Hver er kylfingurinn: Minea Blomqvist-Kakko?
Í gærkvöldi var Golf 1 með frétt þess efnis að Minea Blomqvist, ára hefði gifst kæresta sínum til margra ára, atvinnukylfingnum Roope Kakko. Minea og Roope eru svo að segja „golfpar Finnlands.“ En þau eru ekki fyrirferðarmikil í fréttum miðað við margar aðrar golfstjörnur – þannig að hver er Minea? Minea Blomqvist fæddist í Espoo í Finnlandi 12. mars 1985. Hún byrjaði að spila golf 9 ára. Hún var sú yngsta til þess að sigra í Finnish Amateur Championships árið 2001, en þá var hún bara 16 ára. Minea átti tvívegis sæti í Solheim Junior Cup árin 2002 & 2003. Sem áhugamaður var hún í efsta sæti á finnska listanum yfir Lesa meira
Minea Blomqvist og Roope Kakko gengu í það heilaga Gamlársdag
Finnsku atvinnukylfingarnir Minea Blomqvist og Roope Kakko játtust hvort öðru á Gamlársdag í kirkju heilags Mikaels í bænum Kirkkonummi í Finnlandi á Gamlársdag 2011. Minea er fyrrum W-7 módel og er fyrsti finnski kvenkylfingurinn til þess að spila á LPGA. Roope spilar á Evróputúrnum og hefir oftar en einu sinni verið kaddý konu sinnar. Viðstaddir giftinguna var rjóminn af finnskum atvinnukylfingum. Roope hélt strax daginn eftir til Suður-Afríku til að taka þátt í Africa Open, en tímabilið hjá brúðurinni nýbökuðu hefst ekki fyrr en í febrúar þegar LET hefst í Ástralíu. Bæði Minea og Roope munu nú framvegis keppa undir nýja fjölskyldunafninu Blomqvist-Kakko.
Q-school LET: Tinna komin áfram á lokaúrtökumót Evrópumótaraðar kvenna!
Tinna Jóhannsdóttir, GK, stóð sig frábærlega á undanúrtökumóti Evrópumótaraðar kvenna (ens.: Ladies Euroepean Tour, skammst. LET) ! Hún lauk keppni fyrr í dag á Norðurvelli La Manga, í Murcia á Spáni á samtals +6 yfir pari (74 71 71 78) og er komin áfram á lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar! Tinna lenti í 13. sæti ásamt Ayako Ishikawa frá Japan. Í efsta sæti var enska stúlkan Hannah Burke (sjá mynd hér að neðan) og sigraði hún í B-hóp með nokkrum yfirburðum, á skori upp á -11 undir pari samtals. Tinna fékk 3 skolla og 1 fugl á fyrri helmingi Norðurvallar og 1 skramba og 3 skolla á seinni helmingnum, eitthvað spennufall þar, því Lesa meira
Smá golfgrín um miðja viku!
Miðvikudagsgrínið felst bara í ofangreindri mynd af „greeni“! Smá fimmaurabrandari! Þetta er mynd sem eflaust margir kylfingar eru búnir að sjá… en sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Myndin heitir upp á ensku: „Golf for beginners“ eða golf fyrir byrjendur. En hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna í golfinu, þá eru hringir, þar sem maður óskar sér að golfholurnar séu einmitt svona! Sérstaklega á vorin þegar byrjað er aftur eftir þungan vetur …. þ.e.a.s. ef púttin hafa ekki verið æfð þeim mun betur, en nú er einmitt tíminn til að æfa púttin!
Tiger Woods spilar á Pebble Beach í fyrsta sinn í 10 ár
Á heimasíðu Tiger Woods er eftirfarandi frétt: „Tiger Woods tilkynnti s.l. mánudag að hann muni hefja 2012 PGA Tour keppnistímabilið á AT&T Pebble Beach National Pro-Am, sem fram fer 9.-12. febrúar n.k. Þetta er fyrsta skiptið sem hann keppir í þessu móti síðan 2002. „Ég er spenntur að byrja keppnistímabilið á PGA á AT&T Pebble Beach National Pro-Am,“ sagði Tiger „AT&T er frábær samstarfsaðili stofnunar minnar og ég hlakka til að spila í þessu móti. Ég hef ekki tekið þátt í mótinu á síðustu árum, en ég hef fullt af góðum minningum af Pebble. Það verður gaman að snúa aftur þangað.“ Meðal skemmtilegustu minninga hans eru frá árinu 2000 þegar hann Lesa meira
Golfútbúnaður: Nýi Adidas Powerband 4.0 golfskórinn
Í auglýsingu fyrir nýjasta Adidas golfskónum segir: „Adidas Powerband 4.0 golfskórinn (alías orkubandarskórinn) sér kylfingnum fyrir auknum krafti, stöðugleik og jafnvægisstjórnun. Orkubandarskórinn hefir lengi verið þekktur fyrir að koma í veg fyrir að orka tapist sem gerir kylfingnum kleift að færa til allan kraft sinn (orku) í gegnum sveifluna. Adidas Powerband 4.0 er útbúinn með „Powerband Chassis“, sem veitir stuðning og stöðuleik þvert yfir tábergið og gerir kylfingnum kleift að slá agressívari högg. Stöðuleikinn og þol golfskósins hafa verið bætt, þökk sé slitsterku ytra lagi Adidas skósins. Sérhver Powerband 4.0 Adidas golfskór er útbúinn Golf’s FitFOAM innansóla. Innansólinn, sem lítið fer fyrir er með TPU á fremri parti fótarins ásamt Lesa meira
Q-school LET: Tinna tíar upp
Nákvæmlega á þessari mínútu er Tinna Jóhannsdóttir, GK, að tía upp fyrir lokahringinn í Q-school, þ.e. úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna (ens.: Ladies European Tour, skammst.: LET). Hún á rástíma kl. 13:00 að staðartíma (kl. 12:00 hér heima á Íslandi). Spilað er á Norður-velli La Manga, í Murcia, á Spáni. Tinna er sem stendur í 5. sæti á samtals -1 höggi undir pari; 35 efstu komast áfram í lokúrtökumótið og lítur allt mjög vel út fyrir Tinnu í augnablikinu Þær sem deila 34. sætinu fyrir lokahringinn í B-hóp Tinnu eru á skori upp á samtals +9 hver, þannig að það munar 11 höggum á Tinnu og þeim. En golf er golf Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Þormóðsdóttir – 11. janúar 2012
Sumir dagar eru þannig að erfitt er að finna nokkurn kylfing, sem fæddist á viðkomandi degi. Á öðrum er ofgnótt góðra kylfinga, sem á sama afmælisdaginn. Dagurinn í dag, 11. janúar er einn slíkur dagur. Það er hreinlega erfitt að velja um hvern á að skrifa. Rétt er þó að að taka einn sérstaklega út, Kolbrúnu Þormóðsdóttur, í Golfklúbbnum Keili en hún á 60 ára stórafmæli í dag! Hún á sama afmælisdag, upp á ár og bandaríski stórkylfingurinn Ben Crenshaw, uppnefndur „Gentle Ben“ eða „Ljúfi Ben“, en það eiga þau sameiginlegt fyrir utan að vera bæði góð í golfi og eiga bæði merkisafmæli í dag! Ben Crenshaw sigraði m.a. á Masters Lesa meira
GO: Skellið ykkur á grunnnámskeið í golfi hjá Magnúsi og Phill í MPgolf!
Nú þegar vetur konungur ríkir og ekkert er hægt að spila golf utan dyra er um að gera að skella sér til golfkennara og láta hann/þá fara yfir sveifluna innandyra. MPgolf, þeir Magnús Birgisson og Phill Hunter bjóða nú upp á grunngolfnámskeið. Hér eru nánari upplýsingar um námskeiðið: Staðsetning: Inniaðstaða GO í Kauptúni í Garðabæ ( hlýtt og notalegt). Markhópur: Allir sem hafa áhuga á að bæta grunnatriðin í sveiflunni. Hópur 1. KL: 12.00-13.00 Þriðjudaginn 17. janúar. Fimmtudaginn 19. janúar. Þriðjudaginn 24. janúar. Fimmtudaginn 26. janúar. Hópur 2. KL: 18.00-19.00 Þriðjudaginn 17. janúar. Fimmtudaginn 19. janúar. Þriðjudaginn 24. janúar. Fimmtudaginn 26. janúar. Kennarar: Magnús Birgisson og Phill Hunter. Verð: Kr. 9500 Lesa meira
LET: Rebecca Flood frestar giftingu til að taka þátt í golfmóti
The Herald Sun í Ástralíu er með frétt þess efnis að Rebecca Flood, sem spilar á LET hafi frestað brúðkaupi sínu til þess að spila á Victorian Open.Blaðamaðurinn Mark Hayes skrifaði að Flood og kæresti hennar Geoff Artis, sem er kaddý Anne-Lise Caudal á LET, hefðu frestað brúðkaupi sínu að beiðni framkvæmdastjóra Australian Ladies Professional Golf, Warren Sevill.The Vic Open var haldið samhliða samsvarandi opnu móti hjá körlunum og kom aftur á mótaskránna eftir að hafa verið fjarverandi í 20 ár.Flood var beðin um að styðja mótið með því að fresta brúðkaupinu.„Þetta var ekkert svo slæmt, í raun, þetta hefir allt snúist til hins besta,“ sagði Rebecca Flood, sem nú mun þess Lesa meira









