Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2012 | 07:00
PGA: Ernie Els með í Frys.com Open sem hefst í kvöld – myndskeið

Ernie Els gaf til kynna að það að spila á Frys.com Open á síðasta ári hafi átt sinn hlut í risamótssigri hans í ár. Hann vonar að sagan endurtaki sig. Els varð T-4 í Frys.com Open á síðasta ári í Corde Valle Golf Club, sem var besti árangur hans það árið. En hann náði risamótssigri í ár, þegar hann vann, s.s. öllum er í fersku minni, Opna breska í sumar, sem var 4. risamótssigur hans. Meðal annarra stjarna, sem keppa á Frys.com Open í kvöld eru auk Els, belgíski kylfingurinn Nicolas Colsaerts, Vijay Singh, fyrirliði Ryder Cup liðs Bandaríkjanna 2012, Davis Love III og stjörnur úr bandaríska háskólagolfinu Patrick Cantlay, Luke Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 22:00
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn Guðlaugsson varð í 14. sæti á Chick fil a Collegiate mótinu
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012, og The Eagles, golflið Faulkner háskólans tóku þátt í Chick fil a Collegiate mótinu, sem fram fór 8.-9. október og lauk þ.a.l. í gær. Spilað var í Rome, Georgía. Þátttakendur voru 135 frá 25 háskólum. Hrafn spilaði á samtals 3 yfir pari, 147 höggum (76 71) og lauk keppni í 14. sæti, sem er stórglæsilegur árangur! Hann var á langbesta skori í liði sínu. Golflið Faulkner lauk keppni í 9. sæti í liðakeppninni. Næsta mót sem Hrafn tekur þátt í er MGCCC Holiday Inn Fall Invitational sem fram fer í Gulfport, Mississippi og hefst 28. október nk. Til þess að sjá úrslitin í Chick Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 21:30
Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi varð í 17. sæti á Kings College Invitational

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, Íslandsmeistari í holukeppni 2011 og golflið Belmont Abbey, the Crusaders tóku þátt í 2 daga móti í Bristol, Tennessee, the Kings College Invitational. Þátttakendur í mótinu voru 48 frá 8 háskólum. Arnór Ingi og the Crusaders luku keppni í 2. sæti í liðakeppninni. Arnór Ingi spilaði á samtals 149 höggum (76 73) og lauk keppni í 17. sæti í einstaklingskeppninni. Hann var á 5. besta skori The Crusaders og taldi skor hans því ekki í liðakeppninni. Næsta mót sem The Crusaders, golflið Belmont Abbey spilar í er Lincoln Memorial Fall Invitational, í Pineville, Kentucky, sem fram fer dagana 15.-16. október n.k. Þetta er síðasta mótið sem The Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 16:00
Bandaríska háskólagolfið: Berglind varð í 15. sæti á Lady Pirate – Sunna og golflið Elon urðu í 4. sæti í liðakeppninni

Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Sunna Víðisdóttir, GR og Elon tóku þátt í tveggja daga móti, Lady Pirate Intercollegiate í Greenville Country Club, í Norður-Karólínu. Mótið átti upphaflega að vera tveggja daga mót 8.-9. október en vegna mikilla rigninga í gær var ákveðið að stytta það í 18 holu mót og voru því úrslit 1. dags látin standa. Þátttakendur voru 104 frá 20 háskólum. Berglind spilaði á 2 yfir pari, 74 höggum og lauk keppni í 15. sæti í einstaklingskeppninni. Lið Berglindar UNCG lauk keppni í 12. sæti. Sunna lék á 5 yfir pari, 77 höggum og deildi 33. sæti í einstaklingskeppninni. Sunna var á 3. besta skorinu í liði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 15:00
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og the Royals luku leik í Flórída í 12. sæti á Guy Harvey Inv.

Bæði kvenna og karlagolflið The Queens University of Charlotte luku á Guy Harvey Invitational í Palm Beach Gardens, Flórída í gær. Gestgjafi mótsins var Nova Southeastern University. Karla- og kvennagolflið The Queens University of Charlotte Þátttakendur í mótinu voru 81 frá 15 háskólum í kvennagolfinu. Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og the Royals spilaði á samtals 169 höggum (87 82) þ.e. bætti sig um 5 högg milli hringja. Íris Katla var á 4. besta skori liðs síns og skor hennar taldi því, en 4 bestu skor af 5 telja. The Royals bættu stöðu sína fóru upp um 2 sæti voru í 14. sætinu eftir fyrri daginn en luku leik í 12. sæti í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Bruce Devlin – 10. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Bruce Devlin. Bruce fæddist 10. október 1937 í Armidale Ástralíu og á því 75 ára stórafmæli í dag. Hann gerðist atvinnukylfingur 1961 og vann 28 mót á ferli sínum, sem slíkur, þar af 8 á PGA Tour og 16 á PGA Tour of Australasia. Besti árangur hans í risamótum var 4. sætið á the Masters 1964 og 1968. Hann hefir síðari ár verið þekktari sem íþróttafréttamaður í sjónvarpi og sem golfvallarhönnuður. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Craig Marseilles, 10. október 1957 (55 ára); Jody Anschutz, 10. október 1962 (50 ára stóramæli!!!!!); Bryn Parry, 10. október 1971 (41 árs); Johan Edfors, 10. október 1975 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 12:10
Darren Clarke: „Mér væri heiður af því að vera Ryder bikars fyrirliði liðs Evrópu 2014″

Einum degi eftir að hljóta stuðning Lee Westwood, sagði sigurvegari Opna breska 2011, Darren Clarke að það myndi vera „gríðarstór heiður“ að verða valinn næsti Ryder Cup fyrirliði liðs Evrópu. Hvað sem öðru leið þá bar Clarke aftur vangaveltur um að hann væri við það að taka við hlutverki fyrirliða Ryder Cup liðs Evrópu, sem fram fer í Gleneagles, Skotlandi, 2014, með því að tvíta: „til þess að það sé skýrt…. mér hefir ekki verið boðin staða Ryder Cup fyrirliða.“ Tilkynnt verður um arftaka José Maria Olazábal um fyrirliðastöðuna í janúar á næsta ári. Liði Evrópu tókst að halda Ryder bikarnum í Evrópu í 2 ár í viðbót þegar liðið sigraði í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 11:57
Birgir Leifur tekur þátt í úrtökumóti fyrir PGA í Madison, Mississippi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í úrtökumóti fyrir PGA Tour, dagana 16.-19. október (þ.e. þriðjudaginn – föstudaginn í næstu viku). Spilað er í Lake Caroline Golf Club í Madison, Mississippi (Til þess að komast á heimasíðu golfklúbbsins SMELLIÐ HÉR: ) Nokkra athygli vekur að tvöfaldi risamótsmeistarinn argentínski (Opna bandaríska 2007 og the Masters 2009) Angel Cabrera tekur þátt í úrtökumótinu. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis! Til þess að sjá þátttökulistann á úrtökumótinu í Madison, Mississippi SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 11:30
Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra og golflið San Francisco í 14. sæti eftir 2. dag á Edean Ihlanfeldt Invitational
Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og golflið University of San Francisco taka þátt í Edean Ihlanfeldt Invitational í Sahalee Country Club, í Sahalee, Sammamish, Washington. Þátttakendur eru 83 frá 16 háskólum. Mótið stendur 8.-10. október. Eygló Myrra er búin að spila samtals á 15 yfir pari, 159 höggum (78 81). Eftir 2. dag er Eygló Myrra í 43. sæti og á næstbesta skori USF. Í dag verður lokahringurinn spilaður. Golf 1 óskar Eygló Myrru góðs gengis! Til þess að sjá stöðuna á Edean Ihlanfeldt Invitational eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 11:15
Rory tapaði 2. leik sínum – Tiger vann Kuchar á Turkish Airlines World Golf Finals í morgun

Tiger vann sinn leik í morgun gegn Matt Kuchar 67-72!!! Rory McIlroy hins vegar tapaði sínum leik fyrir Charl Schwartzel sem er sjóðheitur, en hann vann líka sinn leik í gær gegn Tiger. Í A-flokk er því staðan þannig að Schwartzel er efstur með 2 vinninga, Tiger og Kuchar eru báðir með 1 vinning og Rory rekur lestina með engan vinning. Schwartzel og Kuchar mætast eftir hádegi og Tiger, Rory í þeim leik sem mest spenna er fyrir. Justin Rose er efstur í B-flokk – vann Lee Westwood í morgun 66-69 og er því með 2 vinninga, en Westy 1 vinning. Webb Simpson sigraði Hunter Mahan 65-67. Hann er því kominn Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

