
Alan Dunbar á Masters
Meðal áhugamannanna 6 sem taka þátt á the Masters er sigurvegari British Amateur Open, Alan Dunbar.
Það er næsta öruggt að hann muni gerast atvinnumaður nú á næstnni og verður Ballantine´s Championship í Suður-Kóreu fyrsta mótið sem hann spilar í sem atvinnumaður. Honum hefir þegar verið boðið að taka þátt í Volvo China Open og hann hefir þegið boð golfgoðsagnarinnar Jack Nicklaus um að spila í Memorial móti hans, sem hefst 30. maí n.k.
Aðspurður um hvert markmiðið væri á Masters sagði Dunbar: „Bara að spila vel.“
Dunbar mætti snemma á Augusta National á sunnudaginn og keyrði viljandi hægt niður Magnolia Lane. „Ég kom hingað á sunnudaginn og keyrði viljandi hægt niður Magnolia Lane, þannig að ég gæti meðtekið þetta allt.“ sagði Dunbar.
Ég fékk að spila hring með John Carr og nokkrum félögum áður en hinir komu allir á mánudaginn. Það var ágætt að ná hring án áhorfenda. Ég nýt þess að vera hér og skemmti mér.“
Dunbar viðurkenndi að á mánudaginn hefði hann verið stressaður þegar hann tíaði upp með sigurvegara Opna bandaríska, Webb Simpson og Michael Thompson, sem nýlega vann á Honda Classic.
„Þar sem þeir spiluðu með mér var miklu meira af áhorfendum sem fylgdust með okkur. Þetta eru vingjarnlegir náungar og síðan á þriðjudaginn spilaði ég með Graham (McDowell) og Steven Fox, sem líka er áhugamaður. Við tókum okkur hádegisverðarhlé og síðan fór Ben Curtis út með okkur á seinni 9.“
Dunbar reynir að meðtaka eins miklar upplýsingar og hann getur en hann er líka í pílagrímsför því hann fór á 16 og leitaði uppi staðinn þar sem Tiger Woods sló töfravippið á Masters 2005. „Ég fór líka á staðinn á 10. braut þaðan sem Bubba sló sveigjuhöggið fræga. Högg Tiger á 16. og högg Bubba eru einhver bestu golfhögg allra tíma.“
Kylfuberi Dunbar, Lee Adelly trúir því að Dunbar eigi bjarta framtíð fyrir sér, en hann hefir m.a. verið kylfuberi Steven Richardsson sem tók þátt á Masters 1991 og Ian Woosnam.
„Ég hlakka til að starfa heilsdags með honum í framtíðinni“ sagði Adelly loks, sannfærður um að heimsbyggðin muni sjá nafn Dunbar ofarlega á skortöflum golfmóta heims í framtíðinni.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024