Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Alfredo Garcia Heredia – 19. desember 2011

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Alfredo Garcia Heredia. Hann er fæddur 19. desember 1981 og á því 30 ára stórafmæli í dag.  Hann komst í gegnum Q-school Evrópumótaraðarinnar í fyrra og hefir því verið að spila á Evrópumótaröðinni í ár. Hann reyndi nú í haust við 2. stig Q-school PGA, en líkt og Birgir Leifur Hafþórsson, komst hann ekki í gegn – en þeir öttu m.a. kappi hvor við annan.

Þessi 1,85 m hái og 89 kg þungi kylfingur kemur úr mikilli golffjölskyldu í Gijon og getur beðið einhvern af 10 af nánustu skyldmennum sínum í Gijon að spila æfingahring við sig, þ.á.m. frænda sinn, sem kynnti hann fyrir sportinu þegar Alfredo var 14 ára.

Helstu áhugamál Alfredo utan golfsins eru veiðar og fótbolti.

Alfredo gerðist atvinnumaður í golfi árið 2005.

Hann var meðal þeirra síðustu inn á Evróputúrinn 2008 (32. sæti) og spilaði vel keppnistímabilið 2009, varð m.a. í 4. sæti á Open de España, 2009. Á síðasta ári (keppnistímabilið 2010) gekk ekki eins vel og varð Alfredo að fara aftur í Q-school og fékk sem sagt kortið sitt fyrir 2011.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Rick Pearson, 19. desember 1958 (53 ára);   Arnheiður Ásgrímsdóttir, 19. desember 1956 (55 ára)Chris Greatrex, 19. desember 1963 (48 ára); Lorie Kane, 19. desember 1964 (47 ára); Sigfús Örn Óttarsson, 19. desember 1967 (44 ára).Wendy Miles, 19. desember 1970 (41 árs) og Sævar Pétursson, 19. desember 1974.

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is