
Mestu sleggjurnar beggja vegna Atlantsála á samningi hjá Callaway eftir að samningur var gerður við Colsaerts
Callaway Golf getur nú montað af því að vera með mestu sleggjurnar beggja vegna Atlantsála á samningi hjá sér eftir að gengið var frá samningi við Belgann Nicolas Colsaerts.
Þessi frábæri Ryder bikars nýliði er meðal margra þekktra kylfinga sem hafa skipt úr Titleist kylfum yfir í Callaway fyrir 2013 keppnistímabilið.
Í golfpoka Nicolas Colsaerts munu því vera 10 Callaway kylfur í þegar hann hefur keppni í fyrsta móti sínu á 2013 keppnistímabilinu í næstu viku.
Colsaerts staðfesti á vefsíðu sinni að hann hefði gengið frá 10 kylfu samningi og í Volvo Champions mótinu í næstu viku Durban mun hann nota nýja Callaway 9.5°Razr Head Dræver, CallawayDynamic Gold X-100 járn (wað undanskildu 2-járninu) og Odyssey Black Series 1 Tungstenpútterinn .
Colsaerts byrjaði 2012 keppnistímabilið með hring upp á 63 högg og var óheppinn að komast ekki í umspil.
Meðal annarra sleggja sem eru á samningi hjá Callaway eru Spánverjinn Alvaro Quiros og Bandaríkjamaðurinn Gary Woodland.
Colsaerts er högglengsti kylfingur á Evrópumótaröðinni 2012 en meðaldræv hans voru 318,3 yardar (291 metrar).
Þetta var næstum 5 yördum (4,5 metrum) lengra en Ástralinn Scott Hend var með og 5,8 yördum (5 metrum) lengra en hjá sleggjunni spænsku Alvaro Quiros, sem var með meðaltalsdræv upp á 312,5 yarda (286 metra).
„Ég er svo glaður að ná samningum við Callaway,“ sagði Colsaerts m.a. Hann sagðist hins vegar áfram munu nota Titleist bolta.
Gary Woodland átti lengsta drævið á PGA Tour 2012 450 yarda (411,5 metra) á 18. holu á fyrsta degi fyrta mótsins – Hyundai Tournament of Champions í Hawaii, í fyrra, en það mót hefst einmitt í dag, og s.l. 3 ár hefir Woodland að meðaltali verið að slá lengra en 300 yarda (275 metra).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024