Berglind Björnsdóttir, GR. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2012 | 16:00

Bandaríska háskólagolfið: Berglind varð í 15. sæti á Lady Pirate – Sunna og golflið Elon urðu í 4. sæti í liðakeppninni

Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Sunna Víðisdóttir, GR og Elon tóku þátt í tveggja daga móti, Lady Pirate Intercollegiate í Greenville Country Club, í Norður-Karólínu. Mótið átti upphaflega að vera tveggja daga mót 8.-9. október en vegna mikilla rigninga í gær var ákveðið að stytta það í 18 holu mót og voru því úrslit 1. dags látin standa.

Þátttakendur voru 104 frá 20 háskólum.

Berglind spilaði  á 2 yfir pari, 74 höggum og lauk keppni í 15. sæti í einstaklingskeppninni.  Lið Berglindar UNCG lauk keppni í 12. sæti.

Sunna lék á 5 yfir pari, 77 höggum og deildi 33. sæti í einstaklingskeppninni. Sunna var á 3. besta skorinu í liði sínu og taldi frammistaða hennar því í árangri golfliðs Elon, en varð í 4. sæti í keppninni.

Til þess að sjá úrslitin á Lady Pirate Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: