
PGA: Fyrsti hringur Tournament of Champions á Kapalua felldur niður sökum veðurs
Vindhviðurnar á Plantation golfvellinum voru það sterkar og rigningin lamdi keppendur í Kapalua, Hawaii í gær þannig að ákveðið var að fella niður 1. hring á Tournament of Champions (skammst. TOC).
Þetta var ágætis ákvörðun fyrir keppendur eins og Scott Stallings sem var kominn 7 yfir eftir aðeins 4 holur. En hvað með sigurvegara Opna bandaríska, Webb Simpson, sem eins og Golf 1 greindi frá í gærkvöldi var sá eini ásamt Svíanum Jonas Blixt sem búinn var að spila undir pari.
„Þetta er ömurleg ákvörðun fyrir mig,“ sagði hann.
Webb Simpson var á 3 undir pari eftir 7 holur þegar ákvörðun var tekin um að fella leik 1. hrings niður. Blixt var á 1 undir pari.
Planið er að spila 36 holur í dag, sem eru slæmar fréttir fyrir kylfusveinana, sem verða að bera kylfurnar upp þennan hæðótta golfvöll, sem Plantation golfvöllurinn er.
Þeir yrðu allaveganna kátir ef mótið yrði frestað enn frekar en svo gæti farið því spáin er upp á enn meiri rok og rigningu á Hawaii.
Sjáið m.a. Amöndu Ballonis og félaga í PGA Tour Today fréttamynskeiðinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024