Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 17:30

Sjáið útgáfu Jesper Parnevik af „Gangnam Style“ – myndskeið

„Gangnam Style“ æðið hefir náð alla leið til kylfingsins og grínistans sænska Jesper Parnevik, þess sem er einna frægastur fyrir að hafa kynnt barnfóstru sína fyrrverandi, Elinu Nordegren,  fyrir Tiger Woods, en þau giftust, áttu 2 börn og skildu s.s. frægt er orðið. „Gangnam Style“ er vinsælt myndband með kóreanska rapper-anum PSY.  Upprunalega myndbandið SMELLIÐ HÉR: , hafa u.þ.b. 530 milljónir séð frá því í sumar.  Í framhaldinu hafa verið búin til um 100 aðrar útsetningar af ósköpunum. Og nú er Jesper Parnevik búinn að búa til sína útgáfu. Myndskeiðið er það sem búast má við af kylfingi sem notaði eldfjallaösku sem bætiefni. Í myndskeiðinu bregður fyrir frægum kylfingum á borð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 15:20

Bandaríska háskólagolfið: Theodór og Ari luku leik á 2. og 3. besta skori af liði University of Arkansas Monticello á Millsaps Collegiate

Theodór Emil Karlsson, GKJ og Ari Magnússon, GKG, sem báðir spila með golfliði University of Arkansas Monticello léku þann 22.-23. október s.l. á Millsaps Collegiate mótinu. Mótið fór fram í Deerfield Country Club í Jackson, Mississippi en ekki í Lake Caroline golfklúbbnum, í Madison, Mississippi þar sem Birgir Leifur vann það frækilega afrek að komast á næsta stig úrtökumóts fyrir PGA Tour, eins og misfórst í frétt Golf1 frá 21. október s.l.  Þátttakendur í Millsaps Collegiate Invitational voru 62 frá 12 háskólum. Theodór Emil spilaði á samtals 159 höggum (81 78) og varð T-17 þ.e. jafn öðrum í 17. sæti á mótinu í einstaklingskeppninni. Hann var á 2. besta skori Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Denny Shute – 25. október 2012

Herman Densmore „Denny“ Shute  f. 25. október 1904 – d. 13. maí 1974 var bandarískur kylfingur sem vann 3 risamót á 4. áratug síðustu aldar. Denny fæddist í Cleveland, Ohio. Pabbi hans fæddist í Englandi. Hann var í Western Reserve University (sem nú heitir Case Western Reserve University) og var félagi í Phi Gamma Delta. Hann kvæntist 20. mars 1930 Hettie Marie Potts og áttu þau 1 barn saman. Denny Shute sigraði á Opna breska árið 1933 og á PGA Championship, árin 1936 og 1937. Hann var síðasti kylfingurinn, sem tókst að sigra Opna breska 2 ár í röð áður en Tiger Woods tókst það 1999 og 2000. Denny Shute Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 12:45

Hver er kylfingurinn: Jamie Donaldson?

Velski kylfingurinn Jamie Donaldson setti glæsilegt vallarmet á Lake Malaren golfvellinum í Shanghai nú fyrr í dag upp á 62 högg. Það gerðist á BMW Masters mótinu sem hófst í dag.  En hver er þessi 37 ára kylfingur frá Wales? Donaldson fæddist í Pontypridd í Wales, 19. október 1975 og er því nýorðinn 37 ára og því jafnaldri Tiger Woods. Hann gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 12 árum þ.e. árið 2000. Honum tókst ekki að komast í gegnum Q-school Evrópumótaðarinnar og því spilaði hann fyrst aðallega á Áskorendamótaröðinni. Hann vann BMW Russian Open og Telia Grand Prix mótið í Svíþjóð og varð í 2. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar. Hann nýtti sér Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 11:15

LPGA: Inbee Park í forystu á 1. degi Sunrise LPGA Taíwan Championship

Nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna Yani Tseng var hvött áfram af þúsundum áhanganda, sem fögnuðu henni þegar hún kom í hús í morgun á 5 undir pari 67 höggum, 2 höggum á eftir forystukonu mótsins, Inbee Park, á  Sunrise LPGA Taiwan Championship. Yani sem á titil að verja, var svo hrærð að hún táraðist, en hún er að hugsa um að snúa 7 mánaða sigurleysi sér í hag og byrjaði vel í dag fékk 6 fugla og 1 skolla. Inbee Park sem búin er að vera 10 sinnum meðal 10 efstu í 20 mótum sem hún hefir tekið þátt í á árinu spilaði skollafrítt, fékk 7 fugla og 11 pör á Sunrise Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 11:00

Ernie Els skiptir um umboðsaðila

Ernie Els hefir skipt um umboðsskrifstofu í 2. skipti á litlu meira en 1 ári, en hann ætlar að græða á aukinni fjölmiðlaumfjöllunn í kjölfar sigurs síns á Opna breska á þessu ári. Hinn 43 ára Els frá Suður-Afríku, er sífellt að færa út kvíarnar, en meðal þess sem hann fæst við eru m.a. góðgerðarmál, golfvallarhönnun og vínræktun.  Hann fór frá umboðsfyrirtæki sínu Pros Incorporated s.l. þriðjudag og gekk til liðs við IMG, þar sem fyrir eru kylfingar á borð við  Luke Donald, Sergio Garcia og Jason Dufner. Els sneri aftur í kastljós fjölmiðla með sigri sínum á Royal Lytham & St Anne’s í júlí, þegar hann vann 4. risamótatitil sinn. Um Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 10:30

Hunter Mahan ætlar að nota Ryder Cup kjaftshöggið sem hvatningu

Hunter Mahan lýsti því að það, að hafa ekki verið valinn í Ryder Cup lið Bandaríkjanna, væri kjaftshögg (ens. kick in the teeth) en sagði að hann myndi nota það sem hvatningu til þess að reyna að komast í liðið aftur í Gleneagles 2014. Þrátt fyrir að hafa sigrað tvívegis á PGA Tour á þessu ári, þá var svolítil lægð um miðbik ársins nóg til þess að Mahan var 1 sæti frá því að komast sjálfkrafa í liðið.  Hann hlaut ekki náð fyrir augum Davis Love III  og fékk því ekki að keppa. Þegar allt kemur til alls var ég ekki að spila eins vel og hinir strákarnir, ég get engum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 09:00

Evróputúrinn: Lee Westwood á 70 höggum á BMW Masters

Á facebook síðu Lee Westwood var meðfylgjandi mynd af honum.  Undir henni stóð að hann hefði verið á 70 höggum í dag og síðan fylgdi með linkur á skortöflu. Honum má bæta við hér þ.e. til að sjá stöðuna eftir 1. dag í Shanghaí  SMELLIÐ HÉR:  Þar má sjá að Lee deilir 22. sætinu með 16 öðrum kylfingum, sem eru ekki af lakari endanum, en þeirra á meðal eru John Daly, Matteo Manassero, Paul Casey, Luke Donald og Ian Poulter. Þeir allir eru 8 höggum á eftir forystumanni mótsins Skotanum Jamie Donaldson, sem leiðir eftir 1. dag á 62 glæsihöggum og nýju vallarmeti á Lake Malaren.


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 08:38

Bubba Watson heldur uppboð á nokkrum Ryder Cup munum sínum til styrkar Bright Pink

Bubba Watson heldur uppboð á nokkrum munum frá Ryder bikar keppninni 2012 í Medinah til styrktar góðgerðarmálum. Meðal þess sem er á uppboðinu er Ryder Cup fáninn áritaður af öllum í bandaríska liðinu, hvítur liðsbolur Bubba og sá röndótti sem hann var í á sunnudeginum, árituð Bubba Watson skygni í hvítu og bláum lit og kylfu-cover í bandarísku litunum. Allur ágóði rennur til Bright Pink, samtaka sem einbeita sér að forvörnum og því að finna fljótt brjósta og leghálskrabbamein í ungum konum, auk þess sem þeim sem er í háum áhættuflokki er veittur stuðningur. Watson spilar líka með bleika PING drævernum sínum til þess að sýna stuðning sinn við góðgerðarsamtökin. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 08:15

Evróputúrinn: Jamie Donaldson efstur á BMW Masters eftir 1. dag

Það er  Jamie Donaldson frá Wales, sem er efstur á BMW Masters, sem hófst nú fyrr í morgun í Lake Malaren golfklúbbnum í Shanghai. Hann stakk alla heimsins bestu kylfinga af og setti nýtt vallarmet, 10 undir pari, glæsileg 62 högg á hring þar sem hann fékk 8 pör og 10 fugla, 5 á fyrri og 5 á seinni hluta vallarins. Donaldson, sem er 37 ára, er að eiga eitt sitt allra besta ár á Túrnum en í júlí í sumar vann hann einmitt fyrsta mótið sitt, þ.e. Opna írska, en fyrsti sigurinn kom eftir þátttöku Donaldson í 255 mótum á Túrnum. Nú er hann enn að láta að sér kveða Lesa meira