Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 20:00

GSG: Þór Ríkharðs og John Berry sigruðu á Haustmótaröð Golfbúðarinnar nr. 1

Í gær, 19. október 2013, fór fram fyrsta mót í Haustmótaröð Golfbúðarinnar á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Þátttakendur voru 46 þar af 2 kvenkylfingar. Leikformið var höggleikur með forgjöf (veitt 1 verðlaun fyrir efsta sætið þ.e. besta skor) og punktakeppni með forgjöf (veitt 3 verðlaun fyrir efstu sætin). Á besta skorinu var heimamaðurinn Þór Ríkharðsson, GSG, á 2 yfir pari, 74 höggum (37 högg á seinni 9) og hlaut hann 15.000 króna úttekt í Golfbúðinni í Hafnarfirði.   Bjarni Benediktsson, GKJ var líka á 74 höggum en með fleiri högg 40 á seinni 9. Í fyrsta sæti í punktakeppninni varð John Steven Berry , GSG, með 37 punkta (21 punkt á seinni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 19:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst bætti sig með hverjum hring – lauk leik á 74

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU  tók nú um helgina þátt í  U.S. Collegiate Championship mótinu í Alpharetta, Georgíu. Mótið stóð dagana 18.-20. október 2013 og  lauk í dag. Þátttakendur voru 78 frá 15 háskólum. Guðmundur Ágúst lék samtals á 12 yfir pari, en bætti sig með hverjum hring – byrjaði afleitlega á 78 höggum, bætti sig næsta dag í 76 og lauk síðan leik í dag á 74 höggum. Hann var því miður á lakasta skori ETSU, sem lauk leik í 12. sæti í liðakeppninni og taldi skor Guðmundar Ágústs ekki. Næsta mót ETSU er Warrioe Princeville Makai Invitational, sem hefst 4. nóvember n.k. í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 19:00

Shriners Hospitals for Children Open í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er Shriners Hospitals for Children Open, sem fram fer á TPC Summerlin í Las Vegas, Nevada. Nú í kvöld er leikinn lokahringurinn. Til þess að sjá Shriners Hospitals for Children Open í beinni SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá stöðuna á Shriners Hospitals for Children Open á skortöflu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 15:30

LPGA: Amy Yang sigraði á KEB HanaBank mótinu

Það var Amy Yang frá Suður-Kóreu sem stóð uppi sem sigurvegari á LPGA KEB HanaBank Championship. Þetta er fyrsti sigur Yang á LPGA og sá 4. á keppnistímabilinu, þar sem kvenkylfingar eru að vinna fyrstu sigra sína á mótaröðinni. Yang lék á samtals 9 undir pari líkt og landa hennar Hee Kyung Seo.   Það varð því að koma til umspils milli þeirra á Ocean golfvelli Sky72 golfklúbbsins í Incheon og þar hafði Yang betur þegar á 1. holu. Þrjár deildu 3. sætinu: norska frænka okkar Suzann Pettersen, Michelle Wie!!! og heimakonan Sei Young Kim. Gaman að sjá Wie aftur í einu toppsætanna – e.t.v. próteinsríki kolkrabbinn sem hún snæddi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 15:15

Rory reif sig upp í lokin

Rory lauk keppni í Kolon Korea Open í 2. sæti. Honum gekk illa í gær en vel í dag, en þannig er nú golfið. Hann spilaði á samtals 4 undir pari, 281 höggi (70 69 75 67) og varð aðeins 1 höggi á eftir sigurvegaranum Kang Sung-Hoon. Allt í allt var þetta þó 2. flokks móts þar sem Rory var eini heimsklassakylfingurinn. En góður lokahringur upp á 67 gefur vonir um að gæfan sé e.t.v. að fara að snúast nr. 6 í hag! Til að sjá lokastöðuna á Kolon Korea Open SMELLIÐ HÉR:     


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristján Þór Kristjánsson – 20. október 2013

Það er Kristján Þór Kristjánsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kristján Þór fæddist 20. október 1967 og á því 46 ára afmæli í dag.  Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og er kvæntur Helgu Loftsdóttur.  Komast má á facebooksíðu Kristjáns Þórs til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Kristján Þór Kristjánsson (46 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Tsuneyuki „Tommy“ Nakajima, 20. október 1954 (59 ára);  David Lynn, 20. október 1973 (40 ára stórafmæli!!!! – Sjá nýlega kynningu Golf 1 á Lynn með því að SMELLA HÉR: ); Veronica Zorzi, 20. október 1980 (33 ára);  Danielle Kang, 20. október 1992 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 07:55

Evróputúrinn: Jin sigraði í Perth

Það var Jin Jeong frá Suður-Kóreu sem stóð uppi sem sigurvegari á  ISPS Handa Perth International, en mótið hefir farið fram undanfarna daga á golfvelli Lake Karrinyup CC í Perth, Ástralíu. Bæði Jin og Ross Fisher voru á sama skori eftir hefðbundnar 72 holur og því varð að fara fram bráðabana. Báðir höfðu spilað á 10 undir pari, 278 höggum; Jin (68 72 69 69) og Fisher (72 67 71 68). Bráðabanann vann síðan Jin þegar á 1. holu með fugli (4 höggum) meðan Fisher fékk par (5 högg). Forystumaður eftir 3. hringi heimamaðurinn Brody Ninyette deildi 3. sætinu með landa sínum Dimitrios Papadatos og Englendingnum Danny Willett, allir á 8 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2013 | 03:30

PGA: Simpson enn í forystu fyrir 4. hring Shriners

Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson leiðir enn eftir 3. dag Shriners Hospitals for Children Open mótinu, sem fram fer á TPC Summerlin golfvellinum í Las Vegas, Nevada. Hann er samtals búinn að spila á 19 undir pari, 194 höggum (64 63 67). Í 2. sæti, 4 höggum á eftir Simpson er Bandaríkjamaðurinn Chesson Hadley á samtals 15 undir pari og í 3. sæti er Jeff Overton á 14 undir pari. Til þess að sjá stöðuna á Shriners Hospitals for Children Open eftir 3. dag  SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Shriners Hospitals for Children Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 19. 2013 | 20:50

Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Skoskur golfari, sem fór í golfferð til Englands var ekki par hrifinn af ferðinni.  Honum fannst Englendingarnir í golfhótelinu stóra bara langt frá því vingjarnlegir við hann. „Klukkan þrjú að nóttu til og það á hverjum degi,“ sagði hann við vin sinn, „bönkuðu þeir á herbergisdyrnar mínar, tveirá veggina til beggja hliða, jafnvel undir gólfinu og einn ofan af lofti.  Stundum var bankað svo hátt að ég gat ekki einu sinni heyrt í sekkjapípunum mínum!“ Nr. 2 Framkvæmd var rannsókn til þess að kanna hvort húmor væri hinn sami um allan heim og samtímis var reynt að finna út þann brandara sem flestum fannst fyndinn í viðkomandi landi. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 19. 2013 | 17:55

LPGA: Hull-Kirk og Nordqvist leiða í S-Kóreu eftir 2. dag

Það eru þær Katherine Hull-Kirk frá Ástralíu  og sænska Solheim Cup stjarnan Anna Nordqvist, sem leiða eftir 2. dag á LPGA-KEB HanaBank Championship í Sky72 golfklúbbnum í Incheon, Suður-Kóreu.  Báðar eru búnar að spila á 7 undir pari; Hull-Kirk (67 70) og Nordqvist (67 70). Norska frænka okkar, Suzann Pettersen, sem á titil að verja er búin að koma sér í þægilega stöðu í 3. sætið sem hún deilir ásamt heimakonunum Ju Young Pak og Amy Yang. Þær eru aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á PGA-KEB HanaBank Championship SMELLIÐ HÉR: