Hvað er í pokanum hjá Söndru Gal?
Sandra Gal, W-7 módelið og besti kvenkylfingur Þýskalands vann fyrsta mót sitt á LPGA þann 27. mars á þessu ári, Kia Classic. Spurningin er með hvað var í pokanum hjá Söndru þegar hún vann mótið? Það var eftirfarandi: 8.5° Dræver Callaway FT-5 DIABLO 15° eða 13° 3 Tour Fairway tré DIABLO (byggðist á lengd par-5 brauta golfvallarins) 18° 5 Tour Fairway tré Razr X Járn PW-4 Callaway Razr X 50° Gap Wedge 54° SandWedge 58° Lob Wedge Blade Pútter WHITE ICE D.A.R.T. Í verðlaun fékk fyrir 1. sætið á Kia Classic fékk Sandra tékk upp á $255.000,-. Þessi frábæri þýski kylfingur, fæddist í Düsseldorf, í Þýskalandi 9. maí 1985 og varð því Lesa meira
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, verður með golfnámskeið í Básum 16. jan-16. mars ’12
Uppáhaldskylfingur margra viðmælenda Golf 1, Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, golfkennari, heldur golfnámskeið í Básum 16. janúar – 16. mars á næsta ári 2012. Bókið snemma því í fyrra varð fljótt fullbókað! Í fréttatilkynningu frá Ragnhildi segir eftirfarandi: „Golfnámskeið vetrarins hefjast þann 16. janúar í Básum Einstaklingsmiðuð námskeið fyrir alla, áhersla á grunnatriði þar sem unnið er með þarfir hvers og eins. Skráningar í fullum gangi 🙂 Innifalið: Sveiflumyndataka og sveiflugreining í upphafi Vikulegar kennslustundir frá 16. jan – 16. mars 4 nemendur hjá kennara Námskeið í golfreglum Boltar og aðstöðugjöld Verð kr. 22.000,- Upplýsingar og skráning í síma 8225660 og á ragsi@simnet.is
Myndskeið: Högg ársins á PGA nr. 10 – Phil Mickelson á Torrey Pines
Nú í lok árs taka blaðafulltrúar PGA saman högg ársins á túrnum. Eitt af 10 fallegustu höggunum á Phil Mickelson. Hann sló það á par-5 18. brautinni á Torrey Pines í Farmers Insurance mótinu. Áður en hann tók höggið lét hann Bones, kylfusvein sinn laga flaggið og gékk sjálfur að holunni til þess að kanna nákvæmlega á hvers kyns höggi væri þörf. Mat hans var hárrétt. Til þess að sjá myndskeiðið af frábæru höggi Mickelson smellið HÉR:
Sunna Víðisdóttir hlaut háttvísibikar GR 2011
Á heimasíðu GR er eftirfarandi frétt: „Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Í ár er það Sunna Víðisdóttir sem hlýtur bikarinn, Sunna hefur sigrað í tveimur stigamótum fullorðinna á mótaröð þeirra bestu á síðustu tveimur árum þrátt fyrir ungan aldur, einnig á hún glæsilegan feril Lesa meira
Viðtalið: Unnur Ósk Valdimarsdóttir, GSG.
Viðtalið í dag er við Unni Ósk Valdimarsdóttur, elsta meðlim GSG, en klúbburinn fagnaði 25 ára afmæli sínu í ár. Unnur tók 1. höggið þegar 9 holu golfvöllurinn var vígður og líka nú í vor þegar nýi, glæsilegi 18-holu Kirkjubólsvöllurinn var vígður. Frá því að Unnur Ósk byrjaði í golfi í Sandgerði hefir mikið vatn runnið til sjávar. Hér fara nokkrar spurningar sem Golf 1 lagði fyrir Unni s.l. sumar (nánar tiltekið 10. júlí 2011) og svör Unnar: Fullt nafn: Unnur Ósk Valdimarsdóttir. Klúbbur: GSG Hvar fæddistu? Ég fæddist í Sandgerði 30. maí 1931 og varð því 80 ára nú í vor. Hvar ertu alin upp? Ég ólst upp í Lesa meira
Myndsería: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Myndir frá Kiðjaberginu teknar í Gullmóti Hansínu Jens – 23. júlí 2011
Þann 23. júlí 2011 fór fram Gullmót Hansínu Jens í Kiðjaberginu. Þátttakendur voru 59 og m.a. veitt verðlaun fyrir besta skor, 5 efstu sætin í punktakeppni, nándarverðlaun voru á öllum par-3 brautum auk verðlaun fyrir lengsta teighögg á 11. braut og verðlaun fyrir að vera næst holu í 2 höggum á 18. braut. Golf 1 myndaði mótið ekki að öðru leyti en að teknar voru myndir úr Kiðjaberginu, fagurgrænu og fallegu, með það að markmiði að birta þegar allt væri komið undir snjó um hávetur. Sjá má myndirnar með því að smella hér: KIÐJABERGIÐ 23. JÚLÍ 2011 Helstu úrslit í Gullmóti Hansínu Jens voru hins vegar eftirfarandi: Besta skor: Ásgerður Lesa meira
Kiðjabergið – 23. júlí 2011
Afmælisbarn dagsins: St. Nikulás – 6. desember 2011
Í dag er haldið upp á St. Nikulásar-daginn víðs vegar í ríkjum kaþólskra, en St. Nikulás frá Myra er dýrlingur hjá kaþólskum. Dagurinn í dag er dánardægur St. Nikulás en hann dó árið 323, og gjöfuls anda hans minnst. Margar sögur eru til um kraftaverk St. Nikulás. Ein sagan gengur út á að hann hafi safnað saman öllum verðmætum í strandbæ einum í Tyrklandi og fengið þau sjóræningjum, sem höfðu hneppt börn bæjarins í gíslingu. Sagan á að sýna að börnin eru dýrmætari en allar mannana eigur. Frægust er sagan af því þegar hann forðaðið 3 föngulegum stúlkum frá hórdómi og endurlífgaði 3 drengi sem vondur kjötiðnaðarmaður var búinn að Lesa meira
Skötumót í Sandgerði n.k. laugardag – 10. desember 2011
Þann 10. desember n.k., sem er næsta laugardag er fyrirhugað að halda Skötumót í Sandgerði. Um hefðbundið golfmót verður að ræða, svo framarlega sem veður leyfir. Mótið fer fram milli kl. 11:30-14:00. Þar á eftir er boðið upp á ýmsar kræsingar. Á boðstólum verður verulega kæst, vestfirsk skata og fyrir matgikki m.a. plokkfiskur og meðlæti. Þeir sem ekki vilja spila golf geta engu að síður mætt og fengið sér skötu og með því. Takið daginn frá og mætið á Skötumót í Sandgerði nú á laugardaginn!
Christina Kim verður með á Indlandi
Á föstudaginn n.k., 9. desember 2011, hefst Hero Indian Women´s Open á Indlandi. Þetta er í 2. sinn sem mótið er haldið í samstarfi við LET (Ladies European Tour) þ.e. Evrópumótaröð kvenna. Meðal þátttakenda í mótinu, þar sem verðlaunaféð er $ 300.000 er hin litríka Christina Kim, en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur til Indlands. Meðal annarra þátttakenda eru Laura Davies, Sophie Gustafsson, Lee-Anne Pace, Pornanong Phatlum (hún er ein skærasta stjarnan í kvennagolfinu í Asíu) Gwladys Nocera og nýliðinn á LET, sem heldur betur er búin að slá í gegn í ár, Caroline Hedwall. Stuðboltinn Christina er þekkt fyrir heimspeki sína „Go big or go home” Lesa meira








