GG: Páll Erlingsson endurkjörinn formaður á aðalfundi 29. desember s.l.
Á heimasíðu Golfklúbbs Grindavíkur er eftirfarandi frétt af aðalfundi klúbbsins, sem fram fór 29. desember s.l.:
„Ágætis rekstrarár er að baki hjá Golfklúbbi Grindavíkur og nemur hagnaður ársins um 2 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins voru um 28 milljónir en rekstrargjöld um 26 milljónir sem er hækkun um 4 milljónir frá árinu 2010. Aðalfundur klúbbsins fóru fram á Salthúsinu 29. des síðastliðinn og var hann vel sóttur. Sjá skýrslu gjaldkera fyrir árið 2011
Um 209 meðlimir eru nú í GG og hefur þeim fækkað frá í fyrra. En það má finna í því að skráningarkerfi sem GG notast við var yfirfarið og þeir sem ekki greiddu ársgjöld voru teknir af félagalistanum
Klúbburinn og Grindavíkurbær gerðu samning árið 2008 þar sem klúbburinn fékk 51 milljón króna styrk til að fara í stækkun vallarins. GG fékk leyfi til nota hluta þeirrar fjárhæðar til að borga niður óhagstæð erlend lán. Það hefur verið greitt til baka að stórum hluta. Enn standa yfir stækkunarframkvæmdir á vellinum og áætlanir gera ráð fyrir um 12 milljón króna kostnaði til að ljúka þeim. Einnig hefur verið lögð mikil vinna við stækkun og endurbætur á framtíðarskála GG. Kostnaður við þær framkvæmdir er kominn í 8.5 milljónir en stefnt er að því að ljúka þeim í vor, áður en sumaropnun hefst. Sjá skýrslu stjórnar fyrir árið 2011
Ákveðið var að hækka félagsgjöld umfram það sem aðalfundur 2010 hafði ákveðið. Það er gert til að tryggja enn betur rekstrargrundvöll golfklúbbsins og samræma gjaldflokkana Þess ber að geta að Golfklúbbur Grindavíkur er stoltur af því að bjóða sérstök námsmannagjöld, einnig fyrir örorkulífeyrisþega aldraða, nýliðagjöld og hjónagjöld sem eru með þeim lægstu á landinu. Einn ber að hafa í huga að félagsgjöldin verða áfram með þeim lægstu miðað við 18 holu golfvelli landsins. Sjá gjaldskrá árið 2012
Páll Erlingsson var endurkjörinn formaður klúbbsins en hann hefur setið sem formaður undanfarin fjögur ár. Stjórn GG árið 2012 er því eftirfarandi: Páll Erlingsson (formaður), Halldór Einir Smárason (ný í stjórn), Jóhann Einarsson, Jón Guðmundsson, Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Jón Júlíus Karlsson, og Sigvaldi Þorsteinsson. Í varastjórn eru Halldór Jóel Ingvason, Friðrik Ámundason og Jóhann S. Ólafsson sjá stjórnarskipan.
Páll Þorbjörnsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs og kann golfklúbburinn honum miklar þakkir fyrir gott starf.“
Heimild: gggolf.is
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster