GK: Aðalfundur haldinn 6. desember n.k.
Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis er auglýstur aðalfundur klúbbsins. Þar segir: „Þá er komið að aðalfundi golfklúbbsins Keilis enn hann á að halda þriðjudaginn 6. desember kl 19:30 n.k í Golfskála Keilis. Fyrir utan hefðbundna dagskrá […] þá verða niðurstöður úr viðhorfskönnun Keilis kynntar og stefnumótunarvinnu stjórnar Keilis til næstu ára. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á árinu. 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis. 4. Stjórnarkosning. 5. Kosning endurskoðanda. 6. Kosning fulltrúa og varafulltrúa í samtök, sem Keilir er aðili að. 7. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. 8. Önnur mál. Stjórn Golfklúbbsins Keilis.“
Mac-arnir meðal sigurstranglegustu liða í Heimsbikarnum, sem hefst í dag 24.11.2011
Heimsbikarsmótið hefst í dag, 24. nóvember 2011, á Misson Hills vellinum í Hainan í Kína og stendur til næsta sunnudags 27. nóvember. Rory McIlroy og Graeme McDowell, sem keppa fyrir Norður-Írland vonast eftir betra gengi en fyrir 2 árum. Þeir, McIlroy og McDowell, voru í forystu þegar 11 holur voru óspilaðar á síðasta heimsbikarsmóti fyrir 2 árum, áður en ítölsku Molinari bræðurnir báru þá ofurliði. Hvað sem öðru líður þá hafa þeir báðir McDowell og McIlroy sigrað á Opna bandaríska risamótinu frá því síðast og verða Mac-arnir báðir að teljast meðal sigurstranglegustu liða í ár. Justin Rose og Ian Poulter keppa fyrir England; Martin Laird og Stephen Gallacher fyrir Skotland og Lesa meira
Lee Westwood spilar á PGA mótaröðinni 2012
Lee Westwood hefir ákveðið að spila á PGA mótaröðinni bandarísku árið 2012. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2008 sem Westwood spilar á PGA Tour. Við þetta skuldbindur hann sig til að keppa í 15 mótum, þ.á.m. risamótunum 4 og heimsmeistaramótunum. Lee Westwood segir að hann muni snúa aftur á The Players Championship, sem hann sleppti í ár vegna fullbókaðrar dagskrár sinnar. Hann sagði líka að sér hefði þótt spennandi að horfa á FedEx Cup í sjónvarpinu og sig langaði til að taka þátt. Westwood hóf árið í 1. sæti á heimslistanum en hefir frá þeim tíma sigið niður í 3. sætið. Hann ætlar að hefja bandaríska dagskrá sína Lesa meira
USGA minnist þess að 100 ár eru liðin frá því að forgjafarkerfið var tekið upp – 3. grein af 4.
Í dag og á morgun birtist seinni hluti geysilangrar greinar aðalblaðafulltrúa USGA (United States Golf Association þ.e. bandaríska golfsambandsins) Hunki Yun í tilefni af 100 ára afmæli forgjafarkerfisins; en fyrstu tveir hlutarnir birtust hér á Golf 1, fyrir rúmri viku síðan þ.e. 10. og 11. nóvember. Í dag birtist 3. hlutinn og 4. og síðasti birtist á morgun á sama tíma hér á Golf 1. Þriðji hluti greinarinnar er eftirfarandi, í lauslegri íslenskri þýðingu: „Í dögun 20. aldar varð hraður vöxtur golfíþróttarinnar beggja vegna Atlantsála til þess að ekki var hægt að notast við þágildandi forgjafar aðferðir, þar sem ekkert miðlægt stjórnvald bauð um á stöðlun fyrir alla kylfinga. Stærsta Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Gullhamarinn hjá GB – 25. júní 2011
Kvennamótið Gullhamarinn fór fram, 25. júní 2011 Hamarsvelli í Borgarnesi í blíðuveðri. Kvennanefnd G.B. var svo dugleg að safna verðlaunum að verðlaunaafhendindin tók lengri tíma en mótið sjálft. Til þess að sjá myndaseríu frá verðlaunaafhendingu úr þessu skemmtilega móti smellið hér: GULLHAMARINN 25. JÚNÍ 2011 – HAMARSVELLI – BORGARNESI – VERÐLAUNAAFHENDING Úrslit urðu eftirfarandi: Punktakeppni: 1. Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir GK 36 punktar 2. Hrafnhildur Þórarinsdóttir GK 35 punktar 3. Júlíana Jónsdóttir GB 34 punktar 4. Jóhanna Margrét Sveinsdóttir GK 34 punktar 5. Kristín H Vigfúsdóttir GR 34 punktar Guðrún Sverrisdóttir GB 34 punktar Höggleikur: 1. Lovísa Hermannsdóttir GK 86 högg 2. Helga Jóhannsdóttir GK 88 högg 3. Fjóla Pétursdóttir GB Lesa meira
Gullhamarinn hjá GB 25. júní 2011
Hvað er í uppáhaldi hjá Becky Brewerton?
Becky Brewerton er þrítugur, kylfingur frá Wales, sem m.a. sigraði á Tenerife Ladies Match Play, 2011. Eins var hún í liði Evrópu í Solheim Cup 2007 og 2009. Hvað skyldi nú vera í uppáhaldi hjá Becky? Uppáhaldsmatur: Spænskur. Uppáhaldsveitingastaður: La Tasca, Spænskur Tapas Bar & Restaurant. Uppáhalds eftirréttur: Ostur Uppáhaldsdrykkur: Bjór Uppáhaldsborg: London Uppáhaldsbíll: Bíllinn minn Mazda cx7 Uppáhaldstæki: Fartölvan mín. Uppáhaldseign: Kylfurnar mínar. Uppáhaldsbók: Hvaða golfbók sem er! Uppáhaldsfatahönnuður: Poodle!
Afmæliskylfingur dagsins: Jerry Kelly – 23. nóvember 2011
Jerome Patrick (Jerry) Kelly fæddist 23. nóvember 1966 í Madison Wisconsin og er því 45 ára í dag. Hann útskrifaðist frá University of Hartford 1989 og gerðist atvinnumaður í golfi það ár. Hann komst þó ekki á PGA mótröðina fyrr en árið 1996. Hann á að baki 8 sigra sem atvinnumaður þar af 3 á PGA. Jerry komst á PGA mótaröðina í kjölfar góðs árangurs hans á Nike Tour 1995, þar sem hann vann 2 mót. Besta árið hans á PGA er 2002, þegar hann var í 4. sæti á peningalista PGA og vann Sony Open í Hawaii og Advil Western Open. Eins vann Jerry Zürich Classic í New Orleans 2009 Lesa meira
Golfvellir á Spáni: La Manga í Cartagena
Hér verður fram haldið að kynna þá 4 velli þar sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram 2. – 5. desember n.k. Birgir Leifur Hafsteinsson, tekur sem kunnugt er þátt og valdi sér Costa Ballena völlinn að keppa á, en sá völlur var kynntur í gær í máli og myndum. Á La Manga í Cartagena eru 3, 18-holu golfvellir, suður-norður og vesturvöllurinn, sem allir eru afar ólíkir og einn par-47 æfingavöllur. Öll æfingaaðstaða og æfingasvæði eru til mikillar fyrirmyndar og hefir La Manga 3 sinnum verið sigurvegari í vali á besta golfstað Spánar. Robert D. Putnam hannaði norður (par-71) og suður-golfvöllinn (par-73), en að hönnun þess síðarnefnda (par-73) kom Lesa meira
GR: Aðalfundur haldinn 5. desember n.k.
Eftirfarandi frétt er á heimasíðu GR: „Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 05. desember kl. 20:00. Fundarstaður: Golfskálinn Grafarholti Dagskrá: Í upphafi aðalfundar skal kjósa sérstakan fundarstjóra og ritara eftir tilnefningu. 1. Skýrsla formanns. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins. 3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar. 4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna um lagabreytingar ef einhverjar eru. 5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga. 6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. 7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn. 8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara. 9. Önnur málefni ef einhver eru. Virðingarfyllst, STJÓRN GR“








