Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Dagný Marín Sigmarsdóttir og Heiðar Davíð Bragason – 8. nóvember 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Dagný Marín Sigmarsdóttir og Heiðar Davíð Bragason. Dagný er fædd 8. nóvember 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Heiðar Davíð er fæddur 8. nóvember 1977 og því 35 ára í dag. Dagný Marín er klúbbmeistari Golfklúbbs Skagastrandar 2012. Hún vinnur við Spákonuhof á Skagaströnd og á 3 börn: Sonju, Sverri og Sigurbjörgu. Heiðar Davíð er golfkennnari við Golfklúbbinn Hamar á Dalvík (GHD).Hann hefir gert ýmislegt og unnið marga sigra í golfíþróttinni. Sem dæmi mætti nefna að hann keppti á danska Scanplan túrnum 2007 og EDP-mótaröðinni 2008. Hann sigraði í Einvíginu á Nesinu 2008. Eins er eftirminnilegt þegar Heiðar Davíð setti glæsilegt vallarmet á Vatnahverfisvelli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 09:15

Frægir kylfingar: Hvað eiga Bill Clinton, Michael Phelps, Michael J. Fox og Morgan Freeman sameiginlegt?

Bandaríski leikarinn Michael J. Fox hefir þurft að glíma við Parkinsons veikina. Hann er með 22 í forgjöf og segir að besti hringur sinn sé upp á 92 högg. Morgan Freeman lenti í hræðilegu bílslysi fyrir nokkrum árum með þeim afleiðingum að vinstri hendi hans lamaðist. Hann getur þó enn spilað golf og segir m.a. dræv sín ekkert líða fyrir lömunina. Bill Clinton hefir sagt að engin geti borið því á móti að kylfingar, sem gangi hæðóttan völl á vindasömum degi séu íþróttamenn og golf, íþrótt. Hann segist sannfærður um að stjúpfaðir hans hafi náð þeim háa aldri að verða 89 ára vegna þess að hann spilaði svo mikið golf. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 08:00

Evróputúrinn: Edoardo Molinari fór holu í höggi í Singapore

Í dag hófst á Sentosa golfstaðnum í Singapore, Barclays Singapore Open, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Hafi ítalski kylfingurinn Edoardo Molinari verið hræddur um að hafa eytt öllum góðu höggunum á æfingahring fyrir mótið á þriðjudaginn s.l. þegar hann fékk albatross á par-5, 4. holu vallarins, þann fyrsta með nýja blendingnum sínum,  þá getur hann andað léttar nú. Hann fór nefnilega holu í höggi á 17. flöt í Singapore í morgun!  Fram að því hafði ekkert gengið of vel. Hann fékk skolla á 1. holu og skramba á 3. holu en fékk síðan 3 fugla og var á parinu allt fram á 14. holu þar sem hann fékk aftur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst lauk keppni í 13. sæti á Hawaii

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og golflið East Tennessee State luku keppni í gær á Warrior Wave Intercollegiate mótinu, en það fór fram á golfvelli Makai golfklúbbsins á golfstað St. Regis Princeville, í Princeville, á Hawaii. Mótið fór fram dagana 5.-7. nóvember og voru þátttakendur 80 frá 16 háskólum. Það er 10 tíma, tímamismunur milli Íslands og Hawaii og lokadaginn þ.e. í gær fóru allir út á sama tíma, kl. 8:00 að staðartíma (kl. 18:00 að íslenskum tíma) Guðmundur Ágúst af 2. teig. Guðmundur Ágúst lauk keppni á samtals sléttu pari, 216 höggum (74 70 72) og spilaði lokahringinn líka á sléttu pari, fékk 4 fugla, 10 pör og 4 skolla. Þar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 06:30

NGA: Strákarnir komust ekki í gegnum niðurskurð í Shingle Creek í Flórída

Þórður Rafn Gissurarson, GR og Alexander Aron Gylfason, GR, spiluðu í gær 2. hring á 3. móti NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series. Leikið var á  Shingle Creek golfvellinum, í Orlandó, Flórída. Þátttakendur eru 106 og komust 35 efstu og þeir sem voru jafnir í 35. sæti áfram (en ekki 60 efstu eins og Golf 1 hafði rangt eftir af heimasíðu mótsins – en það var síðar leiðrétt). Niðurskurður var miðaður við samtals 1 yfir pari. Þórður Rafn spilaði á samtals 3 yfir pari og munaði því aðeins 2 höggum að hann kæmist í gegnum niðurskurð.  Þórður var eins og segir á samtals 3 yfir pari, 147 höggum (73 74). Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 20:00

Viðtalið: Tinna Jóhannsdóttir, GK.

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hefur á morgun keppni á Banesto Tour Valencia mótinu á LET Access Series í Valencia á Spáni.  Mótið  er 3 daga, stendur dagana 8.-10. nóvember.  Hér fer viðtalið við Tinnu: Fullt nafn: Tinna Jóhannsdóttir. Klúbbur: Keilir. Hvar og hvenær fæddistu?  Ég er fædd í Reykjavík, 1986. Hvar ertu alin upp? Ég hef átt heima í Garðabænum allt mitt líf. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á risastóra og frábæra fjölskyldu og held það sé fljótlegra að segja að amma mín er sú eina sem spilar ekki golf í minni fjölskyldu. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég var 12 þegar ég fór Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 19:30

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (32. grein af 34): Carlota Ciganda

Þá er komið að því að kynna spænska kylfinginn Carlotu Ciganda, í nokkrum orðum en hún varð í 3. sæti á Q-school LET á La Manga nú fyrr á árinu. Carlota fæddist í Pamplona á Spáni, 1. júní 1990 og er því 22 ára. Hún er 1,74 m á hæð með brúnt hár og græn augu. Hún byrjaði að spila golf 5 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á að hún hóf að spila golf.  Frændi hennar er fyrrum fótboltamaðurinn og núverandi fótboltaþjálfarinn José Angel Ziganda. Carlota er mikill aðdáandi tennisleikarans Rafael Nadal. Carlota var bandaríska háskólagolfinu en hún spilaði golf með golfliði Arizona State University.  Hún Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 17:00

GR: Ágúst Jensson ráðinn yfirvallastjóri

Ágúst Jensson hefur verið ráðinn yfirvallastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur og tók við því starfi þann 1. nóvember síðastliðinn. Ágúst er GR-ingum vel kunnugur þar sem hann hefir verið vallarstjóri á Korpúlfsstöðum síðastliðin 10 ár. Ágúst er menntaðar golfvallafræðingur frá Elmwood College í Skotlandi auk þess sem hann er með Bs gráðu í viðskiptafræði með áherslu á Stjórnun frá Háskólanum á Akureyri. Starf yfirvallastjóra er ný staða hjá GR og mun yfirvallastjóri bera ábyrgð á rekstri golfvalla klúbbsins auk annara verka er snúa að viðhaldi og rekstri valla GR og þeirra verkefna sem GR tekur að sér er snúa að viðhaldi íþrótta/golfvalla. Golf 1 óskar Ágústi velfarnaðar í nýju starfi!!! Heimild: grgolf.is


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 16:30

Evróputúrinn: Birgir Leifur í 10. sæti eftir 1. dag úrtökumótsins í Murcia

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, spilaði 1. hring sinn á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina 2013 á El Valle golfvellinum, í Murcia á Spáni í dag. Hann kom í hús á 1 undir pari, 70 höggum; fékk 4 fugla, 11 pör og 3 skolla. Eftir 1. dag mótsins deilir Birgir Leifur 10. sæti ásamt  3 öðrum kylfingum. Golf 1 óskar Birgi Leif áframhaldandi góðs gengis! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag úrtökumótsins á El Valle SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 12:45

Afmæliskylfingur dagsins: Davíð Gunnlaugsson – 7. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Davíð Gunnlaugsson. Hann er fæddur 7. nóvember 1988 og er því 24 ára í dag. Davíð er laganemi, golfleiðbeinandi og afrekskylfingur Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ. Hann er í sambúð með Heiðu Guðnadóttur, klúbbmeistara kvenna í GKJ 2012. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Davíð með því að SMELLA HÉR:   Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Davíð Gunnlaugsson (24 ára) Aðrir frægir sem eiga afmæli í dag eru:  Hallgrímur Friðfinnsson, GK, 7. nóvember 1943 (69 ára) ;  Felipe Aguilar Schuller 7. nóvember 1974 (38 ára) ….. og …… Guðni Gunnarsson Kristín Höskuldsdóttir (52 ára) Seeds Iceland Lesa meira