Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 08:00

LPGA: Stacy Lewis valin kylfingur ársins

Bandaríska stúlkan Stacy Lewis var valin Rolex kylfingur ársins og varð þar með fyrsti Bandaríkjamaðurinn til þess að hljóta titilinn í næstum 2 áratugi. Frægðarhallar og LPGA-kylfingurinn Beth Daniel er síðust Bandaríkjamanna til að vinna titilinn árið 1994 og var við athöfnina í The Ritz Carlton Golf Resort í Naples, Flórída, til þess að aðstoða við verðlaunaafhendinguna. „Þegar ég hugsa tilbaka fyrir 10 árum man ég eftir að ég sat á skrifstofu læknisins og hann sagði mér að ég yrði að fara í skurðaðgerð vegna baksins á mér,“ sagði Lewis m.a. þegar henni voru afhent verðlaunin. „Það var á þeim tíma, sem ég hélt að ég myndi aldrei spila golf aftur. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 20:30

Golfgrín á laugardegi

Nr. 1  Eldri kylfingarnir eru í púttkeppni á elliheimilinu.  Þeim er tilkynnt að það komi dávaldur í matsalinn og allir eigi að mæta til þess að sjá hann sýna kúnstir sinar. Önugir leggja þeir pútterana sína frá sér og flýta sér á sal.  Þar er dávaldurinn kominn og heldur á forláta gömlu úri sem er í enn eldri keðju og hann segist ætla að dáleiða alla í salnum. Úrið pendúlast og sveiflast fram og tilbaka í keðjunni og allir horfa dáleiddir á… en allt í einu gefur keðjan sig og úrið fellur með miklum látum í gólfið!!!  Dávaldinum bregður svo mikið að hann hrópar upp yfir sig: „SHIT!!!“ Það tók Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Joyce Wethered – 17. nóvember 2012

Joyce Wethered, Lady Heathcoat-Amory  fæddist 17. nóvember 1901 í Surrey á Englandi og dó í London 1 degi eftir 96 afmælisdag sinn, 1997 í London.  Hún er álitin einn besti kvenkylfingur sem Englendingar hafa átt. Í dag hefði Joyce átt 111 ára afmæli. Joyce Wethered Joyce og bróðir hennar Roger, en Roger var T-1 á Opna breska 1921 (hann tapaði síðan í bráðabana), lærðu að spila golf sem smábörn. Joyce vann Britsh Ladies Amateur Golf Championship 4 sinnum (1922, 1924, 1925, and 1929) og var enskur meisari kvenna 5 ár í röð (1920–24). Systkinin Roger og Joyce Wethered lærðu að spila golf sem krakkar. Joyce giftist Sir John Heathcoat-Amory árið 1924 og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 14:45

Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 2 af 10)

Margir golfsérfræðingar segja að á 16. brautin á Cypress Point, Pebble Beach sé besta golfhola heims. Punktur. Og þar af leiðandi er hún örugglega ein besta par-3 braut heims. Alister MacKenzie, sem hannaði völlinn 1928, fékk þetta ótrúlega umhverfi að vinna með og það gaf honum ósanngjarnt forskot umfram aðra golfvallarhönnuði. Eftir að þessi er spiluð eigið þið svo sannarlega golfsögu, sem endist að eilífu. Til þess að sjá ágætis myndskeið af 16. holunni sem tekið var af áhugakylfingum sem spiluðu Cypress Point SMELLIÐ HÉR:  Til þess að ná frá teig að flöt  yfir Kyrrahafið þarf 231 yarda (211 metra) högg. Þess mætti geta að Cypress Point Club á Pebble Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 12:30

Ian Poulter í efsta sæti fyrir lokahring Talisker Open í Ástralíu – Adam Scott í 2. sæti

Það er Ryder Cup hetja evrópska liðsins 2012, Ian Poulter sem leiðir á Kingston Heath golfvellinum í Melbourne, Ástralíu, á Talisker Australian Open, fyrir lokahring mótsins. Poulter lék á 64 glæsihöggum í dag, fékk  9 fugla, 8 pör og 1 skolla. Samtals er hann búinn að spila á 13 undir pari, 203 höggum (67 72 64). Í 2. sæti á hæla Poulter, aðeins 1 höggi á eftir er ástralski kylfingurinn Adam Scott, á samtals 12 undir pari, 204 höggum (67 70 67). Forystumaður fyrstu 2 daganna, Ástralinn Matthew Guyatt er dottinn niður í 3. sætið er á samtals 7 undir pari, 209 höggum (65 69 75) og er því alls 6 höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 09:30

Evróputúrinn: Campbell og Jiménez í forystu fyrir lokahring UBS Hong Kong Open

Það eru Nýsjálendingurinn Michael Campbell og Miguel Ángel Jiménez, frá Spáni sem leiða fyrir lokahring UBS Hong Kong Open. Báðir eru búnir að spila á samtals 10 undir pari, 200 höggum; Jiménez (65 67 68) og Campbell (67 64 69). Þriðja sætinu deila ítalski unglingurinn Matteo Manassero og kínverski kylfingurinn Lian-wei Zhang aðeins 1 höggi á eftir þeim Campbell og Jiménez. Í 5. sæti er svo Svíinn Fredrik Anderson Hed á samtals 8 undir pari. Munur milli 1.og 5. sætinu aðeins 2 högg og allt sem getur gerst á morgun – stefnir í spennandi sunnudag í Hong Kong!!! Til þess að sjá stöðuna á UBS Hong Kong Open eftir 3. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 09:15

Japanska PGA: Luke Donald í efsta sæti fyrir lokahringinn í Japan

Nr. 3 á heimslistanum Luke Donald er enn í forystu fyrir lokahring Phoenix Dunlop mótsins í Phoenix Country Club í Miyazaki, Japan en þetta er í fyrsta sinn í 5 ár sem hann spilar á japanska  PGA þ.e. hann hefir ekki tekið þátt í japönsku móti frá árinu 2007. Luke er búinn að spila á samtals 13 undir pari (65 64 71) og á 4 högg á næstu menn Brendan Jones frá Ástralíu og heimamanninn Shunsuke Sonoda sem búnir eru að spila á 9 undir pari, hvor. Spánverjinn Alvaro Quiros er búinn að spila á samtals 5 undir pari og er T-10 og Svíinn Jonas Blixt, sem líka tekur þátt í mótinu  er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 08:45

LPGA: Ai Miyazato leiðir þegar CME Group Titleholders er hálfnað

Japanski kylfingurinn og fyrrum nr. 1 á heimslistanum Ai Miyazato er komin í forystu á CME Group Titleholders mótinu, lokamóti LPGA á Twin Eagles Golf Club í Naples, Flórída. Ai Miyazato hefir samtals spilað á 10 undir pari, 134 höggum (70 64), en hún átti frábæran 2. hring upp á 8 undir pari, 64 högg, þar sem hún fékk 9 fugla, 8 pör og 1 skolla. Hún þurfti aðeins 25 pútt á hringnum góða. Eftir 2. hringinn sagði forystukonan Ai m.a. að árangurinn væri afrakstur mikillar vinnu undanfarinna mánaða. „… þetta er síðasta mótið (á LPGA í ár) þannig að hef engar væntingar til mín og það er bara yndislegt og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2012 | 08:25

Sólskinstúrinn: Henrik Stenson í forystu þegar SA Open er hálfnað

South Africa Open er samstarfsverkefni Sólskinstúrsins suður-afríska og Evrópumótaraðarinnar. Annar hringur SA Open hófst var spilaður í gær á Serengeti Golf & Wildlife Estate í Ekurhuleni í Suður-Afríku.  Mótið er 2. elsta golfmótið í heimi (hófst 1893) aðeins Opna breska er eldra (hófst 1860). Svíinn Henrik Stenson leiðir þegar mótið er hálfnað. Hann lék 2. hring á 7 undir pari, 65 höggum.  Samtals er Stenson búinn að spila á 13 undir pari, 131 höggi (66 65) – lék fyrri daginn á 6 undir pari, 66 höggum. Hann byrjaði í gær á 10. teig, fékk 5 pör á fyrstu holurnar, síðan 3 fugla í röð og lauk sínum fyrri 9 með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2012 | 20:15

Birgir Leifur úr leik í Flórída

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnumaður í GKG, spilaði í dag 4. hring og síðasta hring á 2. stigi úrtökumóts fyrir PGA Tour 2013. Keppt var á Plantation Preserve Golf Course & Club, í Plantation, í Broward sýslu, í Suður-Flórída. Sjá má heimasíðu golfstaðarins með því að SMELLA HÉR:  Nítján efstu og þeir sem voru efstir í 19. sæti komust áfram á lokaúrtökumót fyrir PGA Tour 2013. Birgir Leifur lék samtals á 2 yfir pari, 286 höggum (70 73 70 73) og hafnaði í 70. sæti af 74 þáttakendum. Efstur varð „heimamaðurinn“ Rob Oppenheim frá Orlandó, Flórída, var á samtals 21 undir pari, 263 höggum (63 67 66 67), en hann var í nokkrum Lesa meira