Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 10:15
Guðrún Brá, Ólafía Þórunn og Valdís Þóra keppa á heimsmeistaramóti kvenlandsliða áhugamanna í Tyrklandi n.k. fimmtudag

Á fimmtudaginn n.k. hefst í Gloria Golf Club, Antalya, Tyrklandi heimsmeistaramót kvenlandsliða áhugamanna í golfi (ens.: Women´s World Amateur Team Championship.) Alls taka þátt 3-4 keppendur frá 53 þjóðum og því er um geysistórt mót að ræða. Af hálfu Íslands keppa þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Liðsstjóri íslenska liðsins er Ragnar Ólafsson. Golf 1 óskar þeim góðs gengis í Tyrklandi á fimmtudag!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 09:30
LEK: María Málfríður á besta skori kvenna á 4. viðmiðunarmóti LEK
Á laugardeginum, 22. september s.l., lauk 4. viðmiðunarmóti LEK til landsliðs 2013 á Hólmsvelli í Leiru. Veðrið var frábært og allar aðstæður hinar bestu og skor þátttakenda margra frábær. Starfsmenn klúbbsins stóðu vel að framkvæmd mótsins. Alls lauk 91 þátttakandi keppni. Síðasta viðmiðunarmót haustsins verður á Akranesi n.k. laugardag, 29. september. Úrslit urðu sem hér segir: Konur 50 ára og eldri Besta skor án forgjafar átti María Málfríður Guðnadóttir eða 83 högg. Flestir punktar með forgjöf: Þyrí Valdimarsdóttir 38 punktar, Bergljót Kristinsdóttir 36 punktar og Magdalena S H Þórisdóttir 35 punktar. Karlar 70 ára og eldri Bestu skor áttu Sigurður Albertsson eða 83 högg. Flestir punktar með forgjöf: Jóhannes Jónsson 38 punktar, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 08:00
LPGA: Stacy Lewis sigraði á Navistar LPGA Classic

Það var Stacy Lewis frá Bandaríkjunum sem sigraði á Navistar LPGA Classic á samtals 18 undir pari, 270 höggum (66 70 65 69). Fyrir sigurinn hlaut Lewis tékka upp á $ 195.000,- Lexi Thompson, sem átti titil að verja varð í 2. sætinu tveimur höggum á eftir Lewis þrátt fyrir frábæran lokahring upp á 66 högg. Ekki er laust við að hún hafi glutrað niður sigurvonunum með slökum hring á 3. degi upp á 74 högg. Samtals spilaði Lexi á 16 undir pari, 272 höggum (63 69 74 66). Angela Stanford, Haeji Kang og Mi Jung Hur deildu 3. sætinu á 15 undir pari og Sarah Jane Smith frá Ástralíu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 07:00
Bandaríska háskólagolfið: Axel í 17. sæti og Guðmundur Ágúst í 28. sæti á Mason Rudolph Championship

Í gær lauk í Vanderbilt Legends Club, í Franklín, Tennessee, Mason Rudolph Championship. Axel Bóasson, GK og Mississippi State lauk leik í 17. sæti og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og East Tennessee State varð í 28. sæti. Axel spilaði hringina 3 á samtals 3 yfir pari, 216 höggum (76 67 73). Hann stóð sig næstbest í liði Mississippi State sem varð í 4. sæti í liðakeppninni. Guðmundur Ágúst átti slæma byrjun í mótinu var í 79. sæti eftir 1. dag þegar hann skilaði inn 80 höggum sem var versta skorið í liðinu, en náði sér strax á strik með frábærum hring upp á 68 högg næsta dag, sem hann fylgdi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 01:00
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn varð í 4. sæti á Mason Rudolph Women´s Championship

Í gær lauk keppni á Mason Rudolph Women´s Championship í Vanderbilt Legends Club, í Franklin, Tennessee. Þátttakendur voru 81 frá 15 háskólum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, keppti ásamt liði sínu, Wake Forest í mótinu og náði þeim glæsilega árangri að verða í 4. sæti ! Samtals lék Ólafía Þórunn á 5 yfir pari, 221 höggi (71 75 75). Lið Wake Forest varð í 6. sæti. Ólafía Þórunn spilaði langbest af þeim í liði Wake Forest. Næsta mót Ólafíu Þórunnar er Tar Heel Invitational, sem fram fer 12.-14. október n.k. á Finley golfvellinum, á Chapel Hill í Norður-Karólínu. Til þess að sjá úrslitin í mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 00:30
PGA: Brandt Snedeker sigraði á Tour Championship – hápunktar 4. dags

Það er varla nokkur sem lengur efast um að val Davis Love III á Brandt Snedeker í bandaríska Ryder Cup liðið hafi verið kórrétt!!!! Brandt Snedeker sýndi og sannaði í kvöld að hann er einfaldlega frábær kylfingur – hann varð í 1. sæti á Tour Championship og vann 10 milljón dala risapottinn Hann sýndi stáltaugar þegar hann kom inn á fallegu skori 68 höggum á lokahringnum! Hann fékk skramba, skolla og 5 fugla og var heilum 3 höggum á undan þeim sem næstur kom inn þ.e. Justin Rose. Samtals spilaði Snedeker á 10 undir pari, 270 höggum (68 70 64 68). Eftir að sigurinn var í höfn sagði Snedeker m.a.: „Þetta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 18:15
Bein útsending frá Tour Championship

Á heimasíðu PGA Tour er linkur inn á beina útsendingu frá síðustu umferð haustmótaraðarinnar, í FedExCup, Tour Championship, sem fram fer í East Lake golfklúbbnum. Þar etja 30 sem eftir standa í FedExCup umspilinu kappi um 10 milljón dollara bónus pott. Meðal þeirra er bestu kylfingar heims: Rory McIlroy, Tiger Woods, Justin Rose, Dustin Johnson, Zach Johnson, Lee Westwood og Sergio Garcia svo einhverjir séu nefndir. Eftir að komið er á heimasíðu PGA Tour þarf að smella á örina við hliðina á LIVE merkið í glugganum og þá birtist beina útsendingin, en til þess að komast á heimasíðu PGA Tour SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 17:30
Gamlar Ryder Cup sögur – Seve og Ollie

John Huggan blaðamaður Golf Digest skrifaði nýlega grein um það þegar spænsku golfsnillingarnir Seve Ballesteros og José Maria Olazábal spiluðu saman í fyrsta sinn í fjórmenningi. Greinina nefnir hann því skemmtilega nafni „When Ollie met Seve“ – sem hmmmm….. hljómar einhvern veginn kunnuglega: Hér fer hluti greinarinnar í lauslegri þýðingu: „Fyrir byrjun Ryder Cup í Muirfield Village, 1987 sagði fyrirliði liðs Evrópu Tony Jacklin mönnum sínum að slappa af í 3 x 9 holu holukeppnum. „Spilum upp á svolítinn pening,” var dagsskipunin frá fyrrum meistara Opna bandaríska og Opna breska (Jacklin). Fyrsta liðið var skipað Þjóðverjanum Bernhard Langer og Skotanum Ken Brown, sem átti að „mæta” liði „Seve og Ollie” þ.e. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 15:15
LET: Stacey Keaton sigraði Caroline Masson eftir bráðabana á Tenerife Open de España Femenino

Það voru þær Caroline Masson, forystukona gærdagsins og ástralska stúlkan Stacey Keating sem urðu í 1. sæti eftir hefðbundnar 72 holur á Tenerife Open de España Femenino, sem fram fór á Las Americas golfvellinum á Tenerife nú um helgina. Báðar voru þær á samtals 9 undir pari, 279 höggum; Caro (69 69 70 71) og Stacey (70 69 70 70) og því varð að koma til bráðabana milli þeirra. 18. holan var spiluð og strax í fyrstu tilraun vann Keating með fugli meðan Masson fékk par. Í 3. sæti varð Trish Johnson frá Englandi 2 höggum á eftir forystukonunum, á 8 undir pari, 280 höggum (67 74 72 67). Í 4. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2012 | 15:00
Golfútbúnaður: Tauvasaklútar

Í leit að skemmtilegum golfgreinum handa lesendum Golf 1 rekst maður á ýmislegt á netinu …. margt varla birtingahæft. Golfútbúnaðargrein skyldi það vera en samt eitthvað eitthvað avant garde, eitthvað sem brýtur upp hversdagsleikann, ekki alltaf greinar um nýjasta golfskóinn, kylfur eða golfbolta…. þó þær séu góðra gjalda verðar. David Owen skrifaði nú nýlega ágætis grein í Golf Digest um nauðsyn þess að vera með tauvasaklúta í golfsettum að hausti og vetrum. Var hann þeirrar meiningar að þeir ættu eiginlega að vera staðalútbúnaður í hverju setti, þegar flensur, magakveisur, hiti, kuldi og kvef tækju völdin. David þessi býsnaðist yfir kleenex bréfvasaklútunum og það hversu ógeðfellt það væri þegar þeir fykju Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

