
Sólskinstúrinn: Jbe Kruger og Steven O´Hara leiða á South African Open eftir 1. dag
Jbe Kruger er í forystu eftir 1. dag South African Open ásamt Steven O’Hara, eftir að hafa fengið 7 fugla á skollafríum hring upp á 65 högg. Steven hins vegar fékk örn á 8. brautinni og skolla á 4. braut Serengeti Golf and Wildlife Estate, sem er í útjarðri Jóhannesarborgar. Völlur golfstaðarins gengur undir nafninu Massai Mara og er hannaður af Jack Nicklaus; völlurinn er par-72 og opnaði 2009, en einkennishola vallarins er par-5 8. holan sem er með flöt úti á eyju.
„Þetta er SA Open, sem var stærsta mótið þegar ég var að vaxa úr grasi. Þetta snýst bara um að taka eitt högg í einu, það er aðalatriðið,“ sagði Jbe Kruger, kátur með að vera í forystu.
Hinn 25 ára Jbe Kruger fékk pör þar til á 7. þegar hann setti niður lokafugl hrings síns á þessu móti þar sem verðlaunaféð er € 1 milljón.
„Ef maður nær að slá í pinnahæð þá ætti að vera í lagi. Lendi boltinn hins vegar meter til hægri en vinstri við flaggið brotnar það 25 cm, þannig að maður verður að vera réttum meginn á flötinni,“ sagði Jbe um Jack Nicklaus völlinn sem spilað er á.
O´Hara sagðist ánægður með hringinn og sagði að hann yrði að ná góðu skori þessa vikuna.
„Ég var að slá mikið af frábærum höggum. Ég sló innan 3 metra á frá flaggi á hverri holu og mér leið eins og ég hefði átt að setja niður fleiri fulga. Þetta snýst allt um nákvæmi 2. höggsins,“ sagði hann.
Suður-Afríkubúarnir Retief Goosen, Merrick Bremner, David Hewan og Tyrone Mordt deila 3. sætinu 1 höggi á eftir Jbe og Steven.
„Ég var stressaður fyrir daginn, en spilaði ágætlega. Ég er mjög ánægður með þá stöðu sem ég er í,“ sagði Mordt, sem náði að setja niður 4 fugla í röð frá 5.-8. í lengsta fuglasöng dagsins.
„Mér fannst járnaleikurinn minn ganga upp. Og hann verður að vera í lagi hér: til þess að ná fuglum verður að vera góður með járnin og slá inn á réttu staðina á flötunum,“ sagði hann.
Á síðasta ári var lokakeppnin milli Ernie Els og Goosen, en Goosen saxaði á forskot Ernie undir lokin (fékk 4 fugla) þannig að Ernie vann bara með 1 höggs mun í Durban Country Club og sigraði þar með í 5. sinn mótið.
Mótið sjálft á 101 ára afmæli á árinu og er elsta mót golfíþróttarinnar á eftir Opna breska.
Charl Schwartzel og Louis Oosthuizen taka ekki þátt í mótinu þar sem þeir eru á Omega Mission Hills Heimsbikarsmótinu í Kína.
Til þess að sjá stöðuna á South Africa Open eftir 1. dag smellið HÉR:
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge
- ágúst. 7. 2022 | 14:50 Íslandsmótið 2022: Perla Sól og Kristján Þór leiða eftir 3. dag
- ágúst. 7. 2022 | 14:30 Íslandsmótið 2022: Lokatilraun til að spila 4. hring verður gerð kl. 16:30
- ágúst. 6. 2022 | 22:00 Íslandsmótið 2022: Hulda Clara og Sigurður Bjarki jöfnuðu vallarmetin á Vestmannaeyjavelli
- ágúst. 6. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (31/2022)
- ágúst. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Doug Ford, Pétur Steinar Jóhannesson og Michel Besancenay – 6. ágúst 2022
- ágúst. 5. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Rútsson – 5. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 14:00 Forsetabikarinn 2022: Davis Love III útnefnir Simpson og Stricker sem varafyrirliða