Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2013 | 06:30
PGA: Phil heldur forystu fyrir lokahring Phoenix Open – hápunktar og högg 3. dags

Phil Mickelson er búinn að halda forystunni alla 3 fyrstu dagana á Waste Management Phoenix Open 2013. Í gær kom hann í hús með hring upp á 7 undir pari, 64 högg þar sem hann fékk 7 fugla og 11 pör; 2 fugla á fyrri 9 TPC Scottsdale vallarins og 5 á seinni 9 TPC Scottsdale vallarins. Eftir hringinn sagði Phil m.a.: „Vonandi spila ég eins og ég hef gert fram að þessu í mótinu, það er númer eitt á morgun (þ.e. í dag – á lokahringnum).” Samtals er Phil búinn að spila á 24 undir pari, 189 höggum (60 65 64) og hefir 6 högga forystu á Brandt Snedeker Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2013 | 06:00
PGA: Kapphlaup kylfusveina – Myndskeið

Á 1. degi Waste Management Phoenix Open mótsins fór fram svokallað kylfusveinahlaup, sem var til skemmtunar samhliða 1. hring mótsins. Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá 3 kylfusveina hlaupa frá teig og að flöt á hinni frægu par-3 16. braut á TPC Scottsdale, þar sem kylfusveinahlaupið fór fram. Kylfusveinarnir voru hvattir áfram bæði af vinnuveitendum sínum, þ.e. keppendunum og áhorfendum. Spurning hvort Bones hafi staðið sig jafnvel í kylfusveinahlaupinu og vinnuveitandi hans, Phil Mickelson er að gera í mótinu? Til þess að sjá brot af kapphlaupi kylfusveina á Waste Management Phoenix Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2013 | 13:45
ALPG & LET: Ariya Jutanugarn og Su Hyun Oh leiða eftir 2. dag RAVC Ladies Masters

Það eru thaílenska stúlkan Ariya Jutanugarn, sem varð í 1. sæti í lokaúrtökumóti Q-school LET og ástralski áhugamaðurinn 16 ára Su Hyun Oh sem leiða eftir 2. dag RACV Ladies Masters sem hófst í Ástralíu í gær. Báðar hafa þær Jutanugarn og Oh spilað á samtals 10 undir pari hvor; Ariya (69 65) og Su Hyun (70 64). Þriðja sætinu deila Jessica Korda frá Bandaríkjunum og ástralska stúlkan Stacey Keating báðar á samtals 9 undir pari, 135 höggum, hvor. Fimmta sætinu deila svo Chella Choi frá Suður Koreu og Carrie Webb frá Ástralíu. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. hring á RACV Ladies Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2013 | 13:30
Evróputúrinn: Stephen Gallacher leiðir fyrir lokahringinn á Omega Dubai Desert Classic eftir hring upp á 62 högg

Skotinn Stephen Gallacher leiðir eftir glæsihring í dag á Omega Dubai Desert Classic upp á 62 högg!!! Á hringnum góða fékk Gallacher 2 erni, 6 fugla og 10 pör – hreint skorkort og glæsiskor!!! Samtals er Gallacher búinn að spila á 21 undir pari, 195 höggum samtals (63 70 72) og á 3 högg á forystumann gærdagsins, Richard Sterne frá Suður-Afríku (62 70 66). Í 3. sæti er Daninn Thorbjörn Olesen á samtals 16 undir pari, 200 höggum (67 66 67). Þrír deila 4. sætinu á samtals 14 undir pari hver, þ.á.m. Indverjinn Jeev Milkha Singh. Maximilian Kiefer frá Þýskalandi og Steve Webster frá Englandi deila 7. sætinu á 13 undir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Gísli Þór Þórðarson – 2. febrúar 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Gísli Þór Þórðarson. Gísli Þór er fæddur 2. febrúar 1993 og á hann því 20 ára stórafmæli í dag! Gísli Þór er í Golfklúbbi Reykjavíkur og tók með góðum árangri þátt í Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar. Þannig leiddi hann m.a. á Egils Gull mótinu úti í Eyjum eftir 1. hring ásamt 2 öðrum en hafnaði í 21. sæti af 67 keppendum í því móti, ásamt 2 öðrum eftir með skor upp á 70 75 76. Gísli Þór er með 2,3 í forgjöf. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið: Gísli Þór Þórðarson (20 ára) Aðrir frægir kylfingar, sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2013 | 10:00
Miðaldra kylfingar og það sem þeir gera til að halda sér unglegum – notkun hreindýrahorn-spreys ekki ný af nálinni

Í grein Sam Weinman hjá Golf Digest, sem ber nafnið: „Deer antler spray? That’s sooo last century“ er fjallað um miðaldra kylfinga og það sem þeir gera til þess að reyna að halda sér í formi á við yngri kylfinga. Það er hægt að brosa að því að Vijay Singh leiti sér lækninga í hreindýrahornum (ens. deer antler). En Singh er ekki sá eini á sextugsaldri sem er að reyna að draga úr áhrifum öldrunar. Mark Calcavecchia notaði sama hreindýrahorns-sprey og Singh hefir viðurkennt að nota áður en honum var sagt að efnið væri bannað. Í þessari viku kom einnig í ljós að fyrrum sigurvegari á Opna breska, Bob Charles Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2013 | 01:55
PGA: Phil enn efstur þegar Phoenix Open er hálfnað – hápunktar og högg 2. dags

Phil Mickelson heldur enn forystunni á Waste Management Phoenix Open þegar leiknir hafa verið 2 hringir í mótinu. Phil er samtals búinn að spila á 17 undir pari, 125 höggum (60 65) og hefir 4 högga forystu á Bill Haas, sem er í 2. sæti á 13 undir pari, 129 höggum (65 64). Phil Mickelson fékk fugl á 9. holunni 1 degi of seint og missti af tækifæri til þess að setja nýtt met á PGA Tour um lægsta skorið eftir 36 holur þegar hann lauk hringnum með tvöföldum skolla eftir að dræv hans lenti í vatni. Lægsta skor dagsins 63 högg átti Keegan Bradley, sem deilir 3. sæti ásamt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2013 | 18:00
Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR. Hildur Kristín fæddist 1. febrúar 1992 og á því 21 árs afmæli í dag. Hildur Kristín byrjaði að spila golf 15 ára og er því aðeins búin að spila golf í 5 ár. Engu að síður er hún komin með 6,2 í forgjöf og spilaði m.a. á Eimskipsmótaröðinni sumarið 2011 og 2012. Hildur varð m.a. í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni; hún sigraði 1. flokk á meistaramóti GR, 2009 og sigraði bæði sveitakeppni 1. deildar kvenna kvenna og stúkna 18 ára og yngri 2010. Eins var hún í sveit GR kvenna, sem urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ, 2011. Hildur Kristín er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2013 | 14:25
Evróputúrinn: Richard Sterne leiðir þegar Omega Dubai Desert Classic er hálfnað

Það er Richard Sterne frá Suður-Afríku sem leiðir þegar Omega Dubai Desert Classic er hálfnað. Sterne er búinn að spila á samtals 12 undir pari, 132 höggum (62 70) og hefir 1 höggs forskot á þá Thorbjörn Olesen frá Danmörku, Tommy Fleetwood frá Englandi og Stephen Gallacher frá Skotlandi. Hann setti niður fugl á lokaholunni og rétt tryggði sér þannig 1 höggs forystu á hina 3. Fimmta sætinu deila enn einn Daninn Andreas Hartö ásamt Chris Doak frá Englandi og Maximilian Kiefer frá Þýskalandi en allir eru þeir á samtals 10 undir pari hver, 134 höggum. Meðal þeirra sem ekki náðu niðurskurði eru Thomas Björn, Edoardo Molinari og John Parry (varð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2013 | 14:00
Rory við æfingar í Monaco

Golfheimurinn var farinn að furða sig á því hvað hefði eiginlega orðið af Rory McIlroy. Því er til að svara að hann hefir verið við æfingar í Monte Carlo Golf Club. Kæresta Rory, Caroline Wozniacki tvítaði mynd af the Mont Agel Club og fylgdi myndinni texti þar sem sagði að Rory léti „golf líta út fyrir að vera auðvelt.“ Svona var tvítið á ensku: „Beautiful view from the Monte Carlo golf club. Done with my training for the day, now watching @McIlroyRory make golf look easy… Og Wozniacki er ekki í furstadæminu til þess að keppa í tennis því Monte Carlo Rolex Masters er ekki fyrr en í apríl. Í the Mont Agel Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

