Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 22:22

PGA: Beljan í forystu fyrir lokahringinn í Flórída

Charlie Beljan sem fluttur var með hraði á sjúkrahús í gær eftir að hafa kvalist heilan hring á draumaskori hins vegar, fékk að dvelja um nótt í sjúkrahúsinu, en lék 3. hringinn á Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótinu, sem fer fram á Lake Buena Vista í Flórída, nú í kvöld. Talið er að um kvíðakast Beljan hafi verið að ræða og ekki alvarlegt þannig að hann fékk að spila 3. hring. Beljan kom í hús á 71 höggi og heldur 2 högga forystu á þá Brian Gay, Josh Teater og Charlie Wie.   Samtals er Charlie Beljan búinn að spila á 13 undir pari (68 64 71).  Hér má Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 21:15

Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Hjónin spila golf. Milli holu 5 og 6 spyr hún: „Þegar ég dey, myndirðu vera sorgmæddur?“ „Auðvitað ástin mín!“ Milli holu 6 og 7 spyr  hún aftur: „Og myndir þú kvænast aftur?“ „Já ef sú rétta kæmi, kannski!“ Milli holu 7 og 8 spyr hún: „Myndirðu láta hana spila með golfkylfunum mínum?“ Hann: „Nei, hún er örvhent!!!“ Nr. 2 Bissnessmaðurinn pikkar upp fallega japanska stúlku á diskóteki og seinna um nóttina fara þau upp á hótelherbergið hans og eru í miðjum klíðum þegar hún hrópar „haí to!!!“ „haí to!!!“.  Hann heldur að hann sé svona bara svona frábær. Næsta dag er bissnessmaðurinn okkar að spila golf með japönskum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 18:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur á parinu – lauk leik í 35. sæti í Murcia og komst ekki í gegnum niðurskurð

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lauk leik í dag á var á sléttu pari, 71 höggi  á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina 2013, í dag. Samtals lék Birgir Leifur  á 1 yfir pari, 285 höggum (70 73 71 71).  Hann fór úr 32. sætinu sem hann var í, í gær, í 35. sætið. Því miður komst hann þar með ekki á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina, en aðeins 20 efstu og þeir sem jafnir voru í 20. sætinu komust á lokaúrtökumótið. Til þess að komast á lokaúrtökumótið hefði Birgir Leifur þurft að vera á 3 undir pari og því munaði 4 höggum að þessu sinni. Til þess að sjá úrslitin á 2. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 16:25

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Þór Björnsson – 10. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Andri Þór Björnsson. Andri Þór er fæddur í Reykjavík 10. nóvember 1991 og er því 21 árs í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) og golfleiðbeinandi þar. Andri Þór stundar nám og spilar með golfliði Nicholls State háskólanum í Thibodeaux í Louisiana. Hann er búinn að standa sig vel í haust með Geaux Colonels, þ.e. golfliði skólans og hefir oftar en ekki verið á besta skorinu í liðinu. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Andra Þór með því að SMELLA HÉR: Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Andri Þór Björnsson (21 árs – Innilega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 15:00

GHR: Óskar Pálsson endurkjörinn formaður

Aðalfundur GHR var haldinn fimmtudaginn 8.nóvember s.l. Það voru 19 manns, sem mættu á fundinn. Fundarstjóri var Þorsteinn Ragnarsson. Óskar Pálsson var endurkjörinn formaður og stjórn óbreytt. Breytingar urðu í nokkrum nefndum; í kappleikjanefnd var ákveðið að bæta einum við og inn kom Svavar Hauksson, í unglinganefnd gaf Andri Freyr Björnsson ekki kost á sér, í aganefnd gaf Gunnar Bragason ekki kost á sér í hans stað kom Matthías Þorsteinsson og skoðunarmaðurinn Guðmundur Benediktsson gaf ekki kost á sér í hans stað kom Sveinn Sigurðsson. Aðrar nefndir eru óbreyttar. Formaður las skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta sem gerst hafði á árinu, til að mynda vel heppnað Íslandsmót þar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 10:15

Evróputúrinn: John Daly dró sig úr mótinu í Singapore

Tvöfaldi risamótssigurvegarinn John Daly dró sig úr mótinu í Singapore Open; var orðinn þreyttur á eilífum frestunum þess, þ.e. vegna  þrumuveðurs og eldinga. Talsmaður Evrópumótaraðarinnar sagði að Daly hefði dregið sig úr mótinu snemma á laugardaginn og væri farinn frá Singapore til Hong Kong þar sem hann ætlaði að undirbúa sig fyrir næsta mót: Hong Kong Open. Daly var fyrir neðan niðurskurðarlínu, sem miðuð var við 11 yfir pari og hafði aðeins lokið 11 holum af 2. hring á föstudaginn þegar hring var frestað. Daly spilaði í boði styrktaraðila, Barclay bankans í Singapore. Daly sagði fyrr í vikunni að hann vonaðist til þess að fá að spila á báðum mótaröðum PGA Tour Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 10:00

LPGA: Angela Stanford leiðir þegar Lorena Ochoa Invitational er hálfnað

Það er bandaríski kylfingurinn Angela Stanford sem leiðir eftir 2. hring Lorena Ochoa Invitational í Guadalajara í Mexikó.  Stanford er búin að spila á samtals 11 undir pari, 133 höggum (66 67).  Eftir hringinn sagði hún m.a.: „Mér finnst svo gaman þessa viku vegna þess að mótið er afslappað, það eru allt svo óstressað…“ Í 2. sæti, 2 höggum á eftir er Inbee Park frá Suður-Kóreu og í 3. sæti enn einu höggi á eftir er Cristie Kerr. Fjórða sætinu deila 3 kylfingar: Candie Kung frá Tapei, nr. 2 á Rolex-heimslista kvenna: Stacey Lewis frá Bandaríkjunum og So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu, allar á 7 undir pari, samtals 137 höggum, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 09:15

Evróputúrinn: Thomas Björn leiðir í Singapore eftir 2. dag

Daninn Thomas Björn er aftur kominn í forystu á Barclays Singapore Open.  Hann lék 2. hring á 4 undir pari, 67 höggum; fékk fjóra fugla og 14 pör.  Samtals er Björn búinn að spila á 9 undir pari (66 67). Tveimur höggum á eftir er Englendingurinn Chris Wood og eins skaust Suður-Afríkumaðurinn George Coetzee í 2. sætið með besta skori 2. hrings upp á 63 högg. Francesco Molinari er í 4. sæti á 6 undir pari og Adam Scott og Simon Dyson deila 5. sætinu á samtals 5 undir pari. Nirat Chipchai, fyrrum munkur, sem leiddi eftir gærdaginn er nú 7. sæti ásamt 10 öðrum kylfingum á samtals 4 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2012 | 04:30

PGA: Charlie Beljan leiðir þegar Children´s Miracle Network Hospitals Classic er hálfnað – hápunktar og högg 2. dags

„Eitt högg í viðbót, ein hola í viðbót. Það er eflaust það sem Charlie Beljan sagði við sjálfan sig áður en honum var komið á sjúkrahús með hraði eftir hring hans nú í nótt á the Children’s Miracle Network Hospitals Classic, á Lake Buena Vista í Flórída.“ Svona hefst ágætis grein eftir fréttamann PGA Tour, Brian Wacker um baráttu Charlie Beljan nýliða á PGA Tour, sem leiðir þegar mótið er hálfnað.  Golf 1 hefir áður verið með kynningu á Beljan sem rifja má upp með því að SMELLA HÉR: Áður en lengra er haldið eru hér upplýsingar fyrir þá sem ekki vilja lesa áfram en hafa aðeins hugsað sér að sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2012 | 20:00

LET Access: Tinna komst ekki í gegnum niðurskurð á Banesto Tour Valencia

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði spilaði 2. hringinn á Banesto Tour á Escorpión vellinum, í Valencia, í dag. Hún  spilaði samtals  á 8 yfir pari, (75 77)  og komst því miður ekki í gegnum niðurskurð. Niðurskurður var miðaður við 4 yfir pari og munaði því aðeins 4 höggum að Tinna kæmist í gegn.  Hún spilar því, því miður ekki lokahringinn á morgun. Staðan á toppnum er óbreytt því í efsta sæti eftir 1. hring er enska landsliðsstúlkan Holly Clyburn á samtals 6 undir pari, (67 71)   Í 2. sæti er hollenska landsliðskonan Marjet Van der Graaff, sem Golf 1 kynnti um daginn SMELLIÐ HÉR: (en Marjet er á 4 undir pari (68 71). Lesa meira