Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 18:45

Afmæliskylfingur dagsins: Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir – 24. september 2012

Það er Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Katrín er fædd 24. september 1961. Hún er í Golfklúbbnum á Hellu, sem líka á stórt afmæli í ár, en 60 ár eru frá stofnun klúbbsins.  Katrín hefir gegnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir GHR og er núverandi ritari klúbbsins. Hún er gift formanni klúbbsins Óskari Pálssyni og á 3 börn þ.á.m. afrekskylfinginn Andra Má. Sjá má nýlegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Tommy Armour, f. 24. september 1895- d. 11. september 1968) ; W-7 módelið Lisa Hall, 24. september 1967 (45 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is