Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 19:45
Evróputúrinn: Birgir Leifur í 32. sæti eftir 3. dag úrtökumótsins í Murcia

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, var á sléttu pari, 72 höggum á 3. hring sínum á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina 2013, í dag. Samtals er Birgir Leifur því búinn að spila á á 1 yfir pari, 215 höggum (70 73 72) Birgir Leifur fór úr 23. sætinu í 32. sætið, en aðeins þeir sem eru í 20. sæti eða eru jafnir í því sæti komast áfram á lokaúrtökumótið. Ef skorið væri niður í dag væri niðurskurður miðaður við 2 undir pari og því ljóst að Birgir Leifur þarf aðeins að vinna upp 3 högg!!! Spennandi hvað gerist á morgun…. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis!!! Til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Gunnhildur Kristjánsdóttir – 9. nóvember 2012

Það er Gunnhildur Kristjánsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Gunnhildur er fædd 9. nóvember 1996 og því 16 ára í dag!!! Hún er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og aldeilis búin að slá í gegn á Unglingamótaröð Arion banka í sumar. Í upphafi árs var hún valin efnilegasti kylfingurinn, ásamt Óðni Þór Ríkharðssyni við verðlaunafhendingu í tilefni af vali á íþróttakarli og konu Garðabæjar. Gunnhildur sigraði á 1. móti Unglingamótaraðar Arionbanka uppi á Skaga í flokki telpna 15-16 ára og einnig a 2. mótinu á Þverárvelli. Á 3. móti Unglingamótaraðarinnar á Korpunni varð Gunnhildur í 5.sæti; á Íslandsmótinu í höggleik varð Gunnhildur í verðlaunasæti þ.e. 3. sætinu: Á 5. móti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 11:00
Tiger og Rory tala um vináttu sína á og utan vallar á CNN – myndskeið

CNN tók viðtal við nr. 1 og nr. 2 á heimslista golfsins. Nokkur aldursmunur er á þeim Tiger er 36 ára en Rory aðeins 23 ára. Rory hefir, eins og svo margir aðrir verið mikill aðdáandi Tiger í gegnum tíðina, var m.a. í spurningaþætti þar sem sérsvið hans var Tiger á yngri árum. Hann segir m.a. í viðtalinu að Tiger hafi gjörbreytt ímynd golfsins – þannig að yngri kylfingar hafi farið að koma meira fram, sem m.a. lögðu áherslu á að vera líkamlega í betra formi – Tiger tók undir það sagði að á túrnum hefðu aðeins hann og Vijay um tíma verið í líkamsrækt, en nú væru nær undantekningalaust Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 09:00
LPGA: Michelle Wie og tvær aðrar efstar eftir 1. dag Lorena Ochoa Invitational

Það eru þær Michelle Wie, Candie Kung og Angela Stanford sem leiða eftir 1. hring Lorenu Ochoa Invitational, sem hófst í Guadalajara í Mexikó í gær. Allar léku þær á 6 undir pari, 66 höggum, hver. Michelle var sú eina sem spilaði skollafrítt þ.e. fékk 6 fugla og 12 pör meðan hinar tvær fengu 7 fugla 11 pör og 1 skolla. Aðeins 1 höggi á eftir þ.e. á 67 höggum er hópur 5 frábærra kylfingar: Cristie Kerr, heimsins nr. 2 Stacy Lewis, Karine Icher frá Frakklandi og So Yeon Ryo og Inbee Park frá Suður-Kóreu. Þær deila 4. sæti mótsins. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Lorena Ochoa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 08:45
PGA: Charlie Wi leiðir á Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótinu í Flórída – hápunktar 1. dags

Það er suður-kóreanski kylfingurinn Charlie Wi sem leiðir eftir 1. dag Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótsins, sem fram fer á Magnolia golfvellinum í Lake Buena Vista í Flórída og hófst í gær. Charlie Wi kom inn á 8 undir pari, 64 höggum; fékk örn, 8 fugla, 7 pör og 2 skolla. Í 2. sæti eru Kólombíumaðurinn Camilo Villegas og Bandaríkjamaðurinn „tveggja hanska“ Tommy Gainey aðeins 1 höggi á eftir. Til þess að sjá stöðuna eftir 1 dag á Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótinu SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 08:00
Evróputúrinn: Eldingar stöðva leik í Singapore í 2. sinn – ekki tókst að ljúka hringjum 2. dags – Nirat Chapchai forystumaður 1. dags

Þegar leik var hætt í gær fyrsta dag Barclays Singapore Open var Daninn Thomas Björn í forystu. Eftir að allir höfðu lokið 1. hring í dag, á 2. degi mótsins var ljóst að Thaílendingurinn Nirat Chapchai átti besta skor á 1. hring: 65 högg; Thomas Björn var 1 höggi á eftir honum á 66 höggum. Í dag á 2. hring mótsins er leik aftur hætt vegna eldinga eða „hættulegs ástands á velli“ (ens. a dangerous situation on course) sem var ástæðan í gær. Þegar leik var hætt í 2. sinn er Chapchai enn í forystu en nú ásamt Englendingnum Simon Dyson. Í raun eiga svo margir eftir að ljúka leik að ekki Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 17:15
Adam Scott ekki sammála Tiger varðandi löngu pútterana

Adam Scott er langt því frá sammála áliti nr. 2 á heimslistanum þegar kemur að löngum pútterum. Nr. 2 á heimslistanum, Tiger Woods hefir löngum verið fremstur meðal þeirra, sem eru á móti „kústsköftunum“ eins og Tom Watson kallar pútterana sem eru venjulegast einhvers staðar mill 38 og 46 tommur að lengd (96,5 -117 cm) að lengd. Tiger hefir m.a. talað við framkvæmdastjóra R&A um málið og talið brýnt að breyta þurfi reglunum, sem nú er í farvatninu við litla hrifningu þeirra sem nota langa púttera. Tiger er fastur á því að pútterslengdin ætti að vera ákveðinn í reglum og miðast við að vera jöfn en styttri en stysta kylfan Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 16:59
LET Access: Tinna á 75 höggum eftir 1. dag í Valencia

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði spilaði 1. hringinn á Banesto Tour á Escorpión vellinum, í Valencia, í dag. Hún kom í hús á 3 yfir pari, 75 höggum; fékk 1 fugl, 13 pör og 4 skolla. Tinna deilir 27. sætinu ásamt 12 öðrum kylfingum eftir þennan 1. dag keppninnar. Sú sem er í efsta sæti eftir 1. hring er enska landsliðsstúlkan Holly Clyburn á 5 undir pari, 67 höggum og í 2. sæti hollenska landsliðskonan Marjet Van der Graaff, sem Golf 1 kynnti um daginn SMELLIÐ HÉR: (en Marjet var á 4 undir pari 68 höggum). Þær tvær Holly og Marjet voru í nokkrum sérflokki en þær sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 16:45
Evróputúrinn: Birgir Leifur í 23. sæti eftir 2. dag

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, var á 2 yfir pari, 73 höggum á 2. hring sínum á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina 2013. Þar með fór hann úr 1 undir pari sem hann var á í gær í samtals 1 yfir par í dag þ.e. 143 högg (70 73) og ljóst að hann verður að eiga gríðarlega góðan hring á morgun, því aðeins 20 efstu í mótinu halda áfram á lokaúrtökumótið á PGA Catalunya golfvellinum. Birgir Leifur er sem stendur í 23. sæti, fór niður í það úr 10. sætinu, sem hann var í, í gær. Í efsta sæti eftir 2. dag er Svíinn Aake Nilsson á samtals 7 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2012 | 14:30
Lord Moynihan vill að konur fái að gerast félagar í R&A golfklúbbnum

Lord Moynihan, sem er fulltrúi Breta í Ólympíunefndinni, hefir óskað eftir því við Royal and Ancient Golf Club að þeir opni dyr sínar þannig að konur geti orðið félagar. Golfklúbburinn, sem var stofnaður 14. maí 1754 og hefir klúbbhús sitt í St. Andrews í Fife í Skotlandi, hefir frá upphafi ekki heimilað konum inngöngu. Þar sem breskum konum hefir gengið vel á Olympíuleikum telur Moynihan þetta óviðunandi og vill að klúbburinn breyti reglum sínum. Hann sagði m.a. í BBC Radio 5: „Mér finnst að Royal and Ancient Golf Club of St Andrews ætti að breytast.“ The Royal and Ancient hefir í gegnum tíðina haldið áfram að vera strákaklúbbur, þó t.a.m. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

