Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2012 | 07:00

PGA: Ernie Els með í Frys.com Open sem hefst í kvöld – myndskeið

Ernie Els gaf til kynna að það að spila á Frys.com Open á síðasta ári hafi átt sinn hlut í risamótssigri hans í ár. Hann vonar að sagan endurtaki sig.

Els varð T-4 í Frys.com Open á síðasta ári í Corde Valle Golf Club, sem var besti árangur hans það árið. En hann náði risamótssigri í ár, þegar hann vann, s.s. öllum er í fersku minni, Opna breska í sumar, sem var 4. risamótssigur hans.

Meðal annarra stjarna, sem keppa á Frys.com Open í kvöld eru auk Els, belgíski kylfingurinn Nicolas Colsaerts,  Vijay Singh, fyrirliði Ryder Cup liðs Bandaríkjanna 2012, Davis Love III og stjörnur úr bandaríska háskólagolfinu Patrick Cantlay, Luke Guthrie, John Peterson, Patrick Reed og Kelly Kraft.

Til þess að sjá myndskeið af Ernie Els á blaðamannafundi fyrir Frys.com Open SMELLIÐ HÉR: