
Afmæliskylfingur dagsins: Santiago Luna 29. nóvember 2011
Það er spænski kylfingurinn Santiago Luna sem er afmæliskylfingur dagsins. Santiago fæddist 29. nóvember 1962 í Madríd á Spáni og er því 49 ára í dag. Pabbi Luna var starfsmaður í Puerta de Hierro Golf Club í Madríd og þar steig Santiago sín fyrstu spor í golfíþróttinni. Hann gerðist atvinnumaður árið 1982 og var meira en 20 ár á Evrópumótaröðinni, þar sem hann spilaði í meir en 500 mótum. Hann var meðal efstu 100 á lista þeirra bestu í Evrópu (Order of Merit) oftar en 12 sinnum, en besti árangur hans var 31. sætið árið 1998. Eini sigur hans á Evrópumótaröðinni er Madeira Island Open, 1995, en hann er með 10 sigra í allt á atvinnumannsferli sínum. Eins var hann annar af liðstvennd Spánar á Heimsbikarsmótinu 1999, þegar Spánn varð í 2. sæti.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Perry Parker, 29. nóvember 1964 (47 ára); Guy Hill, 29. nóvember 1970 (41 árs); Tonya Gill, 29. nóvember 1970 (41 árs).
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023