Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2012 | 16:00

Frægir kylfingar: Ewan McGregor

Sá, sem þykir líklegastur til þess að hljóta verðlaun við næstu Óskarsverðlaunaafhendingu, fyrir besta karlleikara í aukahlutverki er skoski leikarinn Ewan McGregor fyrir frábært hlutverk sitt sitt í jólamynd Sambíóanna í ár „The Impossible,“ sem hlotið hefir einróma lof gagnrýnenda. Sjá má trailerinn af The Impossible með því að SMELLA HÉR:  Ewan er fæddur 31. mars 1971 og því 41 árs. Hann á 4 dætur og er kvæntur eiginkonu sinni Eve Mavrakis. Þekktastur var Ewan McGregor (fyrir gerð „The Impossible“) fyrir hlutverk sín sem Mark Renton í Trainspotting  frá árinu 1996, Obi-Wan Kenobi í Star Wars (1999-2005 – 3 myndir) og sem Christian í kvikmyndinni Moulin Rouge, frá árinu 2001. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2012 | 15:24

Ragnar Már hefur leik á 2. hring í Miami

Ragnar Már Garðarsson, GKG, var að fara út nákvæmlega þegar þessi frétt er birt, en hann á rástíma kl. 10:24 að staðartíma í Coral Gables, Miami þ.e. kl. 15:24 hér á Íslandi. Ragnar Már á mjög erfiðan hring framundan, en bilið milli hans og Englendingsins Patrick Kelly, sem spilaði á 6 undir pari í gær og er í efsta sæti eftir 1. hring eru 17 högg. Aðeins tveir eru í ráshóp Ragnars Más, hann sjálfur og kylfingur frá Zimbabwe, Ben Follett-Smith og hefja þeir leik á 1. teig. Golf 1 óskar Ragnari Má góðs gengis og er hugurinn hjá honum á Biltmore vellinum í Coral Gables næstu 5 tímana! Til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2012 | 13:00

GK: Áramótapúttmót Keilis fer fram á Gamlársdag

Hið árlega áramótapúttmót Hraunkots verður haldið á Gamlársdag frá kl. 11:00-16:00. Spilaðir tveir hringir og betra skor gildir, kostar aðeins 500 krónur. Glæsilegir flugeldapakkar í verðlaun fyrir þá sem vinna. Ef veður leyfir verður einnig haldið 9 holu mót á Hvaleyrinni, það eina sem þarf að gera er að mæta engin fyrirfram skráning. Einsog undanfarin ár verða veitingar bæði uppí golfskála og í Hraunkoti […]. Heimild: Heimasíða Keilis


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2012 | 12:00

John Hughes þjálfari Hartlepool í leit að „Ian Poulter“ meðal leikmanna sinna

John Hughes er þjálfari 3. deildar liðsins Hartlepool í enska boltanum. Og Hartlepool er á botni 3. deildar (First League) á Englandi. Í skemmtilegu viðtal við bæjarblað Hartlepool, Hartlepool Mail óskar Hughes sér leikmanns, sem snúi hlutunum til betri vegar líkt og Ian Poulter gerði í Ryder Cup liði Evrópumanna í „Kraftaverkinu í Medinah.“ Hughes sagðist hafa horft á Ryder Cup og séð frammistöðu Ian Poulter þar. Hann spyr m.a. í blaðaviðtalinu: „Hver er Ian Poulter-inn okkar?“ „Hver mun leiða?“ „Hver tekur að sér að hvetja hina áfram?“ Gaman að þessu þegar aðrar íþróttagreinar taka sér golfíþróttina og þá sem framast standa þar til fyrirmyndar!!! Hér má sjá blaðagreinina í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2012 | 10:30

Hringur á fingri Caroline Wozniacki veldur vangaveltum hvort hún og Rory séu trúlofuð

Þekktasta íþróttapar ársins 2012 lenti á Brisbane flugvelli í Ástralíu í gær, en þangað er kæresta nr. 1, Caroline Wozniacki mætt ásamt sjálfum nr. 1, Rory McIlory, til þess að venjast aðstæðum fyrir Brisbane International og Australian Open tennismótin, sem hefjast í næsta mánuði. Það sem vakti athygli blaðamanna, sem sátu um skötuhjúin var stærðarinnar demants-safír-hringur á hendi Caroline, sem þegar hefir valdið vangaveltum um hvort þau draumadúllurnar hafi trúlofast yfir hátíðarnar. Trúlofunarhringur eða bara flott jólagjöf? Í síðasta mánuði neitaði Caroline að Rory hefði beðið hennar en það gæti s.s. hafa breyst nú yfir aðaldaga jólahátíðarinnar. Caroline svaraði spurningum blaðamanna stuttlega og Rory neitaði alfarið viðtali við þá. Caroline Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2012 | 09:30

Lydia Ko stóð upp úr af nýsjálenskum kylfingum 2012

Skærasta stjarna Ný-Sjálendinga í golfheiminum  árið 2012 var án nokkurs vafa hin 15 ára Lydia Ko. Hún er líka vafalaust ein mesta framtíðarstjarna kvennagolfsins; er nú þegar efst á heimslista áhugamanna. Þann 29. janúar 2012 varð Ko yngsti sigurvegari – kven- eða karlkyns – á móti atvinnumanna, en þá var hún enn 14 ára og sigraði New South Wales Open, sem er mót, sem bæði LET og ALPG standa að. Aldursmet hennar sem yngsti sigurvegari í móti atvinnumanna var að vísu slegið á árinu af kanadíska kylfingnum Brooke Henderson, sem var 2 dögum yngri en Lydia Ko, þegar hún vann mót á Canadian Women´s Tour.  Sjá má myndskeið með Brooke Henderson Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2012 | 18:45

Ragnar Már í næstneðsta sæti á Orange Bowl eftir 1. dag

Ragnar Már Garðarsson, GKG, hefir nú lokið 1. hring á  Orange Bowl International Championship, sem fram fer á golfvelli Biltmore hótelsins fræga í Coral Gables, í Flórída. Mótið stendur dagana 27.-30. desember 2012. Þátttakendur eru 61. Ragnari Má gekk afleitlega í dag og hann var að spila langt undir getu.  Hann lauk hringnum á 11 yfir pari; 82 höggum. Ragnar Már fékk 1 skramba, 9 skolla og 8 pör. Ragnar er deilir neðsta sæti eftir 1. dag. Þess mætti geta að mörgum Íslendingum þykir erfitt að venjast loftslagi Miami á stuttum tíma; mikill raki er í loftinu og þegar komið er úr þurra loftinu okkar hér á Íslandi syðst til Flórída Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2012 | 17:55

Afmæliskylfingur dagsins: Unnar Geir Einarsson – 27. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Unnar Geir Einarsson. Unnar Geir er fæddur 27. desember 1994 og því 18 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Suðurnesja (GS).  Sjá má viðtal Golf 1 við Unnar Geir með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Unnar Geir Einarsson (18 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Sherri Steinhauer, 27. desember 1962 (50 ára stórafmæli!!!);  Matthew Zions, 27. desember 1978 (34 ára);  Helena Callahan, 27. desember 1986 (26 ára) ….. og ….. Árni Páll Hansson, GR (44 ára) Júlíana Kristný Sigurðardóttir (14 ára) Golf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2012 | 17:00

Erfið byrjun hjá Ragnari Má í Flórída – er á 4 yfir eftir 9 holur

Ragnar Már Garðarsson, GKG, hóf í dag keppni á Orange Bowl International Championship, sem að venju fer fram á golfvelli Biltmore hótelsins fræga í Coral Gables, í Flórída. Mótið stendur dagana 27.-30. desember 2012. Þátttakendur eru 61. Ragnar Már hlaut þátttökurétt í mótinu eftir sigurinn í Duke of York mótinu í september s.l.  Mótið er mjög sterkt, því þar taka þátt einhverjir sterkustu ungu kylfingar Bandaríkjanna og reyndar heimsins alls. Í efsta sæti eins og er, er t.a.m. ungur kylfingur frá Englandi,  Patrick Kelly, sem byrjaði á því að fá örn á 1. holu og er kominn á 5 undir par, eftir 13 holur. Ragnar Már fór illa af stað Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2012 | 11:30

Martin Kaymer og Bruno Spengler í skemmtilegri keppni þar sem BMW, golf og sleðar koma við sögu – Myndskeið

Þýski kylfingurinn snjalli Martin Kaymer og DTM sigurvegarinn Bruno Spengler hittust nú um jólin í mjög svo óvenjulegri keppni. Fyrst var kappakstur á BMW-um í 2000 m hæð yfir sjávarmáli í Ölpunum og ekki laust við að Kaymer hafi beitt golfkunnáttunni og svindlað svolítið! Síðan tók við heldur óvenjuleg golfkeppni …… þar sem já, hummm  Bruno Spengler hafði betur. Úrslitin réðust því í snjósleðaferð niður brekku. Og eftir hana var allt jafnt þó báðir hafi talið sig vinna! Eftir keppnina sagði Spengler m.a. um Kaymer: „Martin var erfiður andstæðingur en ég vissi það nú fyrir þessa keppni. Ég hef áhuga á golfi og horfði á hann setja niður púttið mikilvæga Lesa meira