Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 13:00
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 7. sæti eftir 2. dag Mason Rudoph Women´s Championship

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og lið Wake Forest er nú við keppni á Mason Rudoph Women´s Championship, í Vanderbilt, Tennessee. Mótinu lýkur í dag en það hefir staðið dagana 21.-23. september 2012 og eru þátttakendur 81 frá 15 háskólum. Í gær lauk Ólafía Þórunn við 2. hring og var þá samtals 2 yfir pari þ.e. á 146 höggum (71 75). Ólafía Þórunn fékk skramba, 2 skolla og 1 fugl á lokaholunni, þ.e. spilaði á 3 yfir pari í gær. Lið Wake Forest var í 8. sæti eftir 2. dag og stóð Ólafía Þórunn sig langbest af liðsfélögum sínum. Golf 1 óskar Ólafíu Þórunni góðs gengis í dag! Til þess að fylgjast Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 11:50
The Clicking of Cuthbert 2. saga: Kona er aðeins kona

Þessi saga er barn síns tíma en athuga verður að golfsmásagnabók PG Wodehouse „The Clicking of Cuthbert“ kom út 1923 þ.e. fyrir tæpum 90 árum síðan. Sagan „Kona er aðeins kona“ hefst á lýsingu elsta félagans á golfvelli sínum þar sem hann situr í hægindum í klúbbhúsinu og lætur fara vel um sig. Hann lýsir fyrstu brautini, sem er niðurímóti, 2. braut sem er par-3 þar sem þarf að slá yfir vatn, bylgjóttri 9. flötinni, sem eyðilagt hefir hring margs kylfingsins og síðan segist hann sjá glitta í 3. teig, 6. teig og skuggalegar glompurnar á 8. braut. „Ástin“ segir elsti félaginn „er tilfinning sem sannur kylfingur ætti alltaf að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 07:00
PGA: Hápunktar og högg 3. dags á Tour Championship

Það eru Brandt Snedeker og Justin Rose sem leiða eftir 3. dag Tour Championship á samtals 8 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Tour Championship að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá viðtal við Brandt Snedeker sem tekið var í lok 3. hrings SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá viðtal við Justin Rose, sem tekið var í lok 3. hrings SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta á 3. degi Tour Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá högg 3. dags sem Luke Donald átti SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 22:00
PGA: Brandt Snedeker og Justin Rose leiða fyrir lokadag Tour Championship!!

Það eru nýliðinn í Ryder Cup liði Bandaríkjanna, Brandt Snedeker og Englendingurinn Justin Rose sem leiða fyrir lokahring Tour Championship. Báðir eru þeir á 8 undir pari, 202 höggum; Brandt Snedeker (68 70 64) og Justin Rose (66 68 68). Í 3. sæti er Bandaríkjamaðurinn Ryan Moore, tveimur höggum á eftir, á 6 undir pari, 204 höggum (69 70 65). Fjórða sætinu deila forystumaður gærdagsins Jim Furyk, nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy og Masters meistarinn í ár Bubba Watson, allir á samtals 5 undir pari, 205 höggum, hver. Tiger Woods deilir síðan 7. sæti ásamt 3 öðrum á samtals 4 undir pari – 4 höggum á eftir Snedeker og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 21:45
Afmæliskylfingur dagsins: Áslaug Jónsdóttir – 22. september 2012
Það er Áslaug Jónsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Áslaug er fædd 22. september 1992 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Hún er í Golfklúbbi Akureyrar, en var þar áður í Golfklúbbnum Keili. Hún hefir m.a. farið í æfingaferð á Costa Ballena. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Áslaug Þóra Jónsdóttir (20 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jerry Anderson 22. september 1955 (57 ára); Philip Arnold Blackmar, 22. september 1957 (55 ára); Greg Bruckner, 22. september 1959 (53 ára); Michele Berteotti, 22. september 1963 (49 ára); Mikaela Parmlid (W-7 módel), 22. september 1980 (32 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 20:30
LET: Caroline Masson leiðir á Tenerife Open de España Femenino eftir 3. dag

Það er þýski kylfingurinn Caroline Masson sem leiðir eftir 3. hring Tenerife Open de España Femenino. Hún er samtals búin að spila á 8 undir pari, 208 höggum (69 69 70). Það var ansi hvasst á Kanaríeyjum í dag. Eftir hringinn sagði Masson m.a.„Þetta var ansi erfitt. Vindurinn var sterkari en s.l. daga og við vorum í vandræðum á annarri og það byrjaði síðan á næstum öllum öðrum holum þannig að við vorum í tímaþröng og ég var ansi stressuð stundum. Ég er glöð að ég kláraði á 2 undir pari. Mér finnst það gott skor í vindinum og ég er bara ánægð með stöðuna fyrir morgundaginn.“ Í 2. sæti á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 20:15
GKG: Afrekskylfingarnir 7 á Lalandia Open í Danmörku stóðu sig vel – Gunnhildur í 1. sæti!!! Aron Snær – Kristófer Orri og Óðinn Þór deildu 5. sæti!!!

Sjö afrekskylfingar úr GKG að spiluðu í dag á Lalandia Open mótinu, sem fór fram á Gyttegård vellinum nálægt Billund í Danmörku. Gunnhildur Kristjánsdóttir varð í 1. sæti, sem er stórglæsilegt hjá henni – TIL HAMINGJU!!! Gunnhildur spilaði á samtals 19 yfir pari, 159 höggum (80 79). Særós Eva Óskarsdóttir varð í 4. sæti á samtals 29 yfir pari , 169 höggum (84 85). Í piltaflokki voru þátttakendur 65. Svo virðist sem einungis hafi verið spilaðar 27 holur hjá piltunum. Þeir Aron Snær Júlíusson, Kristófer Orri Þórðarson og Óðinn Þór Ríkharðsson deildu 5. sætinu í piltaflokki á 5 yfir pari, 110 höggum; Aron Snær (73 37); Kristófer Orri (74 36) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 18:40
Bandaríska háskólagolfið: Axel átti glæsihring upp á 67 högg og Guðmundur Ágúst upp á 68 högg á 2. hring Mason Rudolph Championship

Axel Bóasson, GK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR áttu glæsilega hringi á Mason Rudolph Championship í dag, en mótið fer fram í Vanderbilt, Tennessee. Axel spilaði á 67 glæsihöggum, fékk 6 fugla og 2 skolla. Samtals er Axel búinn að spila á 1 yfir pari, 143 höggum (76 67). Axel deilir 16. sætinu ásamt 2 öðrum. Lið Mississippi State er í 3. sæti í mótinu ásamt Georgia State af 15 háskólum, sem þátt taka í mótinu. Axel er á næstbesta skori í liði sínu. Guðmundur Ágúst spilar líka í mótinu. Hann bætti svo sannarlega stöðu sína, en fyrir daginn í dag var hann í 79. sæti en flaug upp í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 18:00
Bjarki í 3. sæti í Búlgaríu!-Íslenska piltalands- liðið 3 grátlegum höggum frá 3. sætinu

Í dag var spilaður síðasti hringurinn á European Boys Challege Trophy, sem fram fór í St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu og stóð dagana 20.-22. september. Bjarki Pétursson, GB, komst í verðlaunasæti, þ.e. varð í 3. sæti í einstaklingskeppninni. hann spilaði á 1 undir pari, 212 höggum (70 75 67). Hann átti glæsihring í dag upp á 4 undir pari; byrjaði hringinn á glæsierni og bætti síðan við 5 fuglum og 3 skollum. Glæsilegt hjá Bjarka!!! Gísli Sveinbergsson, GK og Ragnar Már Garðarsson, GKG stóðu sig næstbest í íslenska piltalandsliðinu, deildu 8. sætinu ásamt rússneskum kylfingi á samtals 6 yfir pari, 219 höggum, hvor; Gísli (71 76 72) og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2012 | 17:17
Bein útsending frá Tour Championship

Á heimasíðu PGA Tour er linkur inn á beina útsendingu frá síðustu umferð haustmótaraðarinnar, í FedExCup, Tour Championship, sem fram fer í East Lake golfklúbbnum. Þar etja 30 sem eftir standa í FedExCup umspilinu kappi um 10 milljón dollara bónus pott. Meðal þeirra er bestu kylfingar heims: Rory McIlroy, Tiger Woods, Justin Rose, Dustin Johnson, Zach Johnson, Lee Westwood og Sergio Garcia svo einhverjir séu nefndir. Eftir að komið er á heimasíðu PGA Tour þarf að smella á örina við hliðina á LIVE merkið í glugganum og þá birtist beina útsendingin, en til þess að komast á heimasíðu PGA Tour SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

