Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2013 | 09:00
Rosapenna golfstaður Írlands 2013
Rosapenna Hotel & Golf Resort í Donegal sýslu á Írlandi hlaut í gær (21. október 2013) viðurkenningu Ireland Golf Tour Operator Association’s (IGTOA) fyrir að vera golfstaður ársins 2013. (Komast má á heimasíðu Rosapenna með því að SMELLA HÉR: ) Viðurkenningin var afhent með athöfn á Gala Irish Golf Awards í The Europe hótelinu í Killarney, Írlandi, í gær. John Casey, framkvæmdastjóri Rosapenna sagði m.a.: “The Ireland Golf Tour Operator Association er virtasta stofnunin hvað varðar mat á írsku golfi bæði hér heima (á Írlandi) og alþjóðlega.“ „Að hljóta þessa viðurkenningu um að vera golfstaður Írlands á árinu 2013 er gríðarlegur heiður fyrir okkur öll á Rosapenna en við stærum okkur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2013 | 08:30
Rory tilbúinn fyrir mótin í Shanghai

Eftir að hafa landað 2. sætinu á Kolon Korea Open nú á sunnudaginn, þá eru vonir Rory McIlory miklar um gott gengi í næstu tveimur mótum sem hann tekur þátt í, í Shanghai, í Kína. BMW Championship fer fram nú í vikunni og heimsmótin WGC-HSBC Championships fara fram í lok mánaðarins. „Ég geri miklar kröfur til mín á þessum tveimur mótum,“sagði Norður-Írinn í golfbúðum við golfklúbbinn Lake Malaren í Shanghai, í gær. „Svo lengi sem ég ræð við pútt vandamál mín þá ætti ég að geta unnið á öðru hvoru þeirra.“ McIlroy sagði að hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum með pútt sín á Korea Open, þar sem hann tapaði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 23:59
Introducing Icelanders who play on US College Golf teams no. 11: Hrafn Guðlaugsson
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 21:30
Heimslistinn: Simpson í 17. sæti!
Webb Simpson fór úr 24. sætinu upp í 17. sæti heimslistans vegna sigurs síns á Shriners Hospitals for Children Open nú um helgina. Þetta er besti árangur Simpson nú á árinu, frá því að hann var í 16. sæti eftir T-15 árangur á Players Championship í ár. Þetta er hins vegar ekki besti árangur Simpson á heimslistanum – hann var í 5. sæti eftir sigur sinn á Opna bandaríska 2012. Sigur hans í Las Vegas í gær er 4. titill hans á PGA Tour. Ryo Ishikawa sem varð jafn öðrum í 2. sæti á TPC Summerlin (þ.e. á Shriners Hospitals for Children Open) fór upp um 42 sæti á heimslistanum úr 154. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 15:00
Lindsey treystir því að Tiger haldi ekki framhjá sér
Tiger Woods var ekki beinlínis tryggur og trúr í hjúskap sínum við Elínu Nordegren, en í þetta sinn á allt að vera öðruvísi. Tiger er búinn að vera með ólympíuskíðadrottningunni, Lindsey Vonn, mestan hluta ársins 2013 og Lindsey virðist treysta því fullkomlega að Tiger muni ekki halda framhjá sér. Lindsey hélt óopinberan fund heima hjá sér í Vail, Colorado og var m.a. spurð út í samband sitt við Tiger og hvort hún gæti treyst honum að halda ekki framhjá sér. Henni var greinilega brugðið við spurninguna, en virtist ekki hafa neinar áhyggjur í sambandi sínum við Tiger, skv. grein í Minneapolis Star Tribune. Hún sagði: „Ah, ég veit ekki. Þetta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Guðlaugsson – 21. október 2013

Það er Hrafn Guðlaugsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hrafn er fæddur 21. október 1990 og er því 23 ára í dag. Hann er klúbbmeistari Golfklúbbsins Setbergs (GSE) í Hafnarfirði 2012 og spilar sem stendur í bandaríska háskólagolfinu með Faulkner háskóla. Næsta mót sem Hrafn og félagar í Faulkner spila í er í Tennessee eftir viku, þ.e 28. október n.k. Sjá má viðtal Golf1, sem tekið var við Hrafn í byrjun árs 2013 með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hrafni til hamingju með afmælið hér að neðan: Hrafn Guðlaugsson (23 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 09:50
4 ára fangelsi fyrir að valda dauða efnilegs kylfings
Amanda Catherine Lowery, 42 ára var í dag í High Court í Hamilton, Nýja-Sjálandi dæmd til 4 ára og 2 mánaða fangelsis fyrir að valda dauða efnilega kylfingsins Shaynu Kumitau, 18 ára, af völdum ölvunaraksturs. Tildrög málsins voru þau að Lowery keyrði á Valentínusardeginum, 14. febrúar í ár, drukkin á bíl 4 ungmenna, Shaynu Kumitau, 18 ára; Abby Benge, 19 ára; Rebekku Marsh, 19 ára og Samuel Tait, 22 ára, á State Highway 23 í Whatawhata, Nýja-Sjálandi. Lowery var með 1,9 prómill alkóhóls í blóði, en leyfileg mörk eru 0,8 á Nýja-Sjálandi. Hávaðinn af samstuði bílanna var svo mikill að táningur í nærliggjandi húsi sem var með heyrnartól að hlusta á háværa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 09:00
GS: Kjartan og Freyr Marinó spiluðu best allra á 2. móti Haustmótaraðar GS Bílahótel
Á laugardaginn s.l., 19. október 2013, fór fram 2. mótið í Haustmótaröð GS Bílahótels. Þátttakendur voru 86 þar af 8 kvenkylfingar. Leikform var hefðbundið: höggleikur án forgjafar (1 verðlaun) og punktakeppni með forgjöf (3 verðlaun) Úrslit urðu þau að Kjartan Einarsson, GK var á besta skorinu, pari vallar, 72 höggum. Punktakeppnina á hvorki fleirum né færri punktum en 51! sigraði heimamaðurinn Freyr Marinó Valgarðsson, GS. Freyr Marinó sem er skráður með 19 í forgjöf lék Leiruna á 6 yfir pari vallar, 78 höggum. Í 2. sæti í punktakeppninni varð Steingrímur Hjörtur Haraldsson, GR á 42 punktum og félagi hans í GR, Jón Kristján Ólason varð í 3. sæti á 41 punkti. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 07:00
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór og Ragnar Már hefja í dag leik í Louisiana

Andri Þór Björnsson, GR og Ragnar Már Garðarsson, GKG hefja í dag leik á Jim Rivers Intercollegiate mótinu í Choudrant, Louisiana. Þátttakendur eru 66 frá 12 háskólum. Fylgjast má með gengi þeirra Andra Þórs og Ragnars Más með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2013 | 02:30
PGA: Simpson sigraði á Shriners
Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson vann sannfærandi sigur á Shriners Hospitals for Children Open mótinu, sem fram fór á TPC Summerlin golfvellinum í Las Vegas, Nevada. Hann lék samtals á 24 undir pari, 260 höggum (64 63 67 66). Í 2. sæti, á samtals 18 undir pari, heilum 6 höggum á eftir Simpson voru þeir Ryo Ishikawa og Jason Bohn. Til þess að sjá lokastöðuna á Shriners Hospitals for Children Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. dags á Shriners Hospitals for Children Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

