Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 11:40
Steinberg segir Tiger að auglýsa Rolex fyrir framan Omega auglýsingar – Myndskeið

Svo virðist sem Mark Steinberg, umboðsmaður Tiger Woods, hafi gleymt að á golfvöllum er allt fullt af hljóðnemum. A.m.k. er ekki víst að hann hefði viðhaft orðin í meðfylgjandi myndskeiði þar sem hann segir Tiger að ganga nú úr skugga um að vekja athygli á Rolex úri sínu fyrir framan allar Omega auglýsingarnar! Sjá má myndskeiðið af orðum Steinberg við Tiger með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 11:30
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og the Royals í 5. sæti eftir fyrri dag í N-Karólínu

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens háskólans, The Royals hófu keppni í gær á 2013 Rock Barn Intercollegiate, en mótið fer fram í Conover, Norður-Karólínu. Mótið er tveggja daga og verður lokahringurinn spilaður í dag. Þátttakendur eru 75 frá 14 háskólum Íris Katla og The Royals eru í 5. sæti í liðakeppninni og þar telur skor Írisar Kötlu sem er á 3.-4. besta skori liðs síns. Í einstaklingskeppninni er Íris Katla í 39. sætinu á 82 höggum. Sjá má stöðuna eftir fyrri dag Rock Barn Intercollegiate með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 11:00
GS: Einar Long og Þórir Gísla sigruðu á 3. móti Haustmótaraðar GS Bílahótel
Síðastliðinn laugardag, 26. október fór fram 3. mótið í Haustmótaröð GS og Bílahótel. Þátttakendur voru 60 og létu þeir Leirulognið lítið á sig fá! Þar af voru 7 kvenkylfingar meðal keppenda, sem er gott hlutafall og sýnir að það er mýta að kvenkylfingum líki ekki að leika Leiruna. Af konunum var Þórdís Geirsdóttir, GK á besta skorinu 12 yfir pari, 84 höggum og Heiðrún Harpa Gestsdóttir, GSE var með flesta punkta eða 33 punkta. Ekki voru veitt sérstök verðlaun í kvennaflokki. Verðlaun voru hins vegar veitt fyrir besta skor og 3 efstu sæti í punktakeppni með forgjöf í opnum flokki. Á besta skorinu var Einar Long, GR og GHR, en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 08:00
Heimslistinn: Moore í 31. og Gonzo í 32. sæti!

Gonzo eða m.ö.o. Gonzalo Fdez-Castaño, sem sigraði á BMW Masters á Lake Malaren í Shanghaí, Kína, nú um helgina var fyrir mótið í 60. sæti heimslistans. Við sigurinn fer hann upp um hvorki fleiri né færri en 28 sæti og er nú kominn í 32. sætið! Ryan Moore, sem vann CIMB Classic nú um helgina er enn annar hástökkvari á heimslistanum; var fyrir helgi í 45. sæti heimslistans en er nú kominn upp um 14 í 31. sætið! Gary Woodland sem keppti í bráðabananum við Moore tók líka gott stökk upp heimslistann, en hann var fyrir CIMB Classic í 80. sæti heimslistans en er nú kominn upp í 53. sætið, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 05:00
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn í 2. sæti eftir fyrri dag Red Hawk Classic!!!

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og Sigurður Björgvinsson, GK og golflið Faulkner, taka þátt í Red Hawk Classic mótinu, sem hófst í Lawrenceburg, Tennessee í gær. Það er skemmst frá því að segja að golflið Faulkner er í 1. sæti og Hrafn á besta skori liðs síns eftir fyrri dag, auk þess em Hrafn er í 2. sæti í einstaklingskeppninni!!!! Stórglæsilegt hjá Hrafni!!!! Hrafn lék á 2 undi pari, 69 höggum. Sigurður var ekki að finna sig, lék á 3 yfir pari, 74 höggum og deilir 13. sætinu í mótinu og er á lakasta skori Faulkner og telur skor hans ekki eftir fyrri dag mótsins. Sjá má stöðuna eftir fyrri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 04:30
Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már í 3. sæti eftir fyrri dag Quail Valley mótsins!!!

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese hófu í gær keppni í Quail Valley Collegiate Invitational, en mótið fer fram í Quail Valley golfklúbbnum á Vero Beach í Flórída. Það er háskóli Ragnars, McNeese, sem er gestgjafi í mótinu, þó það sé haldið 900 mílur í suður frá skólanum, í Flórída, en mótið er síðasta mót skólans fyrir jól. Ragnar Már lék fyrstu tvo hringina á 4 undir pari, 140 höggum (72 68). Hann er á besta skori McNeese, liðs síns, sem er í 2. í mótinu. Ragnar Már er í 3. sæti í einstaklingskeppninni, 5 höggum á eftir forystumanni mótsins Charlie McNeal í Louisiana Monroe háskólanum, sem er í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 14:00
Rory vann Tiger í einvíginu í Kína

Rory McIlroy vann Tiger Woods í einvíginu við Jinsha vatn á Hainan eyju í Kína nú fyrr í morgun. Rory var á 6 undir pari, 67 höggum meðan Tiger var aðeins 1 höggi á eftir á 68 höggum. Tiger var orðinn fremur orðljótur á 17. holu, sem olli nokkrum vandræðum hjá kínverskum túlkum, sem voru að reyna að matreiða hvert smáatriði leiksins ofan í áhugasama kínverska kylfinga, sem fylgdust með í sjónvarpi. Rory var að vonum ánægður í lok hrings og sagðist m.a. nú hafa rétt á að monta sig (ens. bragging-rights) af því að hafa sigrað Tiger. Allar fréttir golffjölmiðla í dag eru yfirfullar af fréttum um þóknun sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 12:30
Afmæliskylfingur dagsins: Atli Ingvarsson —- 28. október 2013

Það er Atli Ingvars sem er afmæliskylfingur dagsins. Atli er fæddur 28. október 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!!! Atli er kvæntur Lilju Hallbjörnsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Atli Ingvars (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Na Yeon Choi, 28. október 1987 (26 ára) ….. og …… Pétur Freyr Pétursson GR (23 ára) Klaus Richter (47 ára) Anna Margrét Kristjánsdóttir (23 ára) Guðmundur Steingrímsson (41 árs) Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri GK (38 ára) Gudmundina Ragnarsdottir, GO (55 ára) Maren Rós (32 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 11:30
Hvað var í sigurpoka Pettersen?

Þó Nike sé ekkert að græða á Rory McIlroy, þrátt fyrir að hafa greitt honum ógrynni fjár fyrir að spila með Nike kylfum, þá eru aðrir golfíþróttamenn, sem gengur vel með Nike kylfunum. Einn þessara kylfinga er hin norska Suzann Pettersen, en eftirfarandi Nike-kylfur voru í sigurpoka hennar á Sunrise mótinu í Taíwan í gær: Það sem var í sigurpoka Pettersen vareftirfarandi: Dræver: Nike VR_S Covert (9.5°), 3-tré: Nike VR_S Covert (15°), Blendingur: Nike VR_S hybrid (18 °), Járn: Nike VR Pocket Cavity (4.5) Nike VR Pro Split Cavity (6-PW) Járn:Nike VR Pro Combo járn (6-PW) Fleygjárn: VR Pro wedge-ar (48°, Nike WR Pro Blade 52° og 59°). Pútter: Nike Method 001 Golfbolti: Nike 20XI X golfbolti.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2013 | 11:15
Rory fær 180 milljónir

Rory McIlroy er talinn hljóta $1,5 milljónir (u.þ.b. 180 milljónir íslenskra króna) fyrir einvígi sitt við Tiger Woods, sem fram fór á Hainan eyju í Kína, fyrr í dag Einvígið er gert fyrir sjónvarpsáhorfendur í Kína og mikilvægt til þess að laða fleiri að golfíþróttinni, en ljóst er að Kína er geysistór golfmarkaður með fjölda tækifæra. Þetta 3 klst og 15 mín einvígi var ábatasamt fyrir þá báða en Tiger er talinn hljóta yfir $2 milljónir (yfir 240 milljónir íslenskra króna) þannig að hann ætti nú aldeilis að eiga fyrir jólagjöf handa Lindsey! Á BMW Masters lauk Rory keppni í 27. sæti sem hann deildi með öðrum og hann viðurkenndi að hann Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

