Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 14:30

Golfið er fjölskyldusport hjá Lexi sem er efst þegar Navistar Classic er hálfnað

Lexi Thompson, 17 ára, leiðir þegar Navistar LPGA Classic er hálfnað á 12 undir pari. Ekki er ætlunin að skrifa milliúrslitafrétt í mótinu, þar sem kylfingar á borð við Michelle Wie komust ekki einu sinni í gegnum niðurskurð, að öðru leyti en því að vísa til skortöflunnar, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:  Hins vegar er ætlunin að beina sjónum  að efstu konunni á skortöflunni. Hún ólst upp í litlum bæ í Flórída, Coral Springs og fjölskyldusportið var allt frá blautu barnsbeini, að spila golf á nærliggjandi golfvelli, TPC Eagle Trace. Jafnvel þó að á yfirborðinu hafi virtst sem um sakleysislegt fjölskyldupikknikk væri að ræða þar sem spilað var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 12:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 30 – Harry Vardon

S.l. sunnudag hófst hér á Golf 1 ný greinaröð 10 smásagna eftir PG Wodehouse eins ástsælasta enska rithöfundar og húmorista á framanverðri 20. öld. Sögurnar eftir Wodehouse sem sagðar verða hér á hverjum næstu 9 sunnudaga, (en sú fyrsta, „Klikkun Cuthberts“ birtist s.l. sunnudag verður birt aftur hér til upprifjunnar, samhliða eða einmitt vegna þessarar greinar). Golfsmásögurnar 10 eru sjálfstæðar og úr bók hans sem heitir The Clicking of Cuthbert.  Í fyrstu sögunni sem ber sama heiti og bókin koma tveir af þekktustu kylfingum Breta við sögu: Abe Mitchell og Harry Vardon, og verður sá síðarnefndi kynntur hér á eftir. Á morgun birtist 2. golfsagan úr bókinni, stytt endursögn smásögunar: „Kona er aðeins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 11:50

The Clicking of Cuthbert 1. saga: Klikkun Cuthberts

Í fyrstu smásögu PG Wodehouse í The Clicking of Cuthbert, sem ber samnefnt heiti og bókin er „The Oldest Member,“ eða elsti félaginn í golfklúbbnum kynntur til sögunnar. Hann er sögumaður í öllum öðrum sögunum sem fylgja. Clicking of Cuthbert hefst á því að ungur maður kemur í uppnámi inn í klúbbhúsið, hendir sér niður í stól og segir þjóninum að hann megi eiga kylfurnar sínar eða ef hann vilji þær ekki gefa kylfuberunum þær. Hann er í uppnámi og elsti félaginn segir okkur að hann hafi fylgst með manninum á vellinum stuttu áður, þar sem hann sló 7 högg á 1. braut og setti síðan nokkra bolta í vatnið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 22:30

LET: Nikki Garrett enn í forystu á Tenerife Open de España Femenino eftir 2. dag

Í dag var fram haldið keppni á Tenerife Open de España Femenino á Las Americas golfvellinum í Tenerife. Mótið stendur dagana 20.-23. september, þ.e.a.s. er 4 daga mót. Þegar mótið er hálfnað er  ástralska fegurðardísin Nikki Garrett enn í forystu þrátt fyrir fremur slakan hring í dag, miðað við gærdaginn hjá henni. Hún er samtals á 7 undir pari, 137 höggum  (64 73). Á hæla henni eru 4 kylfingar: Caroline Masson frá Þýskalandi, Celine Palomar og Joanna Klatten frá Frakklandi og hin enska Florentyna Parker, en allar eru þær á 6 undir pari, 138 höggum hver. Sjötta sætinu deila enn aðrir 4 kvenkylfingar þ.á.m. golfdrottningin Laura Davies, en allar eru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 22:00

PGA: Jim Furyk leiðir eftir 2. dag Tour Championship

Nú rétt í þessu var að ljúka 2. hring á síðasta móti FedExCup umspilsins, Tour Championship í East Lake, Atlanta, Georgia. Sá sem er í forystu eftir 2. dag er maðurinn með skrítnu sveifluna,  Jim Furyk. Hann spilaði í dag á 64 glæsihöggum og er því samtals á 7 undir pari, 133 höggum (69 64). Í 2. sæti er forystumaður gærdagsins Justin Rose, 1 höggi á eftir Furyk á samtals 6 undir pari, 132 höggum (66 68). Masters meistari ársins 2012 með bleika dræverinn, Bubba Watson deilir  3. sæti  með Bo Van Pelt, en báðir eru á samtals 5 undir pari Bubba (69 66) og Bo (67 68). Tiger hrundi niður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 21:20

Ólafur Björn komst áfram á 1. stig úrtökumóts fyrir PGA!!!

Ólafur Björn Loftsson, NK, tryggði sér sæti á næsta stig úrtökumóts fyrir PGA mótaröðina, sem er stórglæsilegt hjá Ólafi Birni!!! Hann lék lokahringinn í The Dallas Golf Club í dag á 3 undir pari, 67 höggum; fékk 5 fugla og 2 skolla.  Ólafur Björn lauk keppni á samtals 2 yfir pari (74 71 67). Spil Ólafs Björns varð sífellt betra eftir því sem leið á mótið og nú er hann kominn áfram, en 38 efstu í mótinu komust á næsta stig. Ólafur Björn varð T-34, þ.e. hann deildi 34. sætinu með Ryan Dagerman frá Dallas. Í efsta sæti á úrtökumótinu varð Wes Worster, sem var á samtals 9 undir pari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 21:00

Stefán Már og Þórður Rafn úr leik í Fleesensee

Stefán Már Stefánsson, GR og Þórður Rafn Gissurarson, GR eru úr leik á fyrsta stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina. Þórður Rafn komst ekki í gegnum niðurskurð, en skorið var niður eftir 3 hringi í gær. Það voru 54 kylfingar, sem spiluðu um eitt af efstu 24 sætunum í mótinu sem veita rétt til þátttöku á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina. Stefán Már var í þeim 54 kylfinga hópi, en þrátt fyrir frábæran hring í dag upp á 4 undir par, 68 högg tókst honum ekki að tryggja sér sæti á næsta stig úrtökumótsins. Hann lauk keppni  í 34. sæti og 4 höggum frá því að komast áfram. Til þess að sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 20:45

Afmæliskylfingur dagsins: Sólveig Leifsdóttir – 21. september 2012

Það er Sólveig Leifsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Sólveig er fædd 21. september 1951. Hún er í Golfklúbbi Ísafjarðar. Sólveig er góður kylfingur og það er sannkölluð ánægja og heiður að spila golf með henni; hún er góður félagi utan vallar sem innan. Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Sólveig Leifsdóttir  (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Lia Biehl, (spilaði á LPGA) 21. september 1969 (43 ára) ….. og ….. Svana Jónsdóttir (37 ára) Hulda Björg Birgisdóttir (52 ára) Albína Unndórsdóttir (65 ára) Siglfirðingur Siglufirði (54 ára) Erna Nielsen Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 20:15

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í 1. sæti á Mason Rudolph Women´s Champion eftir 1. hring!!!

Í dag hófst í Vanderbilt Legends Club í Franklin, Tennessee, Mason Rudolph Women´s Champion. Þátttakendur eru 81 frá 15 háskólum. Meðal keppenda í mótinu eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest. Það er skemmst frá því að segja að Ólafía Þórunn deilir 1. sætinu með 2 öðrum eftir 1. hring sem er ekkert nema frábært og stórglæsilegt!!! Ólafía kom inn á 71 höggi á 1. hring – fékk 4 fugla (á 1., 7., 8. og 9. braut) og 3 skolla.  Lið Wake Forest er sem stendur í 9. sæti. Golf 1 óskar Ólafíu Þórunni góðs gengis áfram!!! Til þess að sjá stöðuna á Mason Rudolph Women´s Champion SMELLIÐ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2012 | 19:45

Bein útsending frá Tour Championship

Á heimasíðu PGA Tour er linkur inn á beina útsendingu frá síðustu umferð haustmótaraðarinnar, í FedExCup, Tour Championship, sem fram fer í East Lake golfklúbbnum. Þar etja 30 sem eftir standa í FedExCup umspilinu kappi um 10 milljón dollara bónus pott. Meðal þeirra er bestu kylfingar heims: Rory McIlroy, Tiger Woods, Justin Rose, Dustin Johnson, Zach Johnson, Lee Westwood og Sergio Garcia svo einhverjir séu nefndir. Eftir að komið er á heimasíðu PGA Tour þarf að smella á örina við hliðina á LIVE merkið í glugganum og þá birtist beina útsendingin, en til þess að komast á heimasíðu PGA Tour SMELLIÐ HÉR: