Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 20:00

Ein hola eftir hjá Birgi Leif

Það hefir gengið á ýmsu hjá Birgi Leif Hafþórssyni, GKG, sem tekur þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á golfvelli Lumine golfstaðarins í Tarragona, Spáni. Um hádegisbilið í dag var keppni á úrtökumótinu í Lumine frestað vegna slæms veðurs, þ.e. vindasamra aðstæðna. Má ætla að ýmsir kylfingar hafi spilað verr en venjulega, vegna veðuraðstæðnanna – en ekki okkar maður – Birgir Leifur er á samtals 3 undir pari fyrir lokaholuna, en keppni hófst á ný en var blásin af aftur vegna myrkurs…. en þá átti Birgir Leifur þá 18. eftir og væri óskandi að hann fengi fugl á hana. Birgir Leifur fer út kl. 8:40 að staðartíma í Tarragona, sem er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Einar Haukur Óskarsson – 5. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Einar Haukur Óskarsson. Einar Haukur er fæddur 5. nóvember 1982 og á því 31 árs afmæli í dag!!! Einar Haukur byrjaði að spila golf 12 ára gamall. Hann lærði golfvallarfræði í Elmwood College og var vallarstjóri GOB, en flutti sig yfir í Golfklúbbinn Keili árið 2012. Meðal afreka hans í golfinu er að sigra á 3. stigamóti íslensku mótaraðarinnar 2009. Eins fékk Einar Haukur silfrið á Íslandsmeistaramótinu eftirminnilega í holukeppni 2009, eftir æsilegan úrslitaleik við Kristján Þór Einarsson, GK, (þá GKJ). Meðal helstu afreka Einars Hauks 2012 var að hann sigraði á 6. og síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar, Símamótinu, í Grafarholtinu. Í ár, 2013, var Einar Haukur m.a. einn þeirra Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 16:30

Haukur Örn í framboð

Haukur Örn Birgisson varaforseti GSÍ hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í komandi forsetakjöri Golfsambands Íslands sem fram fer á golfþingi þann 23. nóvember næstkomandi. Störf mín fyrir golfhreyfinguna má rekja til ársins 2001 og frá þeim tíma hefur golfíþróttin skipað stórt hlutverk hjá mér, bæði í leik og starfi. Samhliða stjórnarstörfum mínum hjá Golfklúbbnum Oddi árið 2005 var ég kosinn til stjórnarsetu hjá Golfsambandi Íslands en frá árinu 2007 hef ég verið varaforseti sambandsins. Þá hef ég einnig sinnt stjórnarstörfum á vegum Evrópska golfsambandsins, EGA, undanfarin þrjú ár. Golfíþróttin hefur átt einstaklega góðu gengi að fagna undanfarinn áratug. Fjöldi iðkenda hefur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 16:00

Vonn um Tiger: „Hann er fyndinn“ – Myndskeið

Golffréttamiðlar eru uppfullir af fréttum í dag um viðtal sem kæresta Tiger, Lindsey Vonn var í hjá Katie Couric í ABC viðtalsþættinum, Katie. Þar sagði Lindsey m.a. aðspurð um hvernig persóna Tiger væri:„Hann er fyndinn, hann er afslappaður, hann er alveg ágætis náungi. Hann er alltaf að segja brandara.  Hann hefir mikið keppnisskap (eins og ég). Við erum með mjög líka persónuleika. Ef það er eitt sem ég ætti að segja um hann þá er það að hann sé fyndinn. Hann er oft hallærislega fyndinn“ (ens.: dorky goofy, eiginlega nörd eða auli). Hægt er að sjá part úr viðtalinu með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 11:30

Tiger hverrar krónu virði

Tiger Woods olli uppnámi meðal skipuleggjenda WGC-HSBC Championship, sem lauk síðustu helgi þegar hann mætti ekki vegna þess að hann varð að sinna málefnum styrktar- og samningsaðila sinna. Ekki  nema von, því alltaf þegar Tiger keppir verður mótið mun áhugaverðara í augum hins almenna golfáhugamanns. Tiger mun keppa í Tyrklandi nú í þessari viku á Turkish Airlines Open og er talinn hljóta $3 milljónir bara fyrir að mæta og tía upp. En forseta tyrkneska golfsambandisins,  Ahmet Ali Aoaoolu, finnst peningunum vel varið. „Hann kemur með til borðsins miklu meira en bara það að spila golf. Hann er súperstjarna á margan annan hátt!“ sagði Aoaoolu í viðtali við Bernie McGuire í gær. Turkish Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 08:30

Nýr golfklúbbur: Golfklúbbur Hraunborga

Ingvi Rúnar Einarsson, úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hefir stofnað golfklúbb. Að sögn Ingva Rúnars er þessi klúbbur einungis til skemmtanna fyrir félaga. Klúbburinn er takmarkaður við sumarbústaðaeigendur og aðstandendur, í sumarbústaðasvæði að Hraunborgum, í Grímsnesi. Ingvi Rúnar sagði að  þeir sumarbústaðareigendur sæju ekki um rekstur vallarins, en samkvæmt lögum um tilgang klúbbsins, myndu þeir leitast við að ganga vel um hann og benda á, hvað betur mætti fara. Klúbburinn er stofnaður með samþykki eigenda vallarins, Sjómannadagsráði. Nýi klúbburinn heitir Golfklúbbur Hraunborga og er skammstafaður GKH.


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 08:15

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór og Haraldur Franklín á 3. bestu skorum liða sinna eftir fyrri dag ASU mótsins í Alabama

Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State og Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette hófu í gær leik á ASU Fall Beach Classic, sem fram fer í Peninsula Golf & Racquet Club á Golf Shores, Alabama. Þetta eru síðustu mót Andra Þórs og Haraldar Franklín fyrir jól. Þátttakendur í ASU Fall Beach Classic eru 73 frá 13 háskólum.  Mótið stendur 4.-5. nóvember og verður lokahringurinn því leikinn í kvöld. Eftir fyrri mótsdag þar sem spilaðir voru 2 hringir er Haraldur Franklín T-22 í einstaklingskeppninni og Louisiana Lafayette í 5. sætinu í liðakeppninni og telur þar skor Haraldar sem er á 3. besta skori liðs síns. Haraldur Franklín Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 07:45

Bandaríska háskólagolfið: Erfið byrjun hjá íslensku kylfingunum á Hawaii

Tveir íslenskir kylfingar í bandaríska háskólagolfinu, Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU eru nú staddir á Hawaii, þar sem þeir munu taka þátt í Warrior Princeville Makai Invitational í Makai golfklúbbnum í Princeville. Mótið stendur dagana 4.-6. nóvember og þátttakendur eru 93 frá 18 háskólum. Eftir 1. dag eru háskólalið Axels, Mississippi State, í 2. sæti, en skor Axels telur ekki þar sem hann er í 5. og síðasta sætinu en 4 bestu skor telja.  Í einstaklingskeppninni er Axel T-56 þ.e. deilir 56. sætinu með 13 öðrum kylfingum. Axel lék fyrsta hring á 2 yfir pari, 74 höggum. Sömu sögu er eiginlega að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2013 | 22:00

Johnson bræður í sviðsljósinu í Shanghaí!

Dustin Johnson (oft kallaður DJ) lauk við 2013 keppnistímabilið á sama hátt og hann hóf það, með því að vinna sér inn óheyrilega peningafjárhæð eftir að hafa haft betur gegn samkeppninni, sem flestallir hafa sigrað á stórum atvinnumótum. Annað markvert sem gerðist í gær í Shanghaí á HSBC mótinu var að fyrrum nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy tryggði sér sæti á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í Dubaí. En á það er bara minnst svona í framhjáhlaupi. Sigur DJ var sætur því litli bróðir hans, Austin var á pokanum hjá honum í stað kaddýsins Bobby Brown og kærestan, Paulina Gretzky fylgdist með hverju fótspori síns heittelskaða allar 72 holurnar í Sheshan golfklúbbnum.  Paulina, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2013 | 20:00

Birgir Leifur á 70 á 3. degi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, stóð sig vel  í dag, á 3. hring úrtökumótsins á Lumine golfstaðnum í Tarragona, á Spáni. Hann lék á 1 undir pari, 70 höggum og er T-41, þ.e. deilir 41. sætinu með 3 öðrum kylfingum. Aðeins 20 efstu komast áfram á lokaúrtökumótið í Girona í desember n.k. og ljóst að Birgir Leifur verður að vera einbeittur á morgun og eiga feykigóðan hring til þess að komast til Girona. Birgir Leifur er samtals búinn að spila á 2 undir pari, 211 höggum (70 71 70).  Efsti maður, Englendingurinn Chris Hanson, hefir leikið á samtals 201 höggi (64 70 67) þannig að það munar að meðaltali 3 höggum Lesa meira