
John Hughes þjálfari Hartlepool í leit að „Ian Poulter“ meðal leikmanna sinna
John Hughes er þjálfari 3. deildar liðsins Hartlepool í enska boltanum. Og Hartlepool er á botni 3. deildar (First League) á Englandi.
Í skemmtilegu viðtal við bæjarblað Hartlepool, Hartlepool Mail óskar Hughes sér leikmanns, sem snúi hlutunum til betri vegar líkt og Ian Poulter gerði í Ryder Cup liði Evrópumanna í „Kraftaverkinu í Medinah.“
Hughes sagðist hafa horft á Ryder Cup og séð frammistöðu Ian Poulter þar.
Hann spyr m.a. í blaðaviðtalinu: „Hver er Ian Poulter-inn okkar?“ „Hver mun leiða?“ „Hver tekur að sér að hvetja hina áfram?“
Gaman að þessu þegar aðrar íþróttagreinar taka sér golfíþróttina og þá sem framast standa þar til fyrirmyndar!!!
Hér má sjá blaðagreinina í Hartlepool Mail í heild SMELLIÐ HÉR:
Reyndar…. eru mikil tengsl milli fótboltaiðkennda og kylfinga og í mörgum tilvikum fer það saman, þ.e. atvinnumenn í fótbolta eru oft snjallir kylfingar og áhangendur og iðkendur golfíþróttarinnar einlægir fótboltaáhangendur á sama tíma. Um tengsl íslenskra atvinnumanna í fótbolta við golfið nægir að nefna Herminator- mótið sem Hermann Hreiðarsson stendur fyrir ár hvert úti í Vestmannaeyjum.
Ef litið er yfir árið 2012 mætti nefna að Gylfi Þór Sigurðsson, atvinnumaður hjá Tottenham Hotspurs sigraði á Opna Classic mótinu í Öndverðarnesinu þ. 30. júní s.l.
Frægt er á árinu þegar argentínski kylfingurinn Andres Romero fékk landa sinn og miðherja Manchester City Carlos Tevez, til þess að gerast kylfusveinn hjá sér á Reno-Tahoe mótinu, við miðsjafnar undirtektir þeirra í R&A.
Íslenskir kylfingar fylkja sér auk þess svo tugum skiptir í mót sem kenndi eru við ýmiss fótboltafélög, t.d. Liverpool Open sem fram fór á Urriðavelli s.l. sumar eða þá Opna fótbolti.net sem haldið var á Leirdalsvelli í sumar og sjá má myndir af með því að SMELLA HÉR:
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)