
Evróputúrinn: Miguel Ángel Jiménez sigraði á UBS Hong Kong Open
Spænski kylfingurinn Miguel Ángel Jiménez skrifaði sig í sögubækurnar en með sigri sínum á UBS Hong Kong Open í morgun, er hann varð elsti sigurvegari á Evróputúrnum. Hann er 48 ára, 10 mánaða og 13 daga gamall.
Samtals lék Jiménez á 15 undir pari, 265 höggum (65 67 68 65). Lokahringur hans var einkar glæsilegur en hann skilaði „hreinu skorkorti“ með 5 fuglum og 13 pörum. „Þetta er mjög ljúft,“ sagði Jiménez m.a. þegar sigurinn lá fyrir. „Ég vona að þetta sé ekki sá síðasti (sigurinn).“
Í 2. sæti varð Svíinn Fredrik Anderson Hed og í því 3. Ástralinn Marcus Fraser.
Skotinn Stephen Gallacher, ítalski táningurinn Matteo Manassero og Írinn Peter Lawrie deildu síðan 4. sætinu á 11 undir pari, 269 höggum, hver – 4 höggum á eftir Jiménez. Matt Kuchar varð í 7. sæti.
Til þess að sjá lokastöðuna á UBS Hong Kong Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024