Viðtalið: Stefán Teitur Þórðarson, GL.
Fyrsta viðtal ársins 2012 er við Stefán Teit Þórðarson, 13 ára, í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Stefán Teitur spilaði á Arionbankamótaröð unglinga s.l. sumar, 2011, með góðum árangri og komst m.a. í fréttirnar þegar hann fór holu í höggi á 16. braut á Hamarsvelli í Borgarnesi á einu mótanna á mótaröðinni. Þá var hann 12 ára. Stefán Teitur er ekki bara í golfi, heldur æfir líka fótbolta með ÍA. Ráðið, sem Stefán Teitur gefur öðrum kylfingum í lok viðtalsins er eftirminnilegt og gott; reyndar var allt viðtalið við Stefán Teit gott, því hér er greinilega á ferðinni flottur framtíðaríþróttamaður. Hér fer viðtalið við Stefán Teit:
Fullt nafn: Stefán Teitur Þórðarson.
Klúbbur: GL
Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist á Akranesi, 16. október 1998.
Hvar ertu alinn upp? Ég fluttist 2 mánaða til Svíþjóðar og var þar í 2 ár – síðan var ég 3 mánuði á Akureyri og svo fluttist ég til Akraness og hef verið hér síðan.
Hverjar eru fjölskylduaðstæður – spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á einn bróður, Þórð, sem er 16 ára og 5 ára systur Katrínu. Pabbi fer stundum í golf og mamma fer í eitt og eitt skipti.
Hvenær byrjaðir þú í golfi? Fyrir 4 árum, þegar ég var 8-9 ára.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Allir vinir mínir fóru í golf ég fór með þeim og fannst bara gaman.
Hvað starfar þú? Ég er í 8. bekk í Grundarskóla.
Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli? Skógarvelli.
Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Höggleik, því þar er maður ekki alltaf að keppa við einhvern annan – þá er maður bara bara að hugsa um sjálfan sig.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Garðavöllur á Akranesi.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? Mig hefur alltaf langað til að spila á St. Andrews.
Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju? Grafarholtið, því það er flott landslag í honum.
Hvað ertu með í forgjöf? 14,3.
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? 79 á Garðavelli og í Borgarnesi (meistaramóti GL og í Íslandsmótinu í holukeppni).
Hvert er lengsta drævið þitt? 245 metrar, held ég í meðvindi á 16. holu á Akranesi, sumarið 2011.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? Að fara að holu í höggi á 16. braut, á Hamarsvelli, í Borgarnesi.
Hvaða nesti ertu yfirleitt með í pokanum? Ég er með Corný og brauðsneið.
Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum? Fótbolta og badminton með ÍA.
Hver er uppáhaldsmatur, uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbókin þín? Uppáhaldsmaturinn minn er kjúklingur í mangósósu; uppáhaldsdrykkurinn er appelsínusafi; uppáhaldstónlist? Ég veit það ekki alveg, segi bara Usher, stundum er það rapp Eminem, það er bara allskonar; uppáhaldskvikmyndin er Bruce Almighty og uppáhaldsbókin er „Rauðu augun“, sem er spennusaga.
Hver er uppáhaldskylfingur nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Kvk.: Valdís Þóra, hún er líka frænka mín Kk: Camilo Villegas.
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Í pokanum hjá mér er dræver, 3-tré, hybrid, 5 járn, 6 járn, 7 járn, 8 járn og 9 járn og 48° og 56° wedge-ar og pútter. Uppáhaldskylfan mín er 6-járnið.
Hefir þú verið hjá golfkennara? Já, Karli Ómari, hann er golfkennari hér á Akranesi.
Ertu hjátrúarfullur? Nei.
Hvert er meginmarkmið í golfinu og hvert er meginmarkmiðið í lífinu? Í golfinu er það að komast eins langt og ég get og í lífinu að eiga heilbrigt líf.
Hvað finnst þér best við golfið? Það eru golfvellirnir sjálfir – umhverfið er svo fallegt.
Hefir þú eitthvað gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Það verður alltaf að halda ró sinni, þegar maður verður stressaður.
Að síðustu:
Spurning frá síðasta kylfingi, sem var í viðtali hjá Golf 1 (Þórdísi Geirsdóttur, GK):
Geturðu nefnt 3 kylfinga, sem þig myndi langa til að spila með?
Svar Stefán Teits: Camilo Villegas, Phil Mickelson og Birgi Leif Hafþórsson.
Geturðu komið með spurningu fyrir næsta kylfing?
Spurning Stefán Teits fyrir næsta kylfing: Hvaða golfmóti langar þig næst til að spila á?
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023