thompson?
Michael Thompson er nú með 1 höggs forystu á McGladreys mótinu sem fram fer á Sea Island í Georgíu, á 1 högg á nýliðann Billy Horschel og 2 högg á þá Webb Simpson og Trevor Immelman frá Suður-Afríku. Það verður gaman að sjá hvort einhver þessara 4 sendur uppi sem sigurvegari í kvöld.
Michael fæddist 16. apríl 1985 og er því 26 ára. Hann var í University High School í Tucson, Arizona á árunum 1999-2003. Meðan hann var þar vann hann Class 4A state team championship árið 2003, og var valinn kylfingur ársins meðal menntskælinga árin 2002 og 2003. Michael var síðan í Tulane háskóla í Louisiana tvö keppnistimabil, allt þar til golflið skólans var leyst upp vegna hvirfilbylsins Katrinu. Thompson skipti því um skóla og spilaði með golfliði Alabama háskóla þar sem hann var valinn kylfingur ársins 2008.
Thompson var í úrslitum árið 2007 í US Amateur, en tapaði fyrir Colt Knost 2&1. Þetta varð þó til þess að hann fékk þátttökurétt á Masters og US Open 2008. Thompson komst ekki í gegnum niðurskurð á Masters en var lægstur af áhugamönnunum á Opna bandaríska í Torrey Pines, var á +9 yfir pari samtals 292 höggum og í 29. sæti (sem er besti árangur hans á risamóti til þesa) Vikuna á eftir var honum boðið að spila á Travelers Championship þar sem hann náði niðurskurði á 3 undir pari, samtals 277 höggum og varð T-58.
Atvinnumannsferill
Thompson var 1 viku nr. 1 á heimslista áhugamanna áður en hann gerðist atvinnumaður í júlí 2008. Thompson byrjaði á því að spila á Hooters Tour og var valinn kylfingur ársins 2010 á Hooters Tour. Í Q-school 2010 varð Thompson T-16 og fékk því kortið sitt á PGA þetta keppnistímabil. Thompson varð í 4. sæti á Travelers Championship, sem er besti árangur hans á PGA til þessa.
Einkalífið
Thompson er kvæntur Rachel Thompson, sem er með doktorsgráðu í sjúkraþjálfun og útskrifuð frá Emory háskóla. Hún var kaddý Thompson þegar hann sigraði eitt sinn á Hooters. Þau kynntust í Tulane háskóla.
Heimild: Wikipedia
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)