Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2012 | 09:45

Auðveld púttæfing – myndskeið

Nú þegar varla er hægt að spila golf utandyra hér á landi – allt á kafi í snjó, of hvasst eða vellir blautir og í óspilanlegu ástandi þá fara allir alvöru kylfingar á æfingasvæðið eða æfa stutta spilið og þá sérstaklega púttstrokuna innandyra.

Hér er hugmynd að púttæfingu fyrir þá sem pútta of hart, þ.e. of fast þannig að jafnvel þó kúla sé í beinni stefnu á holu og hitti hana jafnvel þá skoppar boltinn upp úr vegna þess að of miklum krafti var beitt.  Afar ergilegt!

En svo eru „feimnu“ pútterarnir þeir sem ekki drífa að holu, skortir e.t.v. sjálfstraust. Stundum lendir bolti þeirra allt of langt frá holu að jafnvel 2. púttið fer forgörðum og þá hrúgast höggin upp.

Haust og vetur er frábær tími til að æfa stutta spilið – notið tímann, vorið kemur fyrr en varir á ný!!!

Hér er hugmynd að auðveldri púttæfingu, sem hjálpa á kylfingnum að fá tilfinningu fyrir púttstroku sinni. SMELLIÐ HÉR: