Evróputúrinn: An og Molinari leiða fyrir lokahringinn á Wentworth
Það eru Francesco Molinari og Byeong Hun An sem leiða eftir 3. hring BMW PGA Championship. Þeir eru búnir að spila á 14 undir pari, 202 höggum. Í 3. sæti er Thaílendingurinn Thongchai Jadiee á samtals 12 undir pari. Það stefnir í spennandi úrslitakeppni á morgun. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags á BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:
GH: Opnun vallar í dag!
Ákveðið var að opna fyrir umferð um Katlavöll á Húsavík, laugardaginn 23.maí, en það verða vetrarteigar og vetrarflatir (hvítu staurarnir) fyrst um sinn. GH biður fólk að virða merkingar og fara ekki um þar, sem er bleyta. Setja torfusneppla aftur í sárið. 4.braut er stutt, og til að komast uppá 5.teig er farið eftir stígnum ekki fara inn í laut. Færa skal útaf flötum, alls ekki slá þar eða pútta. Æfingasvæðið er opið, það eru frekar fáar kúlur að verða eftir í kúluvélinni svo að hún gæti tæmst. Umgengnin um æfingasvæðið mætti vera betri, torfusnepplar út um víðan völl!! Einnig er litli völlurinn opinn. Annars er vorið að bresta á og Lesa meira
Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2015 (1): Kristján Jökull sigraði!
Í dag fór fram á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni 1. mótið á Áskorendamótaröðinni. Sigurvegari varð Kristján Jökull Marinósson, GS, en hann var með besta skor af þeim 45 sem luku mótinu. Kristján Jökull lék Vatnsleysuna á glæsilegum 8 yfir pari, 80 höggum!!! Sjá má myndaseríu frá 1. móti Áskorendamótaraðarinnar með því að SMELLA HÉR: Af 45 þátttakendum voru flestir þátttakendur í strákaflokki, 14 ára og yngri, en sætisröð þeirra var eftirfarandi: 1 Kristján Jökull Marinósson GS 5 F 41 39 80 8 80 80 8 2 Sveinn Andri Sigurpálsson GM 2 F 44 43 87 15 87 87 15 3 Ísak Örn Elvarsson GL 7 F 43 44 87 15 87 Lesa meira
Golfgrín á laugardegi
Faðir, sonur og sonarsonur fóru út á völl til þess að spila sitt vikulega golf. Þegar þeir hafa rétt náð fyrsta teig kemur falleg ung ljóshærð kona með golfpokann sinn. Hún útskýrði að sá sem hún hefði ætlað að spila við hefði ekki mætt og spurði þremenningana hvort hún mætti spila með þeim. Auðvitað samþykktu strákarnir þetta! Ljóskan þakkaði brosandi fyrir sig og sagði: „Sjáið nú til ég vinn á nektarstað, sem dansari þannig að það er ekkert sem sjokkerar mig. Ef einhver ykkar vill reykja vindla út á velli, fá sér bjór, veðja, blóta, segja dónabrandara eða gera hvað það sem þið gerið venjulega, þá bara gerið það! En ég nýt þess Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Ingibergsson – 23. maí 2015
Afmæliskylfingur dagsins er Guðmundur Ingibergsson, en hann er fæddur 23. maí 1965 og á því 50 ára stórafmæli. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Guðmundi til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Guðmundur Ingibergsson (50 árs – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: David Graham, 23. maí 1946 (69 ára); Gary Dennis McCord, 23. maí 1948 (67 ára); Marina Arruti, 23. maí 1972 (43 ára) ; Hulda Birna Baldursdóttir, GKG, 23. maí 1973 (42 ára); Jamie Elson, 23. maí 1981 (34 ára) ….. og …… Ellert Unnar Sigtryggsson (45 ára) Lars Søndergaard Olga Gunnarsdottir (47 ára) Árni Páll Lesa meira
Golfsamtök fatlaðra fengu fyrstu úthlutunina úr minningarsjóði Harðar Barðdal
Í gær var úthlutað í fyrsta sinn úr minningarsjóði Harðar Barðdal, frumkvöðuls og afreksíþróttamanns úr röðum fatlaðra. Það eru Golfsamtök fatlaðra, GSFÍ sem taka við SNAG golfbúnaði frá sjóðnum sem er æfingabúnaður sem auðveldar bæði fötluðum sem ófötluðum að tileinka sér golftæknina á sem auðveldastan hátt. Sjóðurinn var stofnaður til þess að heiðra minningu Harðar Barðdal, frumkvöðuls og afreksíþróttamanns úr röðum fatlaðra. Markmiðið er að halda á lofti þeim kyndli er Hörður tendraði með starfi sínu í þágu fatlaðra íþróttamanna almennt og í þágu fatlaðra kylfinga sérstaklega. Var það einlægur ásetningur hans að hvetja fatlaða til golfæfinga og að auka aðgengi og áhuga þeirra á golfíþróttinni. Hugmyndin að stofnun sjóðsins Lesa meira
PGA: Na efstur í hálfleik á Colonial
Bandaríski kylfingurinn Kevin Na er efstur eftir 2. keppnisdag á Crowne Plaza mótinu. Hann er samtals búinn að spila á 130 höggum (64 66). Tveimur höggum á eftir er „einn ofmetnasti kylfingur PGA“ Ryder Cup hetja Evrópu Ian Poulter. Síðan er heimamaðurinn Boo Weekley í 3. sæti. Til þess að sjá stöðuna á Crowne Plaza mótinu SMELLIÐ HÉR:
Eimskipsmótaröðin 2015: Fylgist með á skortöflu hér
Eimskipsmótaröðin hefst á Hólmsvelli í Leiru í dag. Flestir okkar bestu kylfinga taka þátt. Fylgjast má með á skortöflu með því að SMELLA HÉR:
Íslandsbankamótaröðin 2015: Sigurlaug Rún efst e. 1. dag í flokki 17-18 ára
Það er stúlka sem er efst yfir alla keppendur eftir 1. keppnisdag á Íslandsbankamótaröðinni, sem hófst í gær. Það er Sigurlaug Rún Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Glæsilegt hjá Sigurlaugu Rún!!! Sigurlaug Rún lék 1. hring á 72 höggum. Í 2. sæti eru 4 keppendur allt piltar: Hlynur Bergsson og Hákon Örn Magnússon úr GR; klúbbfélagi Sigurlaugar Rún úr Golfklúbbnum Keili, Vikar Jónasson, sem búinn er að standa sig frábærlega undanfarið á opnum mótum og Björn Óskar Guðjónsson úr GM. Allir léku þeir á 74 höggum. Sjá má stöðuna í flokki 17-18 ára með því að SMELLA HÉR:
LET Access: Ólafía á +2 og Valdís á +6 e. 1. dag í Svíþjóð
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék á 74 höggum eða +2 á fyrsta keppnisdeginum af alls þremur á LET Access móti sem fram fer í Svíþjóð. Íslandsmeistarinn í golfi 2014 er í 19. sæti. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni lék á 78 höggum eða +6 í dag og er hún í 64.– 73. sæti. Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: Mótið fer fram á Haverdals vellinum í Halmstad í Svíþjóð. Tveir kylfingar deila efsta sætinu á -2 eftir fyrsta hringinn. Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni í Evrópu – sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna á eftir sjálfri LET Evrópumótaröðinni. Ólafía endaði í 5. sæti Lesa meira










