Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gísli Þór Þórðarson – 2. febrúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Gísli Þór Þórðarson. Gísli Þór er fæddur 2. febrúar 1993 og á hann því 20 ára stórafmæli í dag! Gísli Þór er í Golfklúbbi Reykjavíkur og tók með góðum árangri þátt í Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar.  Þannig leiddi hann m.a. á Egils Gull mótinu úti í Eyjum eftir 1. hring ásamt 2 öðrum en hafnaði í 21. sæti af 67 keppendum  í því móti, ásamt 2 öðrum eftir  með skor upp á 70 75 76.  Gísli Þór er með 2,3 í forgjöf.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið:

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Arron Matthew Oberholser, 2. febrúar 1975 (38 ára), Virginie Lagoutte-Clement, f. 2. febrúar 1979 (34 ára)  og…