Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 19:30

Bjarki í 5. sæti í einstaklingskeppninni í Búlgaríu – Íslenska piltalandsliðið í 4. sæti eftir 2. dag mótsins!!!

Nú er 2. degi lokið á European Boys Challege Trophy, sem fram fer í  St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu og stendur dagana 20.-22. september. Loka- og úrslitahringurinn verður leikinn á morgun. Íslenska piltalandsliðið undir 18 ára hefir sett markið á 3. sætið.  Sem stendur eru „strákarnir okkar“ í 4. sæti í liðakeppninni, á samtals 36 yfir pari (359 387) og eru  7 höggum á eftir belgíska landsliðinu, sem er í 3. sæti; 10 höggum á eftir danska liðinu sem er í 2. sæti og 14 höggum á eftir liði Sviss, sem nú er í 1. sæti. Enn er möguleiki á að krækja í 3. sætið – bara þarf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 13:50

Bandaríska háskólagolfið: Axel, Ólafía og Guðmundur Ágúst taka þátt í Mason Rudolph mótinu sem hefst í dag

Í dag hefst í Vanderbilt Legends Club, í Franklin, Tennessee, Mason Rudolph mótið og er það bæði kvenna og karlamót. Axel Bóasson, GK keppir fyrir hönd Mississippi State, en Haraldur Franklin, GR. sem einnig er í Mississippi State virðist ekki vera með að þessu sinni.  Axel er að fara út eftir nokkrar mínútur. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, keppir fyrir hönd East Tennessee State og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, sem fyrr, fyrir Wake Forest háskólann. Golf 1 óskar þeim Ólafíu, Axel og Guðmundi Ágústi góðs gengis í dag. Til þess að fylgjast með strákunum SMELLIÐ HÉR:  Til þess að fylgjast með Ólafíu Þórunni SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 13:30

LPGA: Lexi Thompson í forystu með 63 högg eftir 1. dag Navistar LPGA Classic

Hin 17 ára Lexi Thompson átti glæsihring á Navistar LPGA Classic, sem hófst á Senator golfvellinum í Capitol Hill, í Prattville, Alabama í gær. Lexi skilaði sér í hús á 9 undir pari, 63 höggum. Hún var með hreint skorkort sem á voru 9 fuglar og 9 pör.  Með þessum frábæra árangri sínum, sem kom henni í 1. sæti mótsins strax á 1. degi, jafnaði hún mótsmetið. „Það er virkilega góð tilfinning að ná fyrsta hring upp á 63 undir beltið, en maður verður bara að taka eitt högg í einu,“ sagði Lexi, eftir hringinn góða. „Það er ekki hægt að fara fram úr sér í þessum leik, þannig að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 12:30

GKG: Sjö afrekskylfingar úr GKG hefja keppni á Lalandia Open í Danmörku á morgun

Sjö af okkar fremstu unglingum hefja keppni á morgun á Lalandia Open mótinu, sem fer fram á Gyttegård vellinum nálægt Billund í Danmörku. Þau sem keppa eru Gunnhildur Kristjánsdóttir, Særós Eva Óskarsdóttir, Aron Snær Júlíusson, Daníel Hilmarsson, Egill Ragnar Gunnarsson, Kristófer Orri Þórðarson og Óðinn Þór Ríkharðsson. Þessir krakkar stóðu sig öll mjög vel í sumar í Arionbankamótaröðinni og er þetta liður í afreksstefnu GKG að veita þeim sem hafa staðið sig best í sumar aðstoð og tækifæri til að lengja tímabilið og keppa á erlendri grundu. Mótið er leikið á einum degi, 36 holur, höggleikur án forgjafar. Hægt er að fylgjast með gengi þeirra með því að SMELLA HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 12:00

Saga Ryder bikars keppninnar (1927-1937) – 1. hluti af 9 – myndskeið

Nú eftir nákvæmlega viku hefst Ryder bikars keppnin í Medinah Country Club í Chicago, Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn frá því að keppnin hófst, sem hún fer fram í Chicago. Lið Evrópu vann síðustu keppni 2010 á Celtic Manor Resort í Wales með 14 1/2 vinningi gegn 13 1/2 Bandaríkjamanna. Á stundu, sem þessari er e.t.v. við hæfi að rifja stuttlega upp sögu Ryder bikar keppninnar. Til þess að sjá myndskeið um sögu Ryder Cup (1. hluta) SMELLIÐ HÉR:  Formleg keppni hófst eftir sýningarleik árið 1926 milli bandarísks og bresks liðs á East Course, Wentworth Club, Virginia Water, Surrey, í Bretlandi. Fyrsta opinbera Ryder bikar keppnin hófst því 1927 í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 11:15

Ólafur Björn í 49. sæti í Dallas eftir 2. dag úrtökumótsins

Ólafur Björn Loftsson, NK, er í 49. sæti á úrtökumóti fyrir PGA mótaröðina sem fram fer þessa dagana í The Dallas Golf Club. Ólafur Björn er samtals búinn að spila á 145 höggum (74 71). Lokahringurinn verður spilaður í dag. Ólafur Björn að vera í 38. sæti eða ofar til þess að tryggja sér sæti á næsta stig úrtökumótsins. Eins og staðan er nú er Ólafur Björn 2 höggum frá því marki og verður því að eiga góðan hring í dag ætli hann sér áfram. Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis! Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á úrtökumótinu í Dallas SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 07:00

PGA: Hápunktar og högg 1. dags á Tour Championship

Nú um helgina fer fram lokakeppni FedExCup umspilsins í East Lake, Atlanta, Georgía í Bandaríkjunum; Tour Championship. Það eru Tiger Woods og Justin Rose sem leiða eftir 1. dag; eru báðir á 4 undir pari, 66 höggum, með 6 fugla og 2 skolla, hvor. Aðeins eru 30 stigahæstu í umspilinu sem eftir standa og munur milli forystumannanna og þess, sem er í 30. sæti 9 högg, en í því neðsta er Nick Watney með 75 högg. Flestir keppendur eða 7 spiluðu á 1 undir pari, 69 höggum í gær, þ.á.m. nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Tour Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þess Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2012 | 21:30

PGA: Tiger og Justin Rose leiða eftir 1. hring Tour Championship

Í dag hófst Tour Championship í East Lake Club. Það eru Tiger Woods og Justin Rose sem leiða eftir 1. dag – báðir komu í hús á 4 undir pari, 66 höggum. Tiger missti rétt í þessu af fuglapútti á 18. flöt, sem hefði tryggt honum einum forystu í mótinu. Tiger fékk 6 fugla og 2 skolla á hringnum alveg eins og Rose. Í 2. sæti á 67 höggum eru þeir Scott Piercy, Boo Van Pelt, Steve Stricker og Matt Kuchar, allt Bandaríkjamenn. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Tour Championship SMELLIÐ HÉR:  


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2012 | 21:00

Bein útsending frá Tour Championship

Á heimasíðu PGA Tour er linkur inn á beina útsendingu frá síðustu umferð haustmótaraðarinnar, í FedExCup, Tour Championship, sem fram fer í East Lake golfklúbbnum. Þar etja 30 sem eftir standa í FedExCup umspilinu kappi um 10 milljón dollara bónus pott. Meðal þeirra er bestu kylfingar heims: Rory McIlroy, Tiger Woods, Dustin Johnson, Zach Johnson, Lee Westwood og Sergio Garcia svo einhverjir séu nefndir. Eftir að komið er á heimasíðu PGA Tour þarf að smella á örina við hliðina á LIVE merkið í glugganum og þá birtist beina útsendingin, en til þess að komast á heimasíðu PGA Tour SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2012 | 17:15

Úlfar Jónsson: „Við stefnum á topp 3″

Golf 1 tók örstutt viðtal við landsliðsþjálfarann, Úlfar Jónsson, sem sjálfur var staddur á teig, að fara að spila golf í góðviðrinu hér sunnanlands. Golf 1: Hvernig finnst þér strákarnir vera að standa sig í Búlgaríu? Úlfar: Mjög vel – Skorin voru góð í dag – Ragnar Már var á 67 – svo vorum við með 70, 71,72 sem eru mjög flott skor. Verst að við urðum að skila inn 79. En við erum aðeins 6 höggum frá 3. sætinu og 7 höggum frá 1.-2. sætinu, þannig að ef allir spila skv. getu sinni þá er þetta fljótt að koma. Þetta fer að detta inn á morgun og á næstu Lesa meira