Uihlein gerist atvinnumaður – sleppir síðasta semestrinu í Oklahoma State
Vikuna eftir að hann keppti fyrir Bandaríkin í Walker Cup á Royal Aberdeen s.l. september spilaði Peter Uihlein í fyrsta háskólamóti sínu á lokaári sínu í Oklahoma State (en í þeim skóla hafa margir frábærir kylfingar stundað nám og spilað með golfliði skólans s.s. Eygló Myrra „okkar“ Óskarsdóttir, Caroline Hedwall, nýliði ársins á LET og Pernilla Lindberg). Í þessu móti sem Peter tók þátt í deildi hann 41. sætinu á Olympia Fields/Fighting Illini Invitational fyrir utan Chicago. Þetta var síðasta háskólamót hans, því Peter tilkynnti í gær, þ.e. 19. desember 2011 að hann ætlaði ekki að sitja síðasta semestur sitt í Stillwater heldur gerast atvinnukylfingur og er þegar búinn að gera umboðssamning við Lesa meira
Frá Golfklúbbi Siglufjarðar eftir Jóhönnu Þorleifsdóttur, formann GKS
Í góðum pistli í Hellunni fer Jóhanna Þorleifsdóttir, formaður Golfklúbbs Siglufjarðar yfir starfsemi klúbbsins árið 2011. Í grein hennar segir: „Starfið hjá GKS var með hefðbundnum hætti í sumar. Klúbburinn hefur haft þann sið að halda 2 golfmót í viku þ.e. helgarmót og 10 móta mótaröð á miðvikudögum, sem Rauðka styrkti nú í ár. Sigurvegari í mótaröðinni varð Róbert Haraldsson. Hefur þetta mótafyrirkomulag gefið góða raun og hafa um og yfir 20 manns verið að mæta að meðaltali í hvert mót. Nokkur fjölgun hefur verið í félaginu og eru sumarhúsaeigendur og brottfluttir Siglfirðingar að ganga í klúbbinn. Yfir 20 mót voru haldin í sumar. Keppt var í holukeppni. Keppt var Lesa meira
Monty með golfkennslustund í Óman
MUSCAT: HSBC Oman bauð Colin Montgomery velkominn á Corporate Golf Day sinn, sem fram fór í Muscat Hills Golf and Country Club. Á þessum frábæra degi, þar sem gestgjafi var fréttamaður BBC Radio 5 Live, Ian Carter, hlutu 21 af viðskiptavinum HSBC kennslustund í hvernig bæta á púttin sem og einkakennslustund hjá Monty og eftir á fór fram Shot Gun mót. Eftir verðlaunaafhendinguna yfir léttum hádegisverði gafst boðskylfingunum færi á að spyrja Colin spjörunum úr, en þar fór Colin á kostum gaf góð ráð og skemmti gestum með golfskemmtisögum. Hann bar m.a. saman golf og viðskipti þegar hann benti á að golf væri leikur hugvitsins og lykillinn til þess að sigra Lesa meira
Lee Westwood: „Við fáum borgað of mikið samanborið við lögreglu, kennara og hjúkrunafræðinga“
Lee Westwood er sá fyrsti til að fara fram úr 25 milljón punda (4 billjón ísl. króna) markinu í verðlaunafé. Í viðtali við Independent s.l. sunnudag sagði Westy m.a.: „Það er ekki slæmt fyrir strák frá Worksop.“ Fólk frá þessum litla bæ í Notthinghamskíri, sem Westy er frá, er með báða fætur á jörðinni og það hefir nú alið son, sem er meðal fremstu og hæstlaunuðu íþróttamanna Bretlands. „Mér fannst ég eiga gott ár þegar ég var í 45. sæti á peningalista Evrópumótaraðarinnar og vann mér inn £125,000,“sagði hann, þegar hann horfði aftur til ársins 1994. „Mér fannst ég eiga góða fyrstu viku þegar ég vann mér inn £2,500 á Lesa meira
Genginn er einhver besti kylfingur sögunnar – Kim Jong-Il í Norður-Kóreu
Besti kylfingur sögunnar er látinn. (Snökkt, snökkt – frétttir af hópgrátsamkundum Norður-Kóreu berast alla leið til Íslands!) Einræðisherrann og súperstjörnukylfingurinn Kim Jong-Il lést 69 ára að aldri — sem er aldur við hæfi, því 69 er undir pari á öllum löglegum golfvöllum. Kim Jong-Il þurfti aldrei á sveiflu- þjálfara eða golfkennara að halda til að ná tökum á golfíþróttinni! Kim spilaði á -38 höggum undir pari m.ö.o. átti hring upp á 34 högg, þ.á.m. fór hann 11 sinnum holu í höggi á 7.700 yarda (7041 metra löngum) keppnisvellinum í Pyongyang á FYRSTA HRING ÆVINNAR, skv. ríkisfjölmiðlum Norður-Kóreu. Það var árið 1994 þegar Kim var 52 ára. Það sem var jafnvel enn Lesa meira
Ernie Els gæti misst af Masters í fyrsta sinn síðan 1994
Ernie Els og Retief Goosen fara inn í 2012 keppnistímabilið án nokkurrar tryggingar að þeir fái að spila á Masters. Ljóst var hverjir hlytu keppnisrétt á Masters í dag, síðustu opinberru mótaviku í golfinu um allan heim. Meðal þeirra krítería til þess að hljóta boð er að vera meðal efstu 50 á heimslistanum í lok árs. Maðurinn með mjúku sveifluna, Ernie Els, sem hefir hlotið marga hjartabresti í Augusta National, féll í 56. sætið á listanum. Els hefir átt keppnisrétt á Masters á hverju ári frá upphafi ferils síns 1994. Goosen, sem sigrað hefir tvívegis á Opna bandaríska risamótinu er s.s. Golf 1 greindi frá fyrr í dag í 53. sæti Lesa meira
Caroline Hedwall nýliði ársins á Evrópumótaröð kvenna
Hin sænska Caroline Hedwall hefir verið tilnefnd nýliði ársins 2011 á Evrópumótaröð kvenna (Ladies European Tour) eftir frábært fyrsta ár sitt sem atvinnumaður.Þessi 22 ára stúlka (Hedwall) frá Barsebäck vann sér inn 278,528.87 evrur (tæpar 45 milljónir íslenskra krónur) í 20 mótum sem hún tók þátt á, á keppnistímabilinu og munaði 207,361 evrum á henni og þeirri sem kom í næsta sæti Rachel Jennings frá Englandi, og er með meira en helmingi meira verðlaunafé en nokkur nýliði í 32 ára sögu Evrópumótaraðar kvenna (Ladies European Tour). Hedwall sigraði í Q-school LET með 9 högga mun á næsta keppanda í desember 2010 og í janúar hóf hún árið með sigri í New South Lesa meira
Tom Lewis nýliði ársins á Evrópumótaröðinni
Englendingurinn Tom Lewis er nýliði ársins á Evrópumótaröðinni. Hann var valinn með hliðsjón af því að hann vann Portugal Masters í október s.l. en við það vann þessi 20 ára strákur sér tveggja ára keppnisrétt á Evróputúrnum. „Ég kann mjög að meta þennan heiður. Þetta er svo sannarlega toppurinn á því sem hefir verið frábært ár,“ sagði Lewis í fréttatilkynningu í dag (mánudag). Lewis lauk leik á glimrandi -7 undir pari, 65 höggum og vann Portugal Masters, átti 2 högg á Rafael Cabrera-Bello, frá Spáni, en hann komst á radarinn í júlí á Opna breska þar sem hann var fyrsti áhugamaðurinn til þess að leiða mótið frá árinu 1968. Lewis var Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Alfredo Garcia Heredia – 19. desember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Alfredo Garcia Heredia. Hann er fæddur 19. desember 1981 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Hann komst í gegnum Q-school Evrópumótaraðarinnar í fyrra og hefir því verið að spila á Evrópumótaröðinni í ár. Hann reyndi nú í haust við 2. stig Q-school PGA, en líkt og Birgir Leifur Hafþórsson, komst hann ekki í gegn – en þeir öttu m.a. kappi hvor við annan. Þessi 1,85 m hái og 89 kg þungi kylfingur kemur úr mikilli golffjölskyldu í Gijon og getur beðið einhvern af 10 af nánustu skyldmennum sínum í Gijon að spila æfingahring við sig, þ.á.m. frænda sinn, sem kynnti hann fyrir sportinu Lesa meira
Lee Westwood kominn í 2. sætið á heimslistanum
Lee Westwood skákar Rory McIlroy úr 2. sætinu á heimslistanum eftir frækilegan sigur á Thaíland Golf Championship, í Amata Spring Golf & Country Club í Chonburi. Eins kemst Charl Schwartzel á topp-10 eftir að hafa náð 2. sæti í þessu sterka móti. Hann er nú í 9. sæti en var áður í 11. sæti. Lítil hreyfing er að öðru leyti á stöðu efstu manna. Ian Poulter hækkar sig um heil 12 sæti var í 28. en er nú í 16. sæti, eftir sigur sinn á Australian Masters. Jim Furyk rétt heldur sér inn á topp-50, er í 50. sætinu, en Japaninn Ryo Ishikawa er í 51. sæti og skrítið að Lesa meira










