Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: – Denny Shute – 25. október 2011

Herman Densmore „Denny“ Shute  f. 25. október 1904 – 13. maí 1974 var bandarískur kylfingur sem vann 3 risamót á 4. áratug síðustu aldar.

Denny fæddist í Cleveland, Ohio. Pabbi hans fæddist í Englandi. Hann var í Western Reserve University (sem nú heitir Case Western Reserve University) og var félagi í Phi Gamma Delta. Hann kvæntist 20. mars 1930 Hettie Marie Potts og áttu þau 1 barn saman.

Denny Shute sigraði á Opna breska áirð 1933 og á PGA Championship, árin 1936 og 1937. Hann var síðasti kylfingurinn, sem tókst að sigra Opna breska 2 ár í röð áður en Tiger Woods tókst það 1999 og 2000.

Denny Shute var þrívegis í bandaríska Ryder Cup liðinu: 1931, 1933 og 1937.

Denny Shute dó í  Akron, Ohio. Hann var kjörinn í frægðarhöll kylfinga árið 2008.

Sigrar Denny á PGA mótaröðinni voru 16. Þeir eru eftirfarandi:

▪ 1929 (1) Ohio Open

▪ 1930 (3) Los Angeles Open, Texas Open, Ohio Open

▪ 1931 (1) Ohio Open

▪ 1932 (2) Glens Falls Open, Miami Biltmore Open

▪ 1933 (2) Gasparilla Open, British Open

▪ 1934 (3) Gasparilla Open-Tampa, Riverdale Open, Miami International Four-Ball (með Al Espinosa)

▪ 1936 (2) Tropical Open, PGA Championship

▪ 1937 (1) PGA Championship

▪ 1939 (1) Glens Falls Open

Heimild: Wikipedia 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Muffin Spencer-Devlin, f. 25. október 1953 (58 ára).

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is